Fréttablaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 18
18 20. janúar 2003 MÁNUDAGUR
MÁNUDAGUR
20. JANÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
FUNDIR
12.30 Breski heimspekingurinn Jonath-
an Lahey Dornsfield flytur fyrir-
lestur stofu 024 í Listaháskóla Ís-
lands, Laugarnesi, sem hann
nefnir „Video, is it a medium at
all?“ Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku.
20.00 Jonathan Dronsfield, heimspek-
ingur og forstöðumaður listrann-
sóknadeildar Háskólans í South-
ampton, heldur fyrirlestur í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi,
sem hann nefnir „The Place of
the Work of Art“. Fyrirlesturinn er
í tengslum við sýninguna then
...hluti 4 – minni forma. Fyrirlest-
urinn verður fluttur á ensku.
20.30 Saul Traiger, prófessor í heim-
speki, flytur fyrirlestur við Háskól-
ann á Akureyri. Fyrirlesturinn ber
heitið „Þekking, vitund og blái lit-
urinn sem Hume saknaði“ og
fjallar um stöðu litaskynjunar.
TÓNLEIKAR
20.00 Guido Baeumer saxófónleikari og
Aladár Rácz píanóleikari flytja
létta franska tónlist í Safnahúsinu
á Húsavík.
SÝNINGAR
Hitler og hommarnir nefnist sýning
þeirra David McDermott og Peter Mc-
Gough í Listasafni Akureyrar. Sýning
þeirra fjallar um útrýmingu samkyn-
hneigðra á nasistatímanum.
Aftökuherbergi nefnist sýning í Lista-
safni Akureyrar á 30 ljósmyndum eftir
Lucindu Devlin sem teknar voru í
bandarískum fangelsum á tíunda ára-
tugnum.
Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru
Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangs-
efni sýningarinnar eru síðustu máltíðir
fanga, sem teknir hafa verið af lífi í
Bandaríkjunum.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýn-
ing ungra, íslenskra og breskra lista-
manna. Sýningin ber heitið “then
...hluti 4 - minni forma“. Sýningin
stendur til 2. mars.
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, 21 árs
útskriftarnemi af myndlistabraut í Fjöl-
braut í Breiðholti, sýnir ljósmyndir og
skúlptúr í Gallerí Tukt. Sýningin stendur
yfir í tvær vikur.
Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl-
unni í Ásmundarsafni við Sigtún í
Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl.
13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrú-
ar.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari sýnir
sex ljósmyndir á Mokka kaffi. Sýninguna
kallar hann Blátt og rautt. Hún stendur
til 15. febrúar og er opin á opnunartíma
kaffihússins.
Arnar Herbertsson sýnir málverk í Gall-
eríi Sævars Karls. Myndefni listamanns-
ins er fengið úr bókinni ‘Handan góðs
og ills’ eftir Friedrich Nietzsche.
Í Ketilshúsinu á Akureyri stendur yfir
sýningin Veiðimenning í Útnorðri.
Myndlistarmaðurinn Díana Hrafnsdóttir
sýnir leirverk í Gallerý Hár og list - Hjá
Halla rakara, Strandgötu 39, Hafnarfirði.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á 124 ljósmynd-
um frá árunum 1921-81. Ljósmyndar-
arnir eru 41 talsins, allir þýskir og að-
hylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem
fólst í því að myndlist og iðnhönnun
ættu að sameinast í byggingarlistinni.
Sýningin BókList stendur yfir í anddyri
Norræna hússins. Þar sýnir finnska
listakonan Senja Vellonen 22 handunn-
ar bækur. Sýningin stendur til 9. febrúar
og er opin frá kl. 9-17 alla daga nema
sunnudaga frá kl. 12-17.
Bandaríska myndlistarkonan Joan
Backes er með myndlistarsýningu í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Á þessari sýningu beitir
Joan ýmsum miðlum til að koma til
skila vangaveltum sínum um tré og
skóga og það sjónræna viðhorf sem þar
kviknar. Safnið er opið alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17. Sýningunni
lýkur 27. janúar.
Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, var um helgina opnuð
sýning á verkum átta færeyskra lista-
manna. Þetta er sumarsýning Norður-
landahússins í Þórshöfn og nefnist ‘Atl-
antic Visions’ eða HAFSÝN. Safnið er
opið alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17. Sýningunni lýkur 27. janúar.
Rakel Kristinsdóttir sýnir í Kaffi Sólon,
Bankastræti 7a.
Freygerður Dana Kristjánsdóttir sýnir
tvö verk á sýningu sinni í MOJO á Vega-
mótastíg 4. Annað er háðsádeila á fálka-
orðuna, hitt er um rollur á réttum eða
röngum hillum í lífinu. Sýningin stendur
út janúar.
Anna Guðrún Torfadóttir myndlistar-
maður sýnir verk unnin með blandaðri
tækni í Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík.
Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning-
una Án samhengis - allt að klámi í
Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á
árinu 2000. Sýningin stendur út janúar
og er opin á opnunartíma Café Presto,
10-23 virka daga og 12-18 um helgar.
Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur
fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo
nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4.
hæð. Sýningin er opin virka daga frá 9-
17 og stendur til 31. janúar.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju
í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk
unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn-
inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið,
tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms-
kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall-
grímskirkju og stendur til loka febrúar-
mánaðar.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í
Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Íslandsmynd í mótun - áfangar í
kortagerð er yfirskrift sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýnd eru þau kort
sem markað hafa helstu áfanga í leitinni
að réttri mynd landsins. Sýningin stend-
ur þangað til í ágúst.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Guðlaugur Valgarðsson er með sýning-
una Myndir úr lífinu í gluggagalleríinu
að Vatnsstíg 9. Á sýningunni eru átta
ljósmyndir, allar frá síðasta ári.
Sýning á bútasaumsverkum eftir 10
konur stendur nú yfir í Garðabergi, fé-
lagsmiðstöð eldri borgara að Garðatorgi
7 í Garðabæ. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga frá kl. 13 til 17.
Í Ásmundarsafni við Sigtún stendur yfir
sýningin Listin meðal fólksins, þar sem
listferill Ásmundar Sveinssonar er sett-
ur í samhengi við veruleika þess samfé-
lags sem hann bjó og starfaði í. Sýning-
in er opin alla daga klukkan 13-16. Hún
stendur til 20. maí.
MYNDLIST Um helgina opnaði 21
árs myndlistarkona sem er ný-
útskrifuð af myndlistarbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti
fyrstu einkasýningu sína í Gall-
erí Tukt. Þema sýningarinnar er
snerting og áhrif snertingar á
fólk.
„Þetta eru bæði ljósmyndir
af fólki að snerta eitthvað og
skúlptúrar sem fólk getur snert.
Svo er ég líka með boli sem fólk
getur farið í ef það vill,“ segir
Ólöf.
„Ég er búin að vera með
þessa hugmynd í gangi í nokkra
mánuði. Ég vil fyrst og fremst
sýna fram á hve snerting er
mikilvæg. Og hvað það er mikil-
vægt að skynja umhverfið í
gegnum snertingu. Snerting
hefur góð áhrif á alla. Rann-
sóknir hafa til dæmis sýnt fram
á að fólk lýgur síður ef maður
snertir það. Svo þroskast fyrir-
burar miklu betur ef þeir eru
nuddaðir.“
Ólöf Dómhildur hefur tvis-
var tekið þátt í samsýningum
áður. Önnur var í Gallerí Geysi
á síðasta ári, hin í skólanum
hennar í Minnesota í Bandaríkj-
unum árið 1999. Þar var hún
skiptinemi í eitt ár.
Gallerí Tukt er í Hinu húsinu
við Pósthússtræti 3-5. ■
Ung myndlistarkona sýnir í Gallerí Tukt:
Snerting hefur
góð áhrif á alla
ÓLÖF DÓMHILDUR JÓHANNSDÓTTIR
Opnaði fyrstu einkasýningu sína um helgina.
SÝNINGAR
Á Kjarvalsstöðum eru sýnd nokkur verk eftir Jóhannes S. Kjarval úr Kjarvalssafni.
Sýningin er opin alla daga 10-17. Henni lýkur 31. janúar.
FYRIRLESTUR Íslendingarnir Gísli
Bergmann og Birgir Snæbjörn
Birgisson, Þjóðverjinn Stefan
Bottenberg og Bretarnir Andrew
Child, Miles Henderson Smith og
Tom Merry hafa starfað saman
um skeið undir yfirskriftinni
„then“, eða „þá“, sem getur vísað
jafnt til fortíðar sem framtíðar.
Breski heimspekingurinn Jon-
athan Dronsfield skrifaði grein í
sýningarskrá þeirra. Hann flytur
fyrirlestur á Kjarvalsstöðum í
kvöld, þar sem hann ætlar að
bera verk þeirra saman við
myndir málarans Barnett Newm-
an.
Newman málaði abstrakt-
myndir og var upp á sitt besta
upp úr miðri síðustu öld, á
blómaskeiði módernismans.
„Samkvæmt því sem hann segir
sjálfur eru málverkin hans efn-
islegir hlutir án innihalds, þær
vísa ekki til neins utan myndar-
innar,“ segir Dronsfield.
Verkin á Kjarvalsstöðum eru
aftur á móti ekki abstraktverk.
Þetta eru allt myndir af hlutum,
stöðum eða fólki. Dronsfield tel-
ur hins vegar að þegar allt kem-
ur til alls sé hugsanlega lítill eða
enginn munur á þessu tvennu.
„Ég tel að þessir sex ungu
listamenn eigi það sameiginlegt
að hafa sérstakan áhuga á því
hvers konar rými listaverkið er,
bæði rýmið sem þeir sýna í
myndunum og rýmið þar sem
myndirnar eru, það er lista-
safnið.“
Bæði staður og tími listaverka
hafa lengi verið eitt helsta við-
fangsefni Dronsfields í heim-
spekinni. „Í mínum huga snúast
öll heimspekileg og fræðileg
vandamál um tímann, þannig að
ég hef áhuga á tíma listaverks-
ins, bæði tíma mínum sem ég
kem með til listaverksins og
tímanum sem listaverkið gefur
mér.“
Dronsfield bætir því við að
spurningar um stað og tíma lista-
verka séu ekki síður siðferðileg-
ar en fagurfræðilegar. Hann lítur
svo á að öll listaverk, rétt eins og
allt annað sem raunverulegt er,
stilli mönnum upp fyrir ákveðn-
um spurningum, ákveðnum veru-
leika sem þarf að taka afstöðu til.
„Líka þegar menn skilja ekki
listaverk. Hvað gerum við þá?
Hunsum við það, tölum illa um
það eða gerum grín að því? Eða
reynum við að leyfa því að tala til
okkar?“
gudsteinn@frettabladid.is
Siðferði listaverka
Sex ungir listamenn opnuðu um helgina sýningu á Kjarvalsstöðum. Breskur heimspekingur
kom hingað til lands í tilefni af sýningunni og flytur um hana fyrirlestur í kvöld.
JONATHAN DRONSFIELD OG GÍSLI BERGMANN
Breski heimspekingurinn Jonathan Dronsfield kom hingað til lands í tilefni af sýningu Gísla Bergmann og félaga
hans á Kjarvalsstöðum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M