Morgunblaðið - 04.12.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 31
„GJÖRÐU svo vel, það er þá ein milljón,
þrjátíu og eitt þúsund og átta hundruð,“ segir
konan í bankanum og réttir mér þykkt seðla-
búnt. Ég stari á búntið, mæli það út á einni
örskotsstundu og kemst að þeirri niðurstöðu
að það sé nákvæmlega fimm sinnum of þykkt
í innanklæðaveskið mitt. Samt samsvarar
upphæðin ekki nema 7.000 íslenskum krón-
um.
Í Laos heitir gjaldmiðillinn kip og ein ís-
lensk króna samsvarar 150 kip. Verðbólgan
hefur verið mikil. Stærsti seðillinn sem til er í
landinu jafngildir 130 íslenskum krónum. Það
er engin furða að ég enda með þykkt seðla-
búnt þegar ég ætla að skipta nokkrum þús-
undköllum.
„Mín bara orðin milljónamæringur,“ segi
ég glottandi og tek til við að deila búntinu á
milli peningaveskisins míns, bakpokans og
dagpokans. Ég er eins og Jóakim Aðalönd.
Ekki einungis er ég beinlínis með fulla vasa
fjár, heldur á ég margfalt meira en meðalíbúi
í Laos. Ég borga 100 krónur fyrir gistiheimili
og nokkra tíkalla fyrir máltíð. Meðalmán-
aðarlaun hér eru ekki nema nokkur þúsund
krónur.
Sá fyrsti til að fara í framhaldsskóla
„Ég var sá fyrsti til að fara í burtu úr
þorpinu mínu og í háskóla,“ segir ungur mað-
ur næsta dag. Við erum á leið að fæðing-
arstað hans, úti á landsbyggðinni í norður-
hluta landsins. Á þessum slóðum fara fáir í
langskólanám. Þriðjungur landsmanna er
raunar ólæs og margir hafa úr litlu að moða.
„Það er svo gaman að læra,“ segir hann með
glampa í auga og bendir mér á húsaþyrpingu
framundan. Þarna er þorpið.
Bæjarstæðið er magnað. Síðdegissólin
sendir geisla sína yfir stráhús sem kúra undir
háu fjalli. Barnahópur hleypur hlæjandi um
og hænur taka gaggandi á móti okkur. Úr
vatnsrennu neðan við þorpið rennur kalt vatn
ofan af fjallinu og þar baðar heimafólk sig.
Það er gott að skola af sér skítinn eftir göng-
una.
Kvöldmatur er framreiddur í húsi bæj-
arstjórans sem stendur reisulegt í miðri
þyrpingunni. Þar er lítil sjoppa þar sem
kaupa má kex og gos, sápu og sælgæti.
Myrkur skellur á og örskömmu síðar brestur
á með miklum hávaða. Það kviknar á dís-
elrafli, þeim eina í þorpinu, og í framhaldinu
á sjónvarpi.
Hundrað manns hjá bæjarstjóranum
Þegar ég stend upp frá kvöldmatarborðinu
til að ná í flugnafælu fæ ég áfall. Moskítóflug-
urnar eru komnar á kreik og farnar að bíta
mig. Ég bregð mér hinum megin við vegginn
hjá bæjarstjóranum, þar sem sjónvarpið
stendur, og krossbregður. Hundrað dökkbrún
augu virða mig fyrir sér. Hálft þorpið er
mætt til að horfa á eina sjónvarpið á staðn-
um. Einungis hús bæjarstjórans og gistiskáli
við hliðina hafa rafmagn. Hér nást engar
sjónvarpsstöðvar en aðalmaðurinn í þorpinu
býr vel og á vídeótæki. Kínversk mynd með
taílensku tali skemmtir heimafólki þetta
kvöld. Taílenska og lao, opinbera tungumálið
í Laos, eru skyld tungumál.
„Já, já, svona eins og ég horfði ofsalega
spennt á kínverska mynd með sænsku tali,
sitjandi á moldargólfi eða trébekk,“ muldra
ég og verður hugsað til íslenskra heimabíó-
kerfa, 32 tommu sjónvarpa, ljósleiðara og
óþolinmóðra áhorfenda með fjarstýringuna
útrétta „því það er fjandinn hafi það ekkert
almennilegt í sjónvarpinu“.
Haninn sem skammaðist á nóttunni
Um nóttina brestur á með hanagali. Ég
gref upp eyrnatappana en heyri gólið í han-
anum í gegnum tappana. Ætlar vinurinn ekk-
ert að fara að halda kjafti?
Ég rétt næ að dotta. Haninn byrjar aftur.
Það er derringur í honum og hinir hanarnir á
staðnum greinilega orðnir pirraðir. Þeir
öskra á móti og umræðurnar eru æði hávær-
ar. Klukkustund líður. Haninn í næsta þorpi
byrjar nú að gera sig breiðan og býður að-
alhananum í mínu þorpi birginn. Hann lætur
ekki fara svona með sig og þeir gargast lengi
á.
Þegar ég skríð út um morguninn og hálf-
hrasa um búlduleitan hana sem galar ólund-
arlega framan í mig froðufelli ég af reiði. Á
ég að fara í hanaslag við þig, þarna? Ég
hvessi á hanann augun en tek um leið eftir
ungri stúlku sem stendur fyrir aftan. Það
kemur á mig.
Sú litla brosir sposk. Ég hef á tilfinning-
unni að hún sé að brosa að mér en ekki til
mín og verð asnaleg á svipinn. Stúlkan virkar
ekki nema sex til sjö ára gömul og er með ný-
fætt barn vafið með sjali utan um sig. Agn-
arsmá stúlka með kolsvart hár sefur vært.
Ég mæli eldri stúlkuna á alla enda og kanta
og fæ út að þótt hún sé eldri en ég held geti
hún í mesta lagi verið níu ára. Hún og sú ný-
fædda hljóta að vera systur. Ég hnykla brýr,
set hendur í vasa og finn um leið fyrir pen-
ingabúntinu innanklæða.
Milljónamæringurinn kinkar kolli til
stúlknanna og minnist þess að þegar hann
var lítil stúlka lék hann sér í barbí, safnaði
límmiðum og grenjaði í foreldrum sínum að
kaupa kók á laugardögum.
sigridurv@mbl.is
Milljónamæringur í hanaslag
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Karlmaður fyrir utan heimili sitt í þorpi úti á landi í Suðaustur-Asíu ríkinu Laos.
Svipmynd frá Laos
Sigríður Víðis Jónsdóttir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
3
05
20
1
2/
20
05
www.urvalutsyn.is
Ferðir í eina og tvær vikur í desember
og janúar á hreint ótrúlegu verði.
39.900kr.*
Verð óháð fjölda, þó lágmark 2 í íbúð
*Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Verð m.v. að bókað sé á netinu.
Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu
bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Skelltu þér í sólina á frábæru verði!
Brottfarir Gistingar í boði
7. des. Bahia Meloneras, Santa Barbara
og Las Camelias
4. og 11. jan. Cay Beach Princess
18. og 25. jan. Montemar
Fáðu ferðatilhögun, nánari upp-
lýsingar um gististaðina og reiknaðu
út ferðakostnaðinn á netinu!
Verð frá:
S U N N U D A G U R
5 D A G A V E Ð U R S P Á F Y R I R G R A N C A N A R I A
23ºC
17ºC
Heiðskírt
M Á N U D A G U R
23ºC
17ºC
Létt-
skýjað
Þ R I Ð J U D A G U R
22ºC
17ºC
Létt-
skýjað
M I Ð V I K U D A G U R
22ºC
16ºC
Skúrir
F I M M T U D A G U R
22ºC
16ºC
Skýjað
SIGURÐUR Flosason, saxófónleikari og bæjarlistamaður Garðabæjar árið
2005, flutti tónlistaratriði ásamt söngkonunni Sólrúnu Bragadóttur á bæj-
arskrifstofum Garðabæjar í gærdag þegar fagnað var lokum vinnu við
mótun menningarstefnu bæjarins. Í stefnunni er m.a. lögð áhersla á að efla
menningu fyrir börn og ungmenni, það verður til að mynda gert með því að
halda listahátíð barna og ungmenna á næsta ári. Þá verður einnig lögð rík
áhersla á hönnun í tengslum við Hönnunarsafn Íslands sem staðsett er í
Garðabæ.
Morgunblaðið/RAX
Stefna í menningarmál-
um Garðabæjar gefin út
Á MORGUN, 5. desember, er al-
þjóðlegur dagur sjálfboðaliðans. Á
vegum Rauða krossins er öflugt inn-
anlandsstarf sem meira og minna er
unnið af sjálfboðaliðum en starf
sjálfboðaliða er einmitt undirstaða
starfsemi Rauða krossins um allan
heim. Tvær deildir á höfðuborgar-
svæðinu, Reykjavíkurdeild og Kópa-
vogsdeild, fagna degi sjálfboðaliðans
með opnu húsi fyrir sína fjölmörgu
sjálfboðaliða.
Hjá Reykjavíkurdeild verður opið
hús kl. 17–19 á Laugavegi 120, 5.
hæð. Ýmislegt verður á dagskrá og
má þar nefna að sagt verður frá
heimsókn til Gambíu sl. haust og
Pétur Pókus og Heiða úr Idol
skemmta.
Hjá Kópavogsdeild verður opið
hús þriðjudaginn 6. desember kl.
19.30–21.00 í Hamraborg 11, 2. hæð.
Þráinn Bertelsson les upp úr nýjustu
bók sinni Valkyrjum, Oddný Sturlu-
dóttir flytur erindi um jólahald Ís-
lendinga og Vallargerðisbræður
flytja nokkur lög.
Einnig býður Laugarásbíó, eins
og oft áður, börnum sem haldið hafa
tombólu á árinu í bíó.
Alþjóðlegur
dagur sjálfboða-
liðans á morgun