Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Veisla fyrir augað. Stórkostleg bók! Amazon.com STÓRKOSTLEG ÆVINTÝRAFERÐ ÚR IÐRUM JARÐAR Jörðin í öllum mikilfengleik sínum og fegurð − farið er um fáfarnar stigur, frá neðansjávargljúfrum til gróskumikilla regnskóga, um freraveröld heimskautanna og alla leið út í geiminn. kr. 9.980 EINSTAKT TILBOÐSVERÐ TIL ÁRAMÓTA Verð frá 1. jan. 2006: kr. 12.980 2.000 STÓRKOSTLEGAR MYNDIR Á 520 BLAÐSÍÐUM Í STÓRU BROTI TIL SNÆVI ÞAKINNA TINDA „Ótrúleg fróðleiksnáma.“ Illugi Jökulsson / Talstöðin www.jpv.is RAGNHEIÐUR Jónsdóttir frá Þrúðvangi í Vestmannaeyjum, held- ur í dag upp á aldarafmæli. Ragn- heiður hefur búið í Eyjum mestalla ævi og vill hvergi annars staðar búa. Ragnheiður fæddist þó ekki í Eyjum heldur í bænum Selkirk í Kanada þar sem hún bjó ásamt foreldrum sínum og eldri systur til tveggja ára aldurs. Sú eldri lést og eftir það vildi faðir Ragnheiðar flytja aftur heim. „Við komum heim siglandi yfir hafið og skipið sem ég man nú ekki hvað hét hafði tvo strompa, var gufuskip,“ útskýrði hún þegar blaða- maður heimsótti hana í myndarlegt herbergi hennar á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra í Vest- mannaeyjum, en þar hefur hún búið síðustu fjögur ár. „Pabbi byggði bjálkahús í Kanada ásamt því sem hann vann við lagningu járnbrauta þarna úti.“ Þau sigldu heim að hausti til og þá var móðir hennar ófrísk og undir lok árs 1907 eign- aðist Ragnheiður systur. Þau fluttust til Vestmannaeyja um haustið 1907. Faðir hennar byggði húsið Brautarholt 1908 og var alla tíð síðar kenndur við það hús. Ragnheiður hefur alla sína tíð búið í Eyjum og vill hvergi annars staðar búa. Hún brá sér reyndar af bæ í rúmt ár þegar hún var um tví- tugt en þá réð hún sig sem vinnu- kona til Grimsby á Englandi. „Það kom þannig til að ég hitti Georg Gíslason á balli í Eyjum, hann spurði mig hvort ég vildi koma í vist til Englands og án þess að hugsa svo mikið um það sagði ég já, fór heim og tilkynnti foreldrunum þetta og þau sögðu bara amen og út fór ég.“ Konan sem tók á móti henni hét Nancy Little og átti nokkur börn en tengsl hennar við Ísland voru sú að hún var tengdamóðir Þórarins Ol- geirssonar útgerðarmanns. Þarna dvaldi hún í rúmt ár sem vinnukona og að sögn dóttur hennar Fríðu Sig- urðardóttur talar hún oft hlýlega um tímann í Grimsby. „Þetta var mjög skemmtileg lífs- reynsla,“ bætti Ragn- heiður við. Um sjötíu afkomendur Þegar heim var kom- ið á nýjan leik giftist hún norskum manni, Arthur Aanes, og eign- aðist með honum þrjú börn. Eitt barnanna misstu þau. Þau skildu eftir nokkurra ára sam- búð og árið 1935 giftist hún á nýjan leik, Sig- urði Ólasyni. Þau eign- uðust einnig þrjú börn en elsta barnið, drengur, dó ungur að aldri. Ragnheiður á nú þrjú börn á lífi, barnabörnin eru orðin nítján, barnabarnabörnin þrjátíu og þrjú og barnabarnabarnabörnin tólf og eitt á leiðinni. Alls um sjötíu afkomendur frá henni sem allir slitu barnskónum í Vestmannaeyjum en aðeins þrír af- komendur búa þar enn. Það var því oft fjör á heimilinu, sérstaklega þegar árin liðu og af- komendunum fjölgaði ört og alltaf hittist fjölskyldan eftir þrett- ándaskemmtunina heima hjá Ragn- heiði og gæddi sér á heitu súkkulaði og smákökum. „Það var oft fullt út úr dyrum.