Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 53
lesinn. Hann hafði ferðast mikið og ég furðaði mig oft á því hversu ná- kvæmlega hann gat rifjað upp ferðasögur. Þegar við vorum búsett í Svíþjóð og Noregi, komu þau hjónin í heimsókn á flesta þá staði sem við fluttum til, en þeir voru ófáir. Það má með sanni segja að Ólafur sýndi það í verki, hversu umhugað honum var um hagi okkar erlendis og hér heima. Ólafur var fram á áttræðisaldur mjög hraustur, þökk sé góðum genum. Þrátt fyrir gott upplag fór heilsan að bila. Hann fór í gegnum margar erfiðar aðgerðir á ganglim- um, en úr rættist að lokum. Hann fór til Bandaríkjanna í blásningu og síðar í aðgerð á hálsslagæðum hér heima. Þá fanns honum og okkur öllum nóg komið, en erfiðleikarnir voru því miður ekki á enda. Erla konan hans veikist af ólæknandi sjúkdómi sem leggst á heilann og þótti okkur öllum mjög erfitt að horfa upp á það. Ólafur tók það mjög nærri sér og vann stöðugt að því fram í andlátið að gera henni lífið bærilegra. Um svipað leyti og Erla veikist, berst Ólafur hetjulega við nýja vá, krabbameinið, en sú barátta reyn- ist honum um megn. Síðustu mán- uðir og vikur reyndust Ólafi mjög erfiður tími og fannst mér hann undir það síðasta vera farinn að gera sér grein fyrir að það væri komið að leiðarlokum. Kallið kom snögglega á Granda- vegi og veitti honum hinsta friðinn. Ólafur var sterkur persónuleiki og á ávallt eftir að lifa í minning- unni. Hann á eftir að skilja eftir djúpa gjá í fjölskyldunni. Vertu sæll, kæri vinur og tengdafaðir. Þinn tengdasonur Kári Knútsson. Elsku afi minn. Það er ekki hægt að lýsa því með orðum hvað það er erfitt að missa þig, hef verið hjá þér og ömmu frá því að ég fæddist og svo ertu bara farinn. Þú gerðir allt fyrir mig. Gott að geta samt rifjað upp allar góðu minn- ingarnar sem við upplifðum saman, t.d. þegar við fórum alltaf út á Grandaskóla í „stóru“ rennibraut- ina, Mikka og refaleikinn, gefa öndunum brauð og svo sungum við alltaf þegar að við komum að hóln- um fyrir framan Grandó „Upp upp upp á hól, upp á hólsins brún, nið- ur niður niður niður alveg niður á tún“, og svo var farið heim á Grandó og stjanað við mig allan liðlangan daginn og sofnaði ég svo sæl og kát eftir daginn á milli ömmu og afa. Svo stundum fórum við upp í Skorradal í sumarbústað- inn og gerðum alls konar þar t.d. á bátinn, tjalda, spila og manstu svo, afi, þegar við fundum litla skóg- arþröstinn dáinn á svölunum og við ætluðum að jarða hann og fundum bara skókassa og jörðuðum hann saman og smíðuðum svo trékoss og létum á leiðið. Svo þegar við fórum til Spánar eftir að þú varst greind- ur með krabbameinið, þá komstu samt með okkur og viðskemmtum okkur frábærlega vel. Allt sem þú hefur gert fyrir mig og allar minningarnar er ekki hægt að skrifa bara hérna, ég hef það bara í minningunni. Þó að ég viti að þér líður mikið betur núna og ert laus við krabbameinið, er samt erfitt að missa þig og vita að þú ert ekki lengur til staðar. En þú verður/ert samt alltaf hjá mér í huganum. Ég fann alltaf endalausa væntumþykju frá þér og leið/líður alltaf best hjá ömmu og afa á Grandó. Þú verður alltaf besti af- inn minn. Þín Hrafnhildur Ylfa (Habbiddu Ylla). Elskulegur afi minn. Nú ertu farinn á nýjan stað í lífinu. Ég tók það mjög nærri mér þegar ég frétti að þú hefðir fallið frá vegna þeirra veikinda sem þú barðist svo stórmannlega við. Það sem er mér efst í minni eru allar þær stór- skemmtilegu stundir sem við átt- um saman og spjölluðum. Ég á eft- ir að sakna þeirra mjög sárt. Alltaf tókstu vel á móti mér þegar ég kom í heimsókn til þín. Ég hafði mjög gaman af því að koma til ykkar ömmu og spjalla. Stundirnar sem við áttum saman hefðu alveg mátt vera fleiri, en þær sem við áttum saman verða mér ávallt of- arlega í minni. En nú ertu búinn að fá frið. Ég mun alltaf minnast þín sem elskulegs og hjartahlýs afa sem ég sakna mjög sárt. Þinn sonarsonur Ólafur Eggertsson. Elsku afi minn. Þú ert búinn að hugsa um mig mest, eins og að fara með mig í Húsdýragarðinn, fara í strætó bara til að fara í strætó og fara niður á höfn að skoða skipin. Það var gott að fá að kúra hjá þér og við pössuðum hvor annan. Þú gerðir allt fyrir mig. Elsku afi, við brölluðum margt saman og ég mun sakna þín mikið. Vonandi hittumst við aftur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Elska þig. Þinn Máni. Elsku afi minn. Maður gerir sér sjaldan grein fyrir því hvað sumt í lífinu er fljótt að eiga sér stað, en nú ertu farinn og ég veit að nú líð- ur þér betur eftir allar þínar þján- ingar. Þú hefur ávallt verið í hjarta mínu þrátt fyrir fjarlægð okkar í lífinu og staðið þig mjög vel sem afi. Sögunum sem þú sagðir mér um heiminn og ferðalög þín mun ég aldrei gleyma. Þú sýndir mér hversu mikilvægt það er að gera sem mest í lífinu, njóta þess og sjá allt sem heim- urinn hefur upp á að bjóða, og þú varst einn af þeim fáu sem studdir öll mín ferðalög og varst alltaf svo ánægður fyrir mína hönd. Þú hefur sannað það að allt í lífinu er mögu- legt svo lengi sem maður hefur viljann, og mun það vera fast í mínu hjarta alla ævi. Nú hvílir þú í friði og ást á himnum með Ragnhildi ömmu og það gleður mig mjög að nú líður þér vel og ég veit innst inni að þú ert alltaf með okkur og fylgir okk- ur í gegnum lífið, því ég veit hvað þú barst mikla umhyggju og ást til okkar allra. Ég elska þig, elsku afi minn. Þitt barnabarn, Björgvin Þór Björgvinsson. Við lát góðs vinar erum við ræki- lega minnt á hverfulleik lífsins. Á unga aldri hugsum við flest sem betur fer um dauðann sem fjar- lægan veruleika, er snertir okkur sjálf og vini okkar lítið. Við eld- umst saman, eignumst afkomendur og sjáum það helst á þeim, að ald- urinn færist yfir okkur. Ævin líður ótrúlega hratt og skyndilega er okkar tími kominn, hvort sem okk- ur líkar það betur eða verr. Óli og Erla voru fyrstu og bestu vinir okkar Svövu, þegar við vorum í tilhugalífinu. Þau áttu fallegt heimili í Sörlaskjólinu og elstu börnin, Addý og Unnur, léku sér að dúkkum meðan Erla yngri hjal- aði í vöggunni sinni. Eggert og Þóra Hrönn komu síðar. Minningin um þessa tíma er björt og bund- umst við svo sterkum böndum, að aldrei hefur borið skugga á vináttu okkar þá rúmlega hálfu öld, sem við höfum lifað saman. Nú er Óli, þessi dagfarsprúði og skemmtilegi maður, horfinn í bili eftir erfið veikindi undanfarin ár. Við vottum elsku Erlu, börnunum og fjölskyldum þeirra innilega samúð og biðjum Guð að styrkja þau í sorg sinni og blessa minningu Ólafs Eggertssonar. Svava og Guðmundur. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 53 MINNINGAR ✝ Helgi Þorsteins-son fæddist á Höfðabrekku í Vík í Mýrdal 23. janúar 1932. Hann lést á Líknardeild Landa- kots 10. nóvember síðastliðinn. Hann var yngsti sonur hjónanna Þorsteins Einarssonar og El- ínar Helgadóttur. Látin eru ásamt honum Haukur og Halla en eftirlifandi Halldór og Einar. Helgi kvæntist Guðrúnu Guð- laugsdóttur og eignuðust þau tvö börn, Elínu og Guðlaug. Elín er gift Gunnari H. Jörundssyni og eiga þau tvo syni, Helga og Gunnar. Guðlaugur er í sambúð með Sóleyju G. Ein- arsdóttur. Guðlaug- ur á tvö börn af fyrra hjónabandi, Ingþór og Hafdísi. Helgi var raf- virki að mennt og starfaði við raf- virkjun, fyrst hjá Eimskip á Gullfoss og síðan Lagar- fossi. Hann vann þar á eftir á verk- stæði bróður síns Hauks og Ólafs. Síðan starfaði hann hjá Kísiliðjunni við Mývatn og að lokum hjá Landsvirkjun til starfsloka. Útför Helga var gerð 18. des- ember – í kyrrþey að ósk hins látna. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður, og heldur ósjálfbjarga, því er ver. Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið það líður allt of fljótt. (Vilhj. Vilhj.) Faðir minn, Helgi Þorsteinsson, er látinn, þar áður móðir mín Guð- rún Guðlaugsdóttir. Minning þeirra gleymist aldrei enda ekki hægt að hugsa sér betri foreldra. Bæði eiga þau ættir að rekja úr Skaftafells- sýslu enda er minningin úr Vík sterk í vitundinni. Fórum við fjölskyldan oft austur og vildi ég helst vera þar öllum stundum sem og við öll. For- eldrar mínir nutu þar samvista með afa, ömmu og Gumma sem hafði sér- stakt dálæti á börnum. Faðir minn var mikill hagleiks- maður í höndum sem og ótal mörgu öðru, til dæmis slyngur veiðimaður. Kenndi hann mér margt er laut að veiðum og bý ég vel að því alla tíð síðan. Móðir mín studdi vel við okkur systkinin allt til yfir lauk en hún, sem og faðir okkar, hvarf úr þessum heimi langt fyrir aldur fram. Herj- uðu veikindi á þau bæði og það var mikið áfall er þau greindust í sömu vikunni með krabbamein sem varð þeim að bana. Börðust þau eins og hetjur til síðustu mínútu. Hvíli þau í friði. Við munum sakna þeirra sárt. Við börn Helga viljum þakka öll- um fyrir veittan stuðning og hlýhug, Guð veri með ykkur öllum. Sérstak- ar og einlægar þakkir til starfsfólks á líknardeild Landakots fyrir frá- bæra þjónustu og einlægni. Guðlaugur Már Helgason. Í haust kvaddi ég föðurbróður minn Helga Þorsteinsson, meðvituð þess að sennilega yrði þetta okkar síðasta samverustund í lifanda lífi, þar eð ég yrði erlendis næstu tvo mánuði. Tíminn leið og sú von fór að bærast í brjósti að ef til vill yrði mögulegt að fá að hitta hann aftur þegar heim yrði komið í byrjun des- ember. Í raun eigingirni þar eð Helgi hafði barist lengi og af miklu æðru- leysi við erfiðan sjúkdóm sem aðeins gat farið á einn veg. Nú hefur hann kvatt þennan heim, laus frá líkam- legum þjáningum og andinn frjáls. Í mínum huga var föðurbróðir minn á margan hátt eins og önnur hlið af mínum eigin föður. Þeir voru líkir en um leið mjög ólíkir, líkt og endurspeglun af sameiginlegum grunni, önnur fíngerðari og hægari, hin hraðari og sneggri, en báðar traustar sem klettur. Helgi var yngstur og faðir minn elstur. Í útliti og fasi voru þeir líkir og einnig margt í þeirra lífi. Á síðari æviárum höfðu báðir misst eiginkonur sínar á líkum aldri, þær þá aðeins rúmlega sextugar. Seinna tók við svipað sjúk- dómsferli hjá þeim báðum, þó með ólíkum hraða líkt og einkenndi þá sjálfa. Jafnvel andlát þeirra bar að næstum upp á sama dag en með átta ára millibili. Báðir höfðu mætt erf- iðleikum sínum af miklu hugrekki og jafnaðargeði, lýsandi fyrir þann sameiginlega grunn sem einkenndi og endurspeglaði þá báða. Eftir að faðir minn féll frá áttum við Helgi oftar samskipti en áður og ræddum sameiginleg áhugamál og málefni er viðkomu ætt okkar og uppruna. Helga var mjög umhugað um þau mál og vildi koma þeim í örugga höfn. Hann var hafsjór af fróðleik um ætt okkar og sögu og þrátt fyrir veikindi var hugurinn ávallt skýr. Það verður erfitt að geta ekki lengur leitað til hans með spurningar sem eflaust eiga eftir að vakna, nú þegar þau okkar sem eftir erum leitumst við að ljúka málefnum á farsælan hátt. Sá grunnur eða kjarni sem ein- kenndi bæði föðurbróður minn og föður gaf okkur sem fengum að njóta slíkrar nærveru tilfinningu fyrir miklum mannkostum, djúpu öryggi og vernd. Mannkostum sem þar fyr- ir utan einkenndust af einstökum hæfileikum, góðum gáfum, útsjónar- semi, krafti og djörfung. Það er ómetanlegt að hafa átt þess kost að kynnast þessari einstöku og traustu manngerð. Slíkt ber hver með sér alla ævi. Þannig minnist ég föðurbróður míns Helga. Blessuð sé minning hans. Um úfið haf til yztu stranda er útsýn víð sem augað sér. Þá færðu vængi frjálsum anda sem flýgur hátt og víða fer. Þú lyftir tjaldi hins mikla máttar, sem mótar svip á dal og strönd. Við hugsum þrátt til austuráttar, þar andinn á sín draumalönd. (Þorsteinn Einarsson.) Börnum Helga, Ellu og Gulla, og fjölskyldum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Valgerður Hauksdóttir, Róm. HELGI ÞORSTEINSSON Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUNNAR ODDUR SIGURÐSSON, Ástúni 10, Kópavogi, andaðist á St. Jósefsspítala þriðjudaginn 29. nóv- ember. Útför fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 5. des- ember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarkort Systrasjóðs St. Jósefsspítala á www.stjo.is. Margrét Þórunn Þórðardóttir, Þórdís Gunnarsdóttir, Scott M. Evans, Sigurdís Gunnarsdóttir, Sigfinnur Þ. Lúðvíksson, Sigþór Gunnarsson, Íris Guðmundsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, afi og langafi, ÓLI J. BLÖNDAL frá Siglufirði, Unnarbraut 1, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánu- daginn 5. desember kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Margrét B. Blöndal, Ólöf Birna Blöndal, Sveinn Þórarinsson, Jósep Örn Blöndal, Erla Harðardóttir, Ásbjörn Ó. Blöndal. Jóhanna Guðmundsdóttir, Sigurður Ó. Blöndal, Linda Björk Guðmundsdóttir, Guðrún Ó. Blöndal, Friðrik Jón Arngrímsson, Bryndís J. Blöndal, afa- og langafabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.