Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 23
brigði í músíkinni. Ég held að platan
hefði ekki breytt miklu, þeir hefðu
bara lent einhvers staðar annars
staðar í tónlistinni. Og ég hefði
kannski endað í því að sérhæfa mig í
ljóðum Schumanns og Schuberts!“
segir Egill og hlær. „Það er erfitt að
segja til um þetta eftir á en í dag er
erfitt að ímynda sér að þetta hefði
farið á annan veg.“
Lókalbandið
En hvernig finnst þér frami ykkar
hafa verið?
„Við höfum verið mjög lánsamir,
Stuðmenn. Alltaf verið lókalband,
ekki allra, enda vitað það allan tím-
ann að það er ekki hægt að gera öll-
um til hæfis. En við höfum litið á
þetta sem skemmtun fyrir okkur
sjálfa. Við höfum yfirleitt skemmt
okkur vel yfir þessum pródúktum
okkar og upptakan á Sumari á Sýr-
landi var konungleg skemmtun, við
áttum okkar bestu daga þegar við
vorum að gera þettta. Við bjuggum
allir saman í Englandi, fórum saman
á pöbbinn og fengum okkur bjór, rif-
umst og bitumst og svo féll allt í ljúfa
löð og allir urðu vinir á ný eins og
gengur. Svo eftir það hefur mottóið
alltaf verið að menn verði að hafa af
þessu skemmtun, vinna er það auð-
vitað en skemmtileg vinna.“
Hefur það alltaf tekist?
„Stundum hefur það tekist og
stundum ekki. Þegar mikið er skapað
og framleitt, þá er það eðlilegur fylgi-
fiskur að horfast í augu við mistökin
og taka þeim með jafnaðargeði og
eins hitt að fyllast æðrulausu þakk-
læti þegar vel tekst til.“
Framboðið og eftirspurnin
Datt þér í hug fyrir þrjátíu árum
að þið yrðuð enn að þrjátíu árum síð-
ar?
„Nei, nei, alls ekki. Hljómsveitin
var í byrjun hugsuð sem hálfgildings
skólaband og okkar helstu áhangend-
ur voru þeir sem voru samskóla okk-
ur.“
Nú er væntanlegur DVD-diskur
með tónleikum ykkar í Royal Albert
Hall um síðustu páska. Hvað finnst
þér um þessa stórkostlegu aðdá-
endur Stuðmanna sem elta þá yfir
höf til að sjá þá spila?
„Þessir tónleikar voru magnaðir en
þó svo að aðeins 150 manns hefðu
komið þá hefði maður verið þeim
þakklátur engu að síður og hljóm-
sveitin hefði gefið jafn mikið af sér.“
Nú eru margar kynslóðir í aðdá-
endaklúbbnum, hvernig stendur á því
að nýjar og nýjar kynslóðir taka
þetta upp?
„Ég tel að foreldrar haldi uppi góð-
um siðum og treysti því að þeir haldi
góðum hlutum að börnum sínum, það
er þessum foreldrum að þakka að við
erum enn að. Á dansskemmtununum
eru gestirnir auðvitað helst ungt fólk
á aldrinum ca 18–35. Það er óneit-
anlega svolítið sérstakt að vera alltaf
að spila fyrir sama aldurshópinn en
eldast stöðugt sjálfur, ekki laust við
að stundum líði manni eins og tíminn
standi í stað.“
Og er eftirspurnin alltaf jafn mikil?
„Já, það virðist vera og alltaf er
gaman að sjá þegar fólk á okkar reki
lætur sjá sig, það gerist sem betur
fer æ oftar.“
gengið lengra en nokkurn hafði
kannski grunað. En platan vann á
og varð vinsæl þegar leið á.“
Hvað varð til þess að platan fékk
uppreisn æru?
„Það sem kannski margir tóku
eftir, og þar á meðal ég, var að
hún var skipuð afskaplega færum
„session“-spilurum á borð við Chris
Spedding sem var afburða gít-
arleikari. Hljómurinn var „erlend-
is“ án nokkurs vafa. Síðan var
ákveðin uppreisn í henni, hún daðr-
aði við dóp enda Sumar á Sýrlandi
skírskotun til sumars á sýru. Ómar
Valdimarsson skrifaði mikla gagn-
rýni um plötuna í Morgunblaðið á
sínum tíma sem fjallaði að mestu
leyti um fíkniefni. Á þessum tíma
var þetta náttúrulega partur af
poppmenningunni að ögra samtíð-
inni. Þó verður hennar minnst sem
glaðhlakkalegrar stuðplötu.“
Hvernig finnst þér platan í dag?
„Mér finnst hún æðisleg og
minnir mig enn á þennan tíma. Ég
man ennþá þegar ég hlustaði á
kassettuna í fyrsta skiptið í Faco
og finnst hún í dag jafngóð og þá.“
Myndir þú gera þetta aftur í
dag, ef þú værir 22 ára?
„Já ég myndi gera þetta aftur.
Þetta var mjög skemmtilegt og
nokkrum sinnum síðar þá leit mað-
ur til baka og spurði sjálfan sig:
„Hefði ég ekki átt að klára stúd-
entinn og fara í háskólann?“ Það
var gjörsamlega enginn grundvöll-
ur fyrir því að lifa á íslenskri
plötuútgáfu árið 1975 og síður
núna.“
En þetta tókst.
„Já þetta tókst, og ég er ennþá
að. Rek litla útgáfu sem gengur
mjög vel,“ segir plötuútgefandinn
Steinar Berg að lokum.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 23
RopeYoga
Jólakaffi Hringsins
verður haldið á Broadway á morgun sunnudaginn
1. desember kl. 13:30
Dagskráin verður sem hér segir:
Nemendur úr dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna dans
Örn Árnason mætir með grín og glens
Bjarni Ara og Silja syngja
Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson og Jónas Þórir Jónasson
leika ljúfa tónlist á fiðlu og píanó.
l k ff hl ðb ð l l h dl ff l l l
Jólakaffi Hringsins
verður haldið á Broadway á morgun,
sunnudaginn 4. desember, kl. 13:30
Dagskráin verður sem hér segir:
Ósk r Pétursson syngur nokkur lög
N mendur úr Dansskóla Auðar Haralds sýna dans
Stúlknakór Reykjavíkur syngur
undir stjórn Margrétar Pálmadóttur
Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson og
Jónas Þórir Þórisson leika ljúfa tónlist á fiðlu og píanó
Girnilegt kaffihlaðborð – Glæsilegt happdrætti
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111