“ Hefðin hélst alveg þang- að til fyrir fjórum árum. Fríða dóttir hennar útskýrir að Ragnheiður hafi búið í þjónustuíbúð til 96 ára aldurs og alltaf séð um sig sjálf en hún datt 2. janúar 2002 illa og eftir það fór hún á Hraunbúðir. Ragnheiður hefur alla tíð unnið mikið og byrjaði níu ára gömul að vinna á stakkstæði og er nokkuð ljóst að slíkt myndi ekki líðast í dag, líklega væru nú komin einhver lög eða reglugerðir um slíka barna- þrælkun en Ragnheiður sagði að hún hafi haft gott að þessu og hún hafi fljótt lært að vinna. Hún segir mikið hafa breyst og nú er svo komið að hún þekkir sig ekki lengur niðri í miðbæ Heimaeyjar. Þó bjó hún þar lengi vel. „Ég þekki ekki bæinn lengur.“ Hún segir lífsviðhorf fólks einnig hafa breyst mikið. „Það hafa allir svo mikið að gera og unga fólkið er kærulaust. Fólk hafði meiri tíma áður og það voru meiri samskipti á milli fólks,“ sagði Ragn- heiður og þrátt fyrir margar nýjungar í samskiptamáta s.s. tölvupóst, gsm, sms, msn og allar hinar skammstafirnar hefur þetta fært fólk meira frá hvort öðru en nær að mati Ragnheiðar. „Horfi mest á fótbolta, golf og snóker“ Þegar hún er spurð að því hver mesta og besta tækninýjungin sé sem hefur komið fram á þessari öld sem hún hefur lifað kemur skilj- anlega margt upp í hugann. Hún nefnir þó símann fyrst og síðan sjón- varpið og myndbandstækið. Fríða skýtur því inn í að hún muni það enn þegar móðir sín fékk fyrstu sjálf- virku þvottavélina. Þá sat hún fyrir framan vélina og horfði á hana þvo fyrstu umferðina, alveg himinlifandi með þá byltingu. Sjónin hefur ekki brugðist Ragn- heiði og nýtur hún þess að horfa á sjónvarpið og þar eru íþróttirnar í miklu uppáhaldi. „Ég horfi mest á fótbolta, golf og snóker.“ Hún á að sjálfsögðu sitt uppáhaldslið í enska boltanum og það er Manchester United. Meðfram sjónvarpshorfi hefur hún eytt dágóðum tíma í handavinnu ýmiss konar og státar líklega af frumlegustu gestabók Ís- lands. Hún hefur síðan 1963 fengið gesti sína til að skrifa nafn sitt á blað sem hún svo saumar út í dúk. Nú þegar hefur Byggðasafni Vest- mannaeyja verið lofað dúknum sem skiljanlega er orðinn nokkuð stór. Ragnheiður heldur upp á ald- arafmæli sitt í sal Hraunbúða í dag. Ragnheiður Jónsdóttir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag Eyjamaður sem fæddist í Kanada Ragnheiður Jónsdóttir Eftir Sigursvein Þórðarson RANNSÓKNARBORUNUM vegna væntanlegra Vaðlaheiðar- ganga er lokið, en þær hafa staðið frá því í sumar. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem aflað var með borunum verður unnin jarð- fræðiskýrsla sem væntanleg er með vorinu. Þetta kemur fram á vef Eyþings, Sambands sveitarfé- laga í Eyjafirði og Þingeyjar- sýslum. Þar kemur einnig fram að að líkindum verði einnig fram- kvæmdar svokallaðar rafsegul- mælingar í Vaðlaheiði til sprungu- leitar síðla vetrar en þessir verkþættir eru allir nauðsynlegir til að afla sem gleggstra gagna um jarðlögin þar sem ætlað er að göngin verði. „Í mælingunum kemur fram hvar er að finna misgengi og brotalínur en ljóst er að á köflum þarf öflugri styrkingar af þeim sökum, svo sem algengt er í fram- kvæmdum af þessum toga,“ segir á vefnum. Fram kemur að þessa dagana sé verið að vinna að mörgum þáttum er snúa að undirbúningi fram- kvæmdanna. „Reiknilíkan fyrir göngin hefur verið sent yfirvöldum samgöngumála og er þar til með- ferðar, en þar er um að ræða þær forsendur sem stjórn Greiðrar leiðar ehf. vinnur út frá varðandi rekstur ganganna. Hjá Vegagerðinni eru sömuleiðis til skoðunar tillögur Greiðar leiðar um staðsetningu á munnum gang- anna og hvernig göngin munu tengjast þjóðvegakerfinu. Þegar mat Vegagerðarinnar liggur fyrir þarf að ráðast í minniháttar við- bótarrannsóknir á endanlegum munnastað, beggja vegna Vaðla- heiðar. Þær rannsóknir fara vænt- anlega fram á komandi sumri,“ segir á vef Eyþings. Samkvæmt því sem þar kemur fram hafa áætlanir Greiðrar leiðar verið kynntar Skipulagsstofnun og hefur stjórn félagsins samráð við hana varðandi mat á umhverfis- áhrifum. Í undirbúningsvinnu Greiðrar leiðar ehf. hefur verið miðað við að framkvæmdatími verði þrjú ár, þ.e. tvö ár í boranir og um eitt ár í frágang og uppsetningu búnaðar. Í áðurnefndu reiknilíkani Greiðrar leiðar er við það miðað að fyrsta rekstrarár ganganna verði 2011. Vaðlaheiðar- göng gætu verið tilbúin 2011 BÚIÐ er að kveikja á jólatré Djúpa- vogsbúa. Fjöldi manns var við- staddur vandaða dagskrá þegar kveikt var á jólatré Djúpavogsbúa á dögunum og var söngur og hljóð- færasláttur grunnskólabarna í fyr- irrúmi. Þá spruttu jólasveinar út úr klettavegg og léku við hvern sinn fingur. Það var svo Ingimar Sveins- son, fyrrverandi skólastjóri, sem tendraði ljósin á hinu veglega jólatré Djúpavogs. Spilað með frosna fingur Morgunblaðið/Andrés Skúlason ALCAN á Íslandi hefur kært nýlega starfsleyfisveitingu Umhverfisstofn- unar fyrir álverið í Straumsvík til umhverfisráðuneytis. Þær forsendur eru gefnar að í starfsleyfinu sé gert ráð fyrir óbreyttu þynningarsvæði, eða minna svæði en tillaga var að í umhverfismati frá árinu 2002, þrátt fyrir fyrirhugaða stækkun álvers í allt að 460 þúsund tonn af áli á ári – úr 200 þúsund tonnum. Þynningarsvæði er það svæði um- hverfis álverið þar sem þynning mengunar á sér stað og afmarkast fyrst og fremst af þynningu flúors en styrkurinn má vera yfir viðmiðunar- mörkum innan þess. Í umhverfismati frá árinu 2002 segir m.a.: „Tillaga að þynningar- svæði nær yfir núverandi svæði tak- markaðrar ábyrgðar samkvæmt samningi á milli ríkisstjórnar Ís- lands og fyrirtækisins. Áhrifasvæði álversins stækkar því ekki frá því sem nú er og verða því ekki neinar breytingar á landnotkun utan núver- andi þynningarsvæðis.“ Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Alcan á Íslandi segir kjarn- ann í kærunni vera að skipulags- stofnun hafi á sínum tíma fallist á það að svokallað svæði takmarkaðr- ar ábyrgðar, sem er töluvert stærra en þynningarsvæðið, yrði þynning- arsvæðið eftir stækkun. „Svo kemur starfsleyfisveitingin þar sem sú er ekki raunin. Það sem við erum því að gera núna er að láta reyna á það hvort eðlilegt sé að í starfsleyfinu séu sett stífari mörk en í umhverf- ismatinu og því sem hefur verið sam- þykkt þar.“ Hrannar bætir við að í umhverf- ismatinu sé loftdreifingarspá út frá veðurgögnum og öðru slíku sem sýn- ir hvernig mengun þynnist út og þær forsendur standist ekki miðað við að þynningarsvæðið haldist óbreytt eða miðað við það þynningarsvæði sem er tilgreint í þessu nýja starfsleyfi. Alcan kærir starfsleyfisveitingu Stífari mörk sett en í umhverfismati
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.