Fréttablaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 6
6 20. janúar 2003 MÁNUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Hvaða sjónvarpsþáttur hefur verið sýndur hvað lengst í bandarísku sjónvarpi? Hafnfirsk rokkhljómsveit tekur þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hvað heitir hún? Hvað heitir verjandi Árna Johnsen? BÝÐUR FJÖLMIÐLUM BIRGINN Gerhard Schröder, sem er fjórgiftur, berst ákaft gegn allri fjölmiðlaumfjöllun um einkalíf sitt og konunnar sinnar. Þýskir dómstólar: Vilja hlífa Schröder LONDON, AP Breskt slúðurblað sem staðhæft hefur að Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, eigi í hjónabandserfiðleikum neit- ar að fylgja þýskum dómsúrskurði þar sem kveðið er á um að blaðið skuli umsvifalaust hætta að fjalla um málið. Í leiðara blaðsins, The Mail on Sunday, var því haldið fram að þýskir dómstólar hefðu ekki völd til þess að banna bresku dagblaði að birta greinar um ákveðin málefni. Enn fremur benti blaðið á að vegna auðs og valda Þýskalands innan Evrópu hefðu gjörðir stjórnmálamanna landsins áhrif á íbúa álfunnar allrar. Fjölmörg þýsk dagblöð hafa vitnað í grein Mail on Sunday um hjónabandserfiðleika kanslarans. Schröder hefur hótað að hefja mál- sókn á hendur blöðunum ef þau fjalla frekar um málið enda heldur hann því fram að staðhæfingar breska blaðsins séu úr lausu lofti gripnar. ■ VIÐSKIPTI „Það er auðvitað miður að svona mál komi upp. En það er einu sinni þannig að þegar menn eru að glíma við stór mál koma upp ágreiningsatriði. Við því er ósköp lítið að segja – það einfald- lega fylgir þessu,“ segir Magnús Gunnarsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbankans, um 4,5 milljóna króna sekt sem Kaup- höll Íslands hefur lagt á bank- ann. Sektin er vegna framvirks samnings sem Búnaðarbankinn gerði í fyrrasumar við Jón Ás- geir Jóhannesson og fleiri um viðskipti á hlutabréfum í Fjár- festingarfélaginu Straumi. Kaup- höllin telur að bankinn hefði, sem skráð fyrirtæki á opinberum hlutabréfamarkaði, átt að upp- lýsa opinberlega um samninginn við Jón Ásgeir. Því mótmælir Búnaðarbankinn á grundvelli þess að Straumur sé hlutabréfa- sjóður sem svokallaðar flöggun- arreglur gildi ekki um. Kauphöll- in segir á móti að Straumur hafi ekki starfsleyfi sem verðbréfa- sjóður og sé því ekki undanþeg- inn flöggunarreglunum. Magnús segir stjórnendur Búnaðarbankans ekkert hafa hist yfir helgina. Frekari viðbrögð bankans verði vafalaust rædd á fundi bankaráðsins í dag. ■ IÐNAÐUR „Við erum á þröskuldi þess að glata mikilvægri þekkingu úr landi. Ég sé ekki að greinin nái að lifa af nema til komi óbeinar stuðningsaðgerðir,“ segir Örn Friðriksson, for- maður Félags járn- iðnaðarmanna, og á þar við þann hluta málmiðnaðar sem snýr að skipasmíð- um. Hann bendir á að á sama tíma og veru- lega hafi dregið úr styrkjum til skipasmíðaiðn- aðar í Evrópusambandslönd- unum hafi óbeinar stuðnings- aðgerðir komið í staðinn. Samkeppnisstaðan sé því enn ójöfn á flestum sviðum iðnað- arins. Segja má að málmiðnaðurinn skiptist í þrennt. Smíði á hátækni- búnaði hefur farið vaxandi undan- farin ár þó samdráttar hafi gætt á síðustu mánuðum. Þá er almenn þjónusta málmiðnaðarmanna, svo sem vélaviðgerðir og stálgrindar- hús og fleira, þar var ástandið þokkalegt í fyrra en útlitið er ekki bjart núna. Loks er það skipa- smíðaiðnaðurinn, viðgerðir, endur- bætur og nýsmíði. „Þar hefur verið stöðugt undan- hald og sér ekki fyrir endann á því. Þó er ein ánægjuleg undantekning. Fyrirtæki í Hafnarfirði hefur að undanförnu smíðað báta fyrir Íra og Færeyinga og hefur skapað sér verkefni fram á sumar,“ segir Örn. Hann bendir á að endurbætur og nýsmíði hafi á undanförnum árum farið til erlendra skipa- smíðastöðva. Nýlegt dæmi er end- urbætur á varðskipum Landhelg- isgæslunnar og svo standa fyrir dyrum viðgerðir á rannsóknaskip- inu Bjarna Sæmundssyni. Þar átti erlend skipasmíðastöð lægsta til- boð en ákvörðun um hvar verkið verður framkvæmt liggur ekki fyrir. „Nú skiptir miklu máli að þetta gangi með Bjarna Sæmundsson og ég hef grun um að ekki séu öll kurl komin til grafar hvað það varðar,“ segir Örn og bætir við að menn verði að reikna með öllum kostnaði þegar afstaða er tekin til tilboða í viðgerðir og endurbætur. Það kosti sitt að sigla skipunum út og heim aftur, uppihald eftirlitsmanna kosti líka peninga og síðast en ekki síst þurfi að taka tillit til þess virð- isauka sem skapist þegar verkin séu unnin á Íslandi. Virðisaukinn vegna vinnunnar er að minnsta kosti 20% af endurbóta- eða við- gerðakostnaði. „Menn verða að taka tillit til þessa. Svo verða stjórnvöld hér eins og annars staðar að láta fram- kvæma verk sem undir þau heyra, í landinu,“ segir Örn Friðriksson. the@frettabladid.is Formaður bankaráðs Búnaðarbankans um Kauphallarsektina: Ágreiningur fylgir glímu við stór mál MAGNÚS GUNNARSSON Magnús Gunnarsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans, hittir aðra meðlimi ráðs- ins á fundi í dag. Magnús segir miður að upp sé kominn ágreiningur við Kauphöll Íslands um upplýsingaskyldu bankans gagnvart Kauphöllinni. Erum að glata þekkingunni Formaður Félags járniðnaðarmanna kallar eftir óbeinum stuðningsaðgerðum stjórnvalda til styrktar skipasmíðaiðnaði. Að öðrum kosti lifi greinin ekki af. ESB ríkin hafa tekið upp óbeinar aðgerðir í kjölfar afnáms ríkisstyrkja. ÖRN FRIÐRIKSSON Segir þekkingu í skipasmíðaiðnaði glatast verði ekkert að gert. Hann kallar eftir óbeinum stuðningsaðgerðum stjórnvalda. „Svo verða stjórnvöld hér eins og ann- ars staðar að láta fram- kvæma verk sem undir þau heyra, í landinu.“ Lyfjagjöf í þýsku sjúkrahúsi: Stjórnað með íslensk- um hug- búnaði LYFJAGJÖF St. Elisabeth sjúkrahúsið í Oberhausen í Þýskalandi verður fyrsta sjúkrahúsið þar í landi sem mun ávísa lyfjum og halda utan um lyfjagjöf með þráðlausum lófa- tölvum sem nota hinn íslenska hugbúnað Theriak Therapy System. „Þessi tækni hefur ekki verið mikið notuð í Evrópu,“ segir Gunn- ar Hall, framkvæmdastjóri Teriak, „en þeim mun meira í Bandaríkj- unum. Reynslan þaðan hefur sýnt að með þessari tækni minnkar röng lyfjagjöf um 50%. Þar sem læknirinn getur ávísað lyfjunum strax, á meðan hann er hjá sjúk- lingnum, dregur stórlega úr líkun- um á mistökum. Aðeins þarf að skrá upplýsingar einu sinni og eru þær jafnóðum sendar á rafrænan hátt í apótek sjúkrahúss þar sem lyfjaskammtar eru útbúnir fyrir hvern sjúkling.“ Framleiðsla Theriak fer fram á Íslandi en miðstöð sölu- og mark- aðsstarfsins er í Düsseldorf í Þýskalandi. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.