Morgunblaðið - 04.12.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 49
UMRÆÐAN
Í NÆSTU viku, hinn 10. desem-
ber nk., er alþjóðlegi mannrétt-
indadagurinn haldinn hátíðlegur. Í
ár eru 57 ár liðin frá því mannrétt-
indayfirlýsing Sam-
einuðu þjóðanna var
samþykkt. Á sama
tíma standa yfir á Al-
þingi umræður um
fjárlagafrumvarp árs-
ins 2006. Margir Ís-
lendingar og mann-
réttindastofnanir í
Evrópu fylgjast með
furðu með þróuninni
hér á landi; meðan
aðrar mannréttinda-
stofnanir undirbúa há-
tíðahöld vegna mann-
réttindadagsins blasir
lokun við Mannréttindaskrifstofu
Íslands vegna þess að ekki fæst
nægt fé til starfseminnar.
Þetta er dapurlegt ástand. Vil ég
því hvetja ég alla þingmenn til að
beita sér fyrir því að beinn fjár-
stuðningur við Mannréttinda-
skrifstofu Íslands verði tryggður
en skrifstofan hefur um árabil
unnið að eflingu mannréttinda hér
á landi – þar til fyrir skömmu –
með opinberum stuðningi.
Um daginn var haldin ráðstefna
í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yf-
irskriftinni: „Hvað getur ungt fólk
lagt af mörkum til friðar- og
mannréttinda á 21. öldinni sem
einstaklingar?“ Soka-gakkai
(Búddistafélagið) hafði frumkvæði
að skipulagningu ráðstefnunnar, í
samstarfi við UNICEF, Rauða
krossinn o.fl. Ráðstefnan var fjöl-
menn og mér fannst stórkostlegt
að sjá hversu virkan áhuga ungt
fólk hefur á mannréttinda- og frið-
armálum og hversu áfjáð það er í
að leggja sitt af mörk-
um. Ljóst er að fram-
tíð þjóðarinnar er
björt ef hún er falin
þessu kraftmikla hug-
sjónafólki.
Ég fékk tækifæri til
að segja nokkur orð
sem gamalmenni, svo
ég deildi speki minni
með ungmennunum.
Hún er sú að mann-
réttindi eru ekki eins
fjarlæg og fræðileg og
margir halda, heldur
eru þau áþreifanleg
og persónuleg. Mannréttinda-
yfirlýsing Sþ er kannski tákn um
háleit markmið en birting mann-
réttindamála er í raun oftast mjög
áþreifanleg og persónuleg. Þau
varða mig eða þig. Við þurfum að
vera vakandi og láta mannréttinda-
mál okkur varða í daglegu lífi okk-
ar.
Í þessu samhengi er það áþreif-
anlegt mannréttindamál dagsins
hvort MRSÍ getur haldið áfram
mikilvægri starfsemi sinni eða
ekki. Í Vestur-Evrópu er engin
þjóð sem ekki heldur úti sjálf-
stæðri mannréttindastofnun. Fyrir
smáþjóðfélag eins og Ísland er
bersýnilega nauðsynlegt að ríkið
styðji Mannréttindaskrifstofuna
fjárhagslega án þess þó að vilja
hafa áhrif á starf hennar. Ef
MRSÍ þarf að leggja upp laupana
verður engin sjálfstæð mannrétt-
indastofnun hérlendis er starfar að
mannréttindum á heildstæðan hátt.
Hvert verður svarið þegar kom-
andi kynslóð spyr: „Af hverju eig-
um við enga sjálfstæða mannrétt-
indastofnun á Íslandi?“
Ég treysti þingheimi til að koma
í veg fyrir að Mannréttindskrif-
stofunni verði lokað. Jafnframt vil
ég biðja alla í þjóðfélaginu að
fylgjast með fjárlagafrumvarpinu
og framtíð MRSÍ en starfsemi
hennar snýst um að vernda rétt-
indi OKKAR. Sérstaklega vil ég
hvetja ungt fólk til að skoða málið
og taka þátt í að efla virðingu fyrir
mannréttindum á Íslandi. Þetta er
þjóðþrifamál og hvert og eitt ykk-
ar getur lagt sitt af mörkum.
Hvað ætlar þú að gera
til að efla mannréttindi?
Toshiki Toma fjallar um
fjármál Mannréttindaskrifstofu
Íslands ’Ég treysti þingheimitil að koma í veg fyrir að
Mannréttindaskrifstof-
unni verði lokað.‘
Toshiki Toma
Höfundur er prestur innflytjenda.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
Fréttir á SMS
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
YSTASEL - VEL STAÐSETT EINBÝLI
Sérlega fallegt og vandað 227 fm einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum
42,2 fm bílskúr og fallegum og grónum
garði. Eignin, sem er á tveimur hæðum,
skiptist þannig: Efri hæð: Anddyri, hol,
borðstofa, eldhús, rúmgóð stofa, fjögur
herbergi og baðherbergi. Neðri hæð: Bað-
herbergi, sauna, þvottahús, tómstundaher-
bergi og hjónaherbergi með fataherbergi.
