Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 41
MENNING
Málstofan hefst kl. 15:00
í Ásgarði (nýja skóla) á Hvanneyri
Allir velkomnir
Fræðsluerindi Landbúnaðar-
háskóla Íslands á Keldnaholti
Mánudaginn 5. desember mun Hákon
Sigurgrímsson, skrifstofustjóri í
landbúnaðarráðuneytinu vera í
Málstofu með umræðuefnið:
„Hvað er landbúnaður?”
Inntökuviðtöl vegna náms á
kvikmyndabraut vorönn 2006
verða haldin 5. til 9. desember.
Umsækjendur verða að hafa
lokið 30 einingum úr framhalds-
skóla en ekki er gerð krafa um
reynslu í kvikmyndagerð.
Leitað er að fjölbreyttum hópi
nemenda með ólíkan bakgrunn,
þar sem saman fer brennandi
áhugi á kvikmyndum og
sjónvarpi, sköpunargleði
og dugnaður.
Upplýsingar um hverjir hljóta
inngöngu munu liggja fyrir
13. desember.
| Kvikmyndaskóli Íslands | Laugavegi 176 Reykjavík |
| Sími 5333309 | Tölvupóstur: kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is |
Nánari upplýsingar um
námið á heimasíðu skólans
kvikmyndaskoli . is
Þrjár systur er ástríðufulltragikómedía um ungt fólkí leit að hamingju og ást umleið og það gerir allt til að
flýja raunveruleikann, hvort sem er á
vit drauma, fortíðar eða framtíðar.
Þar segir af Prozorov systkinunum,
Olgu, Möshu, Irinu og Andrei sem
láta fyrirberast á ættarsetri foreldra
sinna og láta sig dreyma um betra líf,
helst í stórborginni Moskvu. Leik-
stjóri verksins er Harpa Arnardóttir
en Nemendaleikhúsið í ár skipa þau
Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhanns-
dóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir,
Jörundur Ragnarsson, Magnea
Björk Valdimarsdóttir, Stefán Hall-
ur Stefánsson, Sveinn Ólafur Gunn-
arsson og Víðir Guðmundsson. Leik-
ararnir Árni Pétur Guðjónsson,
Björn Ingi Hilmarsson og Kristbjörg
Kjeld veita Nemendaleikhúsinu liðs-
styrk að þessu sinni.
Krefjandi leiktækni
Blaðamaður sest niður með þrem-
ur fulltrúum hópsins, þeim Jörundi,
Halldóru og Stefáni Halli er tími
gefst í hádegishléi milli stífra æfinga.
Við tyllum okkur niður í gerð-
arlegum hægindastólum í miðri leik-
myndinni á Litla sviðinu í Borg-
arleikhúsinu, en leikmyndin hefur
tekið á sig form sexhyrnings á hring-
laga sviði sem umkringt er áhorf-
endapöllum. Viðmælendurnir segja
leikferlið hafa verið ákaflega stíft, en
að sama skapi lærdómsríkt, og hafi
verið gaman að takast á við hið
margbrotna en sígilda leikverk
Tsjekhovs eftir að hafa fengið að
spreyta sig á frumsömdu íslensku
verki. „Við höfum lært mikið af báð-
um ferlunum. Leiktæknilega séð eru
þetta gjörólík ferli og er sú leið sem
Harpa fer með okkur í þessu verki
ákaflega krefjandi. Við erum bæði að
steypa okkur ofan í ákaflega flókið
og merkilegt verk og þurfum jafn-
framt að geta miðlað í allar áttir úr
þessum hring sem sviðsmyndin er. Í
hefðbundnu leikhúsi leikur maður
bara í eina átt, en hér erum við að
leika í allar áttir sem þýðir að fók-
usinn þarf að vera opinn allan hring-
inn. Þannig verður maður að hafa
ótal þætti í huga jafnframt því að
leggja grunn að persónusköpun,
halda sambandi við áhorfendur og
halda orkunni í hópnum. Það er því
meira en að segja það að flytja verkið
í þessum aðstæðum,“ segir Stefán
Hallur og hlær.
Þau bæta því við að með því að
stíga talsvert ákveðið út fyrir hina
realísku umgjörð stofudramans, leyfi
leikmyndin alls kyns leik með merk-
ingu verksins. „Þótt leikmyndin sé
krefjandi býður hún líka upp á óend-
anlega margar lausnir,“ segir Jör-
undur. Halldóra bætir því við að
Harpa Arnardóttir leikstjóri hafi
lagt mikla áherslu á spuna í æf-
ingaferlinu. „Ekkert var niðurneglt
nema grunndrættir verksins, og hef-
ur það því fengið svigrúm til að
þroskast í gegnum æfingatímann.
Vinnan með Hörpu og öllum sem
koma að sýningunni hefur verið ein-
staklega lærdómsrík enda einstakt
hæfileikafólk þar á ferð. Svo má ekki
gleyma hljómsveitinni Strakovsky
Horo sem leikur stórt hlutverki í
sýningunni en þau koma með dásam-
lega orku inn í rýmið.“
Sígilt en nútímalegt
Persónurnar sem viðmælendurnir
leika, mynda ástarþríhyrning í verk-
inu. Halldóra fer með hlutverk mið-
systurinnar Olgu Pozorov, Jörundur
leikur eiginmann hennar, kennarann
Kulygin en Stefán Hallur fer með
hlutverk Vershinin undirofursta sem
hin óhamingjusamlega gifta Olga á í
ástarsambandi við.
Stefán Hallur segir verkið gríð-
arlega margbrotið og hafi það verið
upplifun út af fyrir sig að kafa ofan í
það og kynnast víddum þess. „Þó svo
að þetta sé hádramatískt verk, sem
fjallar um hinar stóru spurningar
lífsins, s.s. hamingjuleitina, ástina og
valkostina í lífinu, þá eru persón-
urnar ákaflega nútímalegar, einmitt
vegna þess að þær eru að glíma við
tilfinningar sem við þekkjum svo vel.
Þetta eru þeir þættir verksins sem
gera það að verkum að það hefur lif-
að í þessi rúmu hundrað ár sem liðin
eru frá því að það var skrifað.“
Halldóra bætir við að samhliða því
að vera mjög nútímalegt fjalli verkið
um ákveðið tímabil í sögunni. „Systk-
inin láta fyrirberast á heimili for-
eldra sinna sem fallin eru frá. Olga er
í raun flutt að heiman er engu að síð-
ur alltaf í föðurhúsunum. Æskuheim-
ilið er arfurinn frá foreldrunum og er
það í raun það eina sem þau eiga eftir
af einhvers konar hástétt sem þau
tilheyra. Systurnar reyna að halda
uppi slíkri ímynd gagnvart bæjar-
búum en í raun er það fals, því ekkert
er eftir af auðnum nema húsið.“
Jörundur: Það sem gerir verkið
svo kunnulegt er að persónurnar tala
stöðugt en aðhafast lítið í málunum.
Þær tala í raun þvert á tilfinningar
sínar og langanir. Og á meðan líður
tíminn. Það má kannski segja að
verkið fjalli um það sem John Lenn-
on orðaði svo eftirminnilega: „Life is
what happens when you are making
other plans.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Nemendaleikhúsið frumsýnir hið ástríðufulla verk Antons Tsjekhovs Þrjár systur í kvöld.
Lífsspeki Lennons í Tsjekhov
Nemendaleikhúsið er
mætt aftur á fjalirnar
með uppfærslu á einu
af merkustu leik-
verkum 20. aldarinn-
ar, Þremur systrum
eftir Anton Tsjekhov.
Frumsýningin er í
kvöld kl. 20.
Eftir Heiðu Jóhannsdóttur
heida@mbl.is