Fréttablaðið - 20.01.2003, Side 2
2 20. janúar 2003 MÁNUDAGUR
EVRÓPA
Páll Óskar Hjálmtýsson vegna andláts Maurice
Gibb í Bee Gees fyrir viku síðan.
Tónlistarheimurinn og þá sérstaklega
diskóheimurinn missti mikið. Það er alltaf
sorglegt þegar fólk deyr svona langt fyrir
aldur fram einsog hann Maurice Gibb gerði.
Ég segi bara eins og Bibba á Brávallagöt-
unni maður fær bara tár í hálsinn við til-
hugsunina.
SPURNING DAGSINS
Ertu hættur að gráta?
SKÓGARELDAR Yfirvöld í Canberra,
höfuðborg Ástralíu, hafa lýst yfir
neyðarástandi vegna gífurlegra
skógarelda sem geisað hafa í út-
jaðri borgarinnar undanfarna
daga. Um 400 manns eru heimilis-
lausir eftir að hús þeirra hafa orð-
ið eldinum að bráð og fjórir hafa
látið lífið. Auk þess hafa þúsundir
orðið að yfirgefa heimili sín og
fjölmargir þurft á læknishjálp að
halda vegna brunasára og reyk-
eitrunar.
Skógareldarnir eru þeir mestu
sem geisað hafa í Canberra síðan
borgin byggðist. Þeir kviknuðu
fyrir um viku síðan þegar há tré í
þjóðgarði í grennd við borgina
urðu fyrir eldingum en vegna
hvassviðris og óhagstæðrar vind-
áttar breiddust eldarnir út í átt til
borgarinnar með ógnarhraða. Á
laugardaginn höfðu logarnir læst
klónum í tré og íbúðarhús í út-
hverfum Canberra og síðan hafa
slökkviliðsmenn háð harða bar-
áttu við náttúruöflin í tilraun sinni
til þess að hefta útbreiðslu eld-
anna. Síðdegis í gær töldu þeir sig
hafa náð tökum á eldunum en ótt-
ast var að hættuástand myndi
skapast á ný í kjölfar aukins vind-
hraða á mánudeginum.
Til að bæta gráu ofan á svart
hefur aðalskolpstöð borgarinnar
orðið fyrir skemmdum af völdum
eldanna. Búist er við því að innan
skamms muni skolp flæða í nær-
liggjandi á og valda gífurlegu um-
hverfistjóni ef ekki tekst að laga
skemmdirnar nú þegar.
Yfirvöld hafa reynt eftir
fremsta megni að róa almenning
en umfang eldanna er slíkt að
slökkviliðsmenn hafa ekki ráðið
við að sinna öllum svæðum í einu.
Því hafa íbúar víða tekið málin í
sínar hendur og ráðist gegn logun-
um með garðslöngur og fötur með
sundlaugarvatni að vopni. Vitað er
að einn maður lést af völdum reyk-
eitrunar þegar hann reyndi að
bjarga heimili sínu og fjölmargir
hafa hlotið alvarleg meiðsl í til-
raun sinni til að koma í veg fyrir að
hús þeirra yrðu eldinum að bráð.
Ekki er hægt að segja að skóg-
areldarnir í Canberra hafi komið
þjóðinni með öllu í opna skjöldu.
Varla hefur fallið dropi úr lofti í
landinu svo mánuðum skiptir og
hefur þessi mikla þurrkatíð skilið
jörðina eftir berskjaldaða. Upp-
þornaður gróðurinn er afar eld-
fimur og kvikni neisti í einu strái
er hann fljótur að verða að miklu
báli. Þegar logarnir svo ná til
gúmmítrjánna sem í er olía er voð-
inn vís. ■
Ótti og örvænting
Skógareldar hafa geisað víða í Ástralíu síðustu misseri í kjölfar mikillar
þurrkatíðar í landinu. Nú er svo komið að höfuðborg landsins á í vök
að verjast vegna elda og ríkir þar ófremdarástand sem enn sér ekki
fyrir endann á.
Í LJÓSUM LOGUM
Hátt í 400 manns eru heimilislausir eftir mestu skógarelda sem geisað hafa á svæðinu frá
því borgin byggðist. Íbúar í úthverfum borgarinnar hafa þurft að horfa á hús sín fuðra upp
á örskotsstundu án þess að fá rönd við reist.
STJÓRNMÁL „Þetta endurspeglar
kröfu um breytingar. Fólk vill sjá
breytt stjórnarmynstur. Þetta
gerir miklar væntingar til Sam-
fylkingarinnar og okkar sem fyrir
hana störfum. Við þurfum að sýna
að við stöndum undir þeim,“ segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um
skoðanakönnun Fréttablaðsins
þar sem fram kemur að tæplega
50% vildu sjá hana sem forsætis-
ráðherra eftir kosningar í vor.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar
er stuðningurinn sem hún fær í
nýrri könnun Fréttablaðsins mik-
ilvægur. Hann sýni að hún eigi er-
indi. „Ég hef verið að taka tals-
verða áhættu – bæði persónulega
og pólitískt. Þetta hefur verið erf-
iður og átakasamur tími þannig að
þessi viðbrögð sem þarna koma
fram eru mér því mjög dýrmæt
og hvetja mig til dáða,“ segir hún.
Sumum sýnist sem alþingis-
kosningarnar í vor stefni í kosn-
ingu um það hvort Ingibjörg Sól-
rún eða Davíð Oddsson sest í stól
forsætisráðherra. Umræðan er
sögð snúast um menn á kostnað
málefna:
„Þetta snýst ekki um okkur
sem einstaklinga heldur fyrst og
fremst okkur sem tákn fyrir mis-
munandi málefnastöðu. Þetta
snýst um mismunandi vinnu-
brögð, mismunandi stjórnunarstíl
og mismunandi framtíðarsýn,“
segir Ingibjörg Sólrún. ■
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Endurspeglar kröfu
um breytingar
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Fráfarandi borgarstjóri segir komandi al-
þingiskosningar munu snúast um mis-
munandi vinnubrögð og framtíðarsýn.
Steingrímur J. Sigfússon:
Of mikil
áhersla á
menn
STJÓRNMÁL Umræðan er farin að
snúast of mikið um menn í stað
málefna að mati Steingríms J. Sig-
fússonar, formanns Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.
„Mér finnst menn vera komnir
langt fram úr sér í þessari um-
ræðu og það er alveg á mörkunum
að maður fái sig til að taka þátt í
þessu,“ segir Steingrímur og vís-
ar til tíðra skoðanakannanna. Um
yfirburðafylgi Davíðs Oddssonar
og Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur segir hann: „Það er búið að
stilla þessu svona upp og fjölmiðl-
arnir eiga stóran þátt í því. Fólk
virðist bara vera að bregðast við
þessu og því finnst kannski eins
og þetta séu einu kostirnir sem í
boði eru. Ætli raunveruleikinn
geti ekki átt eftir að reynast ann-
ar í raunheimi stjórnmálanna.“ ■
LÖGFRÆÐI 28 manns af þeim 173
sem þreyttu próf í almennri lög-
fræði í Lagadeild Háskóla Íslands
á haustmisseri stóðust prófið.
Meðaleinkunn var 4,23 en 5,0 var
algengasta einkunnin. Alls voru
297 skráðir í námskeiðið, 26 voru
fjarverandi, 90 sögðu sig úr prófi
og 8 voru veikir og því féllu 84%
þeirra sem þreyttu prófið.
Ágúst Hrafn Gunnarsson, for-
maður Orators, félags laganema,
segir fallið að þessu sinni vera að-
eins meira en gengur og gerist.
„Það má segja að meginreglan sé
að fallið sé á bilinu 70-75%. Þetta
er þó ekkert óeðlilegt, ekki síst
þegar haft er í huga að kennslu-
fyrirkomulaginu var breytt í
haust og í stað þess að vera með
eitt próf hefur því verið skipt í
þrennt.“
Þriggja eininga próf var þan-
nig lagt fyrir á miðri önn og Ágúst
Hrafn segir það hafa gengið
býsna vel og fallhlutfallið ekki
verið nema um 50%. „Það virðist
því vera að fólk hafi lagt ofurkapp
á þennan hluta en ekki verið nógu
vel í stakk búið fyrir níu eininga
prófið sem var lagt fyrir um
jólin.“ ■
Almenn lögfræði:
Breyttir kennsluhættir og aukið fall
LÖGBERG
28 manns stóðust próf í almennri lögfræði á haustmisseri. Hæsta einkunn var 8,5 en 5
manns voru með einkunnir á bilinu 8,0-8,5. 23 fengu einkunnina 7,0-7,5.
Réttindalaus og ölvaður:
Velti bíl
LÖGREGLA Sextán ára piltur velti
bifreið á Reykjanesbraut, við
Innri-Njarðvík, snemma í gær-
morgun. Hann var með jafnaldra
sínum í bílnum og er talið að báð-
ir hafi verið ölvaðir. Þeir hlupu af
vettvangi en náðust skammt frá
slysstaðnum. Lögregla telur að
drengurinn hafi misst stjórn á
bílnum í hálku en hann fór eina
veltu og hafnaði utan vegar. Ann-
ar drengurinn skrámaðist aðeins
en annars sluppu þeir ómeiddir. ■
FLEIRI HANDTÖKUR Í BRETLANDI
Yfirmaður bresku lögreglunnar
segir marga undir eftirliti vegna
gruns um aðild að hryðjuverka-
samtökunum al Kaída. Vænta
megi að fleiri verði handteknir á
næstu vikum.
RÚTUSLYS Í BÚLGARÍU Sex fórust
þegar tyrknesk rúta fór út af brú
á þjóðvegi í suðurhluta Búlgaríu.
Rútan hrapaði um 70 m og
steyptist í á. Bílstjórinn einn lifði
slysið af. Gaf hann lögreglunni
þá skýringu að flutningabíll hefði
keyrt utan í rútuna.
Jón Kristjánsson:
Endurspeglar
umræðuna
STJÓRNMÁL Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra telur mikla fjöl-
miðlaumræðu um Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur ráða mestu um
að tæplega helmingur þeirra sem
svöruðu könnun Fréttablaðsins
vildi að hún yrði forsætisráð-
herra eftir næstu kosningar.
Hann gerir því ráð fyrir að fleiri
menn eigi eftir að koma inn í
myndina. „Ég er því ekki viss um
að þessar sveiflur endist til fram-
búðar. Skoðanakannanir endur-
spegla augnablikið og umræðan
um Ingibjörgu Sólrúnu hefur
verið stanslaus undanfarið. Ég
geri ráð fyrir að menn sæki í sig
veðrið þegar frá líður og þá komi
fleiri möguleikar inn í þessa
mynd.“ ■
Sigríður A. Þórðardóttir:
Ótímabærar
vangaveltur
STJÓRNMÁL Sigríður Anna Þórðar-
dóttir, þingflokksformaður Sjálf-
stæðisflokksins, tekur skoðana-
könnunum með fyrirvara. „Ég held
að það sé ekki hægt að ráða í þessa
hluti. Það hefur verið mikið um
skoðanakannanir undanfarið. Kosn-
ingabaráttan er ekki hafin og það er
tíminn fram að kosningum sem mun
ráða úrslitum. Það er ekki tímabært
að velta vöngum yfir því núna hver
verður forsætisráðherra að loknum
kosningum. Ég vil þó vekja athygli
á því að staða Sjálfstæðisflokksins
er alltaf mjög góð í öllum könnun-
um, þrátt fyrir það hversu mis-
vísandi þær hafa verið.“ ■
Fyrirtæki:
Mega ekki
skoða póst
PERSÓNUVERND Persónuvernd segir
fyrirtæki eitt hafa brotið lög um
persónuupplýsingar með því að
skoða tölvupóst konu sem sagt
hafði verið upp störfum.
Konan átti að fá laun en ekki að
vinna uppsagnarfrestinn. Nokkru
síðar sagði fyrirtækið konuna
hafa, á meðan hún var enn í starfi,
gerst seka um trúnaðarbrest með
miklum tölvupóstsamskiptum við
fyrrum samstarfskonu hjá fyrir-
tækinu. Hún fengi því ekki launin
greidd. ■