Lóðin er stór, fullfrágengin og falleg. Húsið
var nýlega einangrað og múrað að utan og
lítur mjög vel út. Örstutt er í Ölduselsskóla
og leikskóla. V. 53 m. 5434
AUSTURGERÐI - LAUST STRAX
Höfum fengið í sölu fallegt og vel skipulagt
hús staðsett á útsýnisstað rétt við Foss-
voginn. Arkitekt hússins er Skarphéðinn
Jóhannsson. Á efri hæð er innbyggður bíl-
skúr, forstofuherbergi, eldhús, borðstofa,
stofa, baðherbergi, þvottahús og tvö
svefnherbergi. Á neðri hæð er forstofa,
geymsla, tvö herbergi (notað sem ein stofa
í dag), baðherbergi, sjónvarpsherbergi og
svefnherbergi. Sérinngangur er inná neðri
hæðina og auðvelt að útbúa þar séríbúð.
Glæsilegt útsýni og stutt í gönguleiðir. V.
54,8 m. 5436
LAUGATEIGUR - NEÐRI SÉRHÆÐ
Falleg u.þ.b. 130 fm neðri sérhæð í botn-
langa við Laugateig í Reykjavík, auk 38,0 fm
stórs bílskúrs. Eignin skiptist í forstofu, hol,
tvennar stofur, eldhús, baðherbergi og tvö
herbergi. Sérinngangur. Rúmgóður bílskúr
með gryfju. V. 29,9 m. 5293
TÓMASARHAGI - LAUS STRAX
Rúmgóð 3ja herbergja 81 fm íbúð í kjallara
með sérinngangi í fallegu húsi á eftirsóttum
stað í vesturbænum. Íbúðin er laus strax og
skiptist þannig: Anddyri, hol, stofa, tvö
svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Í
sameign er þvottahús og þrjár litlar sér-
geymslur. V. 16,5 m. 5480
FRAMNESVEGUR
2ja herbergja nýstandsett glæsileg íbúð,
sem skiptist í hol, herbergi, baðherbergi,
stofu og eldhús. Íbúðin er öll nýlega tekin í
gegn að innan. Húsið hefur einnig verið
standsett að utan sem innan. Sérgeymsla
fylgir í kjallara. V. 15,7 m. 5479
RAUÐHAMRAR - M. BÍLSKÚR
Falleg 4ra herbergja 126 fm endaíbúð á 2.
hæð ásamt 20,5 fm bílskúr. Íbúðin skiptist
m.a. í hol, þvottaherbergi, þrjú góð svefn-
herbergi, stóra stofu, eldhús og bað-
herbergi. Í sameign er m.a. geymsla, hjóla-
geymsla o.fl. Sérgeymsla. V. 28,9 m. 5416
KLEPPSVEGUR - MEÐ ÚTSÝNI
Falleg og björt 92 fm endaíbúð á 7. hæð í
lyftublokk við Kleppsveginn með frábæru
útsýni til þriggja átta. Eignin skiptist í hol,
þrjú herbergi, stofu, baðherbergi og eldhús.
Stórar vinkilsvalir eru út af stofunni. Parket á
gólfum. V. 19,9 m. 5308
GRUNDARSTÍGUR - LAUS STRAX
Björt og falleg tveggja herbergja útsýnisíbúð
á 3. hæð í fallegu steinhús í Reykjavík.
Íbúðin er laus strax. V. 12,9 m. 5478
DUGGUVOGUR - GÓÐ AÐKOMA
Atvinnuhúsnæði við Dugguvog. Komið er
að húsnæðinu frá Kænuvogi. Fyrir framan
húsið er stór malarplan sem er bundið sér-
afnotarétti fyrir þennan eignarhluta. Húsið er
rúmgott og er með innkeyrsluhurð. Gólf eru
stíflökkuð og er léttur milliveggur sem skipt-
ir húsnæðinu í tvennt. V. 13,5 m. 5475
Kristján Ólafsson, hrl. og löggildur
fasteignasali www.klettur.is
GLÆSILEG SÝNINGARÍBÚÐ VIÐ
ÁLFKONUHVARF 33-37 VIÐ ELLIÐAVATN Í KÓPAVOGI
Hér er um að ræða 94-99 fm íbúðir á öllum hæðum
hússins. Íbúðunum er skilað fullbúnum án gólfefna, þó
er flísalagt á þvottahúsi og baði. Með hverri íbúð fylgir
stæði í bílageymslu. Íbúðirnar eru til afhendingar í des.
2005/jan. 2006. Ásett verð er frá 21,5 millj.
Möguleiki er á að fá íbúðirnar afhentar lengra
komnar með öllum gólfefnum, lýsingu í loftum,
gluggatjöldum og heimilistækjum. Nánari upplýs-
ingar um verð og afhendingartíma er hægt að fá
hjá sölumönnum Kletts fasteignasölu.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
LÆKJARHJALLI - PARHÚS
Vorum að fá í einkasölu þetta glæsilega 183 fm parhús ásamt 32 fm bílskúr eða alls
215 fm. Lóðin við húsið er hönnuð af arkitekt og er öll hin glæsilegasta, miklir sólpallar
og hellulögn með hita undir, heitur pottur, skjólgirðingar, gosbrunnur o.fl. Húsið skiptist
þannig að gengið er inn á neðri hæðina, þar eru 4 mjög stór herbergi, baðherbergi og
sturtuaðstaða fyrir heita pottinn. Efri hæðin skiptist í góðar stofur með mikilli lofthæð,
innbyggð lýsing, suðursvalir, vandað eldhús, hjónaherbergi og mjög stórt baðherbergi
með hornkari og sturtu. Vandað massíft heillímt parket er á nánast öllu húsinu, vandað-
ir miklir skápar og allur frágangur til fyrirmyndar. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Verð 47,0 millj. 3492