Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Yfirgripsmesta
verk sem út
hefur komið
um íslenska
málnotkun.
SVO MIKLU MEIRA EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK
Rafræn útgáfa á geisladiski fylgir bókinni
ORÐABÓK FRAMTÍÐARINNAR
Bókin er yfir 1600 bls. í stóru broti.
www.jpv.is
METSÖLULISTI
EYMUNDSSON
aðallisti 30. nóv.
EIRÍKUR Jónsson, formaður Kennarasam-
bands Íslands, segir að kennarar hafi alveg við-
urkennt það að fyrstu kröfur vegna kjarasamn-
inganna í fyrra hafi ekki verið nægilega vel
unnar, en búið hafi verið að sníða þær til og inn
í ákveðinn ramma fyrir vorið löngu áður en
verkfall hafi skollið á. Í nýrri skýrslu mennta-
ráðs Reykjavíkurborgar um aðdraganda kenn-
araverkfallsins í fyrra eru undirbúningur og
kröfugerð kennara meðal annars gagnrýnd.
Eiríkur sagði að fyrstu drög að kröfugerð
kennara vegna samningaviðræðnanna hefðu í
raun verið hugsuð sem stefnumótun til langs
tíma, en hefði mátt skilja sem kröfur vegna
einna samninga. Hins vegar hefðu kröfur
reyndar alltaf verið miklu hærri heldur en við-
semjendur hefðu talið sig geta komið til móts
við.
„Mér finnst margt í þessari skýrslu skrítið og
annað er skárra, en það hefur margoft komið
fram að það vantar allan trúnað á milli samn-
ingsaðila. Stuttu eftir þetta verkfall fór ég að
vinna með leikskólakennurum í kjarasamninga-
gerð og það var allt öðru vísi,“ sagði Eiríkur
ennfremur.
Hann sagði að í samningunum vegna grunn-
skólanna hefðu allir útreikningar þeirra verið
dregnir í efa af launanefndinni, alveg sama
hvað þeir hefðu lagt fram. Í samningunum
vegna leikskólakennara hefðu aðrir verið í for-
svari hjá launanefndinni. Þar hefði hann verið
að reikna og launanefndin á móti og í þeim efn-
um hefði allt gengið upp
„Það var mikil stífni í þessu og það var ekki
traust á milli aðila,“ sagði Eiríkur einnig.
Aðspurður hvort hluta skýringarinnar á því
hvernig gengið hefði mætti ekki rekja til þess
hvernig til tókst um samninga kennara 2001
sagði Eiríkur að framkvæmd þeirra samninga
og deilumál sem upp risu vegna þeirra, sem
meðal annars hafa endað fyrir dómstólum,
hefðu valdið verulegum pirringi og menn hefðu
talið að framkvæmd þess samnings hefði verið
með öðrum hætti en lagt hefði verið upp með.
Hins vegar hefði það að sjálfsögðu verið mis-
jafnt á milli skóla og milli sveitarfélaga.
Miðstýringin gagnrýnd
„Menn hafa líka gagnrýnt verulega þessa gíf-
urlegu miðstýringu sem er hjá launanefnd
sveitarfélaga í grunnskólunum. Sveitarfélag
sem vill gera eitthvað betur eða öðru vísi heldur
en samningurinn segir nákvæmlega til um er
nánast elt uppi og bannfært, ef svo má að orði
komast,“ sagði Eiríkur einnig og benti á að
miðstýringin væri einnig gagnrýnd í skýrslunni.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, um skýrslu um aðdraganda kennaraverkfalls
Vantaði allan trúnað á milli
samningsaðila í viðræðunum
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
ÞÓTT hvolpurinn Tító sé ekki
nema sjö vikna gamall er hann þeg-
ar farinn að sýna að hann er gott
efni í veiðihund. Eigandi hans er
farinn að þjálfa hann og notar til
þess gervibráð og eins og sjá má
skortir ekki áhugann hjá hund-
inum. Flest bendir því til að Tító
verði orðinn góður næsta haust.
Morgunblaðið/Ingó
Tító er efnilegur veiðihundur
GESTUR Jónsson, verjandi
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í
Baugsmálinu, segir dóm
Hæstaréttar frá því á fimmtu-
dag, þar sem felldur var úr
gildi úrskurður héraðsdóms
um að settur ríkissaksóknari
væri ekki til þess bær að fara
með ákæruvald í átta liðum
ákærunnar sem enn eru fyrir
héraðsdómi, bera það með sér
að rétturinn taki ekki afstöðu
til þeirra álitaefna sem hafa
verið uppi í málinu. „Menn
standa einfaldlega frammi fyr-
ir því að það hefur ekki verið
skorið úr því,“ segir Gestur.
Líkt og Sigurður T. Magn-
ússon býst Gestur við því að
héraðsdómari muni í fram-
haldinu boða nýtt þinghald í
málinu og segist hann jafn-
framt reikna með að verjend-
ur í málinu muni halda fast við
dómkröfur sínar um að tekið
verði á hæfi dómsmálaráð-
herra. „Ég held að það sé
mjög mikilvægt fyrir þetta
mál að það lendi ekki í síðbún-
um ógöngum vegna hæfis ráð-
herra.“
Áfram
kröfur
um hæfi
ráðherra
STÚDENTUM við Háskóla Íslands
býðst nú, líkt og síðastliðið vor, að
lesa undir próf til klukkan fjögur að
nóttu í þremur byggingum háskól-
ans og tók nýtt fyrirkomulag gildi 1.
desember sl. Leyfið er gefið af há-
skólayfirvöldum gegn því að stúd-
entaráðsliðar ásamt fjölda nemenda
taki ábyrgð á frágangi bygginganna,
gangi um í lok nætur og sjái til þess
að aðkoman sé viðunandi.
Á fyrstu nóttunni sem lengur var
opið kom hins vegar til þæfings milli
stúdenta og öryggisvarða sem ætl-
uðu að vísa nemendum út. Eftir rök-
ræður kom þó ekki til þess og var
nemendum leyft að halda lestri
áfram. Ástæða misskilningsins er
sögð innanhúss hjá Öryggismiðstöð-
inni en þar hafi skilaboð um lengri
opnunartíma ekki borist öryggis-
vörðum í tæka tíð. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Andra Heiðari Krist-
inssyni, formanni hagsmunaráðs
SHÍ, hefur nú verið tryggt að slík
uppákoma endurtaki sig ekki og
stúdentar geti því helgað sig lestr-
inum fram að prófum.
Öryggisverðir ætluðu
að vísa nemendum
í próflestri á dyr
Morgunblaðið/Kristinn
TIL VANSA
Ragnar Jónsson í Smára, Sig-
urður Nordal, Jón Helgason og Pet-
er Hallberg undirrituðu skeyti til
Lærdómslistafélagsins í Svíþjóð árið
1955 vegna Nóbelsverðlaunanna í
bókmenntum þar sem sagði að það
væri til vansa ef Gunnar Gunnarsson
fengi Nóbelsverðlaunin. Þetta kem-
ur fram í nýrri bók Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar prófessors um
Halldór Laxness.
Of mikið á milli
„Það ber of mikið í milli að okkar
mati. Nýjasta útspil borgarinnar var
það langt frá því sem okkur í samn-
inganefndinni er heimilt að semja
um,“ segir Sjöfn Ingólfsdóttir, for-
maður Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar, um viðræður félagsins
við Reykjavíkurborg um gerð nýs
kjarasamnings
Vaðlaheiðargöng 2011
Vaðlaheiðargöng gætu orðið tilbú-
in 2011 samkvæmt þeim viðmiðum
sem lögð eru til grundvallar í und-
irbúningsvinnu vegna borunar gang-
anna. Rannsóknarborunum er nú
lokið og er jarðfræðiskýrsla vænt-
anleg í vor.
Spenna í Venesúela
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
skipaði í gær öryggissveitum lands-
ins að vera við öllu búnar og hélt því
fram, að stuðningsmenn stjórnar-
andstöðunnar ætluðu að grípa til of-
beldisverka til að trufla þingkosn-
ingarnar í dag. Sagði hann, að
fundist hefði sprengiefni og annar
búnaður, sem sýndi fram á þetta, en
skýrði það ekki nánar. Flestir helstu
stjórnarandstöðuflokkarnir ætla
hins vegar ekki að taka þátt í kosn-
ingunum og segja, að þær verði ekki
leynilegar. Sakar Chavez Bandarík-
in um að standa á bak við ákvörð-
unina en stjórnarandstaðan segir, að
Chavez noti Bandaríkjastjórn sem
grýlu til að draga athygli almenn-
ings frá ófremdarástandi í landinu.
Y f i r l i t
Kynningar Morgunblaðinu fylgir
bæklingurinn Jólin 2005 frá Lan-
come og Helena Rubinstein.
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 52/55
Ummæli 29 Myndasögur 60
Hugsað upphátt 29 Dagbók 60/63
Forystugrein 38 Víkverji 60
Reykjavíkurbréf 38 Staður og stund 62
Sjónspegill 40 Leikhús 64
Menning 40/44 Bíó 70/73
Umræðan 45/50 Sjónvarp 74
Bréf 47 Staksteinar 75
Hugvekja 52 Veður 75
* * *