Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 27
Það er svo merkilegt að það var aldrei neitt í lögum listaakademíanna sem bannaði að konur stunduðu list- nám til jafns við karla. Það var bara ekki gert ráð fyrir að konur sæktust eftir því. Og krafan um kvenleikann sveif yfir vötnunum. Almennt var álit- ið að konur þyldu ekki erfiðisvinnu eins og málarastarfið vegna þess að líkamlega væru þær veikari en karl- arnir.“ Metnaður mjög ókvenlegur Harriet Backer var þekktasta 19. aldar myndlistarkona Norðmanna. Hún var atvinnumálari og meðvituð um að starf hennar var álitið ókven- legt. Eftir henni er haft: „Með því að einbeita mér eins og karlmaður þjóna ég kvennabaráttunni bezt.“ Það má segja að amatörstimpillinn hafi loðað lengi við konurnar. Þær áttu að kunna sitt lítið af hverju í stað þess að helga sig einhverri einni list- grein því það var álitið mjög ókven- legt. Faglegur metnaður var einnig álitinn vera mjög ókvenlegur. Árið 1905 skrifaði brezkur listfræð- ingur, Walter Shaw Sparrow, að þar sem afburðagáfur; „genialitet,“ væru kynbundnar ættu konur ekki að nota eiginleika sem tilheyrðu körlum í list sinni. Konur mættu ekki fyrirgera „þeirri blíðu og þeim þokka sem prýða þeirra kvenlega eðli, eðli þeirra sem mæðra og uppalenda“. Konunni var uppálagt að halda sig til hlés innan síns einkaheims; heims amatörsins. Hér heima er til þess að líta, að giftar konur urðu fyrst myndugar eða sjálfráða aldamótárið 1900 en fram að þeim tíma misstu þær fjárræði við giftingu. Ógiftar og uppkomnar dætur há- stéttarinnar unnu ekki fyrir sér sem vinnukonur, en það varð oft hlutskipti þeirra að verða þjónustur fjölskyldna sinna. Oft bjuggu þær inni á foreldra- heimilinu, eflaust bæði af tilfinninga- legum og fjárhagslegum ástæðum. Þær fengu í raun ekki að ráða sér sjálfar. Í sumum tilvikum þótti sjálfsagt að þær fórnuðu frama sínum í þágu fjöl- skyldunnar; þær voru truflaðar í námi og kallaðar heim: Sigríður Björnsdóttir var komin í starf sem postulínsmálari hjá Bing og Grøndal, þegar foreldrar hennar kölluðu hana heim til að aðstoða föður sinn, ráð- herrann, við heimilishald og mót- tökur. Og Kristín Þorvaldsdóttir var kölluð heim frá Þýzka- landi til að annast fjöl- skyldu látinnar systur sinnar. Hvorug sneri aftur til myndlistarinnar en báðar fundu sér starf, þar sem þær nutu myndlistarmenntunar sinnar að einhverju leyti. Sigríður Björns- dóttir tók við rekstri bókaverzlunarinnar Ísa- foldar, þegar faðir henn- ar lézt, og kenndi teikn- ingu og handavinnu um árabil. “ Sterkir undanfarar – Hvað kom til að þú fórst að rekast í málum þessara kvenna? „Þegar ég kom heim frá námi í Sví- þjóð um miðjan áttunda tuginn, fór ég að kanna hvort hér kynnu að leynast verk óþekktra íslenzkra myndlistar- kvenna. Þá var það orðin stefna að leiðrétta listasöguna með því að draga fram hlut kvenna, sem legið hafði í þagnargildi. Í fyrstu útgáfu listasögu H.W. Jan- sons; History of Art, frá 1962 eru nefndir 300 karllistamenn en engin kona. Þetta rit var notað sem grund- vallarkennslubók í listasögu um allan hinn vestræna heim. Í endurbættri útgáfu 1986 komust konur loks á blað og eru 21 á móti 1235 körlum. Huldukonurnar mínar hafa ekki verið opinber partur af íslenzkri sam- tímalistasögu. En þegar þær eru dregnar fram í dagsljósið, sjáum við að þær voru sterkir undanfarar. Það líða svo ekki nema 15 ár, þar til fram koma konur, sem gera listina að ævi- starfi; Kristín Jónsdóttir, Júlíana Sveinsdóttir og Nína Sæmundsson. Þá er öldin orðin önnur og konur og karlar standa jafnfætis við listsköp- unina.“ – Huldukonurnar hafa ekki eyði- lagt verk sín? „Það get ég reyndar ekki vitað en það er mismikið sem komið hefur fram eftir þær. En ég vonast svo sannarlega til að fá ábendingar um verk sem enn kynnu að leynast ein- hvers staðar. Ein þeirra læsti reyndar allt niður og bannaði að við því yrði hróflað fyrr en að henni látinni. Hinar notuðu verkin til gjafa og með örfáum und- antekningum eru þau í eigu ættingja og afkomenda. Mörg hafa skipað heiðurssess á heimilum, en önnur voru dregin upp úr kjöllurum og ofan af háaloftum. Samstarfið við þetta fólk hefur ver- ið mér ómetanlegt, það opnaði heimili sín fyrir mér og veitti mér aðgang að einkasöfnum sínum. Án þess örlætis hefði þessi bók aldrei orðið að veru- leika. Og ekki heldur sýningin, sem opn- uð er í Bogasal Þjóðminjasafnsins í dag. Þar eru sýnd verk þessara huldukvenna; olíumálverk, vatnslita- myndir, teikningar, útsaumur, leður- skurður, leirkeragerð og postulíns- málun. Sýningin er gott dæmi um hin margvíslegu tjáningarform kvenna og mér finnst Bogasalurinn afskap- lega falleg umgjörð um verk þeirra.“ kyldunum freysteinn@mbl.is Þóra Jónsdóttir: Esjan og Viðey. Þóra Pjetursdóttir: Kvosin í Reykjavík 1873. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.