Fréttablaðið - 07.05.2003, Page 2
2 7. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
“Ég ætla að kjósa Framsókn-
arflokkinn.“
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og formaður Framsóknarflokksns, hefur
ekki verið sáttur við ýmis stefnumál síns gamla
flokks eftir að hann yfirgaf brúna.
Spurningdagsins
Steingrímur, hvað ætlar þú að kjósa?
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
sem varð fyrir hrottalegri líkams-
árás á Skeljagranda í fyrrasumar
hefur verið dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir lyfjaþjófnað á Landspítalan-
um.
Tveir bræður um tvítugt ját-
uðu að hafa ráðist á manninn í
upphafi verslunarmannahelgar-
innar. Lögreglan fann hann eftir
ábendingu vitna falinn meðvit-
undarlausan í garði nálægs leik-
skóla. Hann var fluttur með alvar-
lega höfuðáverka á sjúkrahús.
Nokkrum dögum eftir að hann
útskrifaðist af sjúkrahúsinu var
hann mættur þangað aftur, í það
sinnið vegna lyfjamisnotkunar.
Þar var hann síðan staðinn að því
að stela lyfjum og tveimur lyfseð-
ilsblokkum.
Maðurinn hefur verið skjól-
stæðingur Byrgisins frá því í
mars og gerir ráð fyrir að verða
þar næstu mánuði í meðferð.
Dómur er enn ekki fallinn í
máli bræðranna tveggja. Þeir eiga
blóðugan feril tilefnislausra of-
beldisverka og þjófnaða að baki. ■
Erfiður rekstur netmiðla:
Vísir.is
seldur
VIÐSKIPTI Verið er að ganga frá því
að frétta- og dægurvefurinn Vís-
ir.is sem er einn af elstu og
stærstu netmiðlum landsins
verði seldur.
Íris Gunnarsdóttir sem rekur
Femin.is, sem einnig á Vísi.is,
staðfesti í samtali í gær að sala
stæði fyrir dyrum en vildi ekki
gefa nánari upplýsingar að svo
stöddu. Hún lét þó hafa eftir sér
að Femin.is og Vísir.is væru það
ólíkir miðlar að samlegðaráhrif
sem hún hefði vonast til að yrðu
að veruleika hefðu ekki gengið
eftir. ■
FJÁRMÁL FLOKKANNA Framsóknar-
flokkurinn rekur dýrustu kosn-
ingabaráttuna samkvæmt upplýs-
ingum sem Vinstri grænir lögðu
fram í gær.
Vinstri grænir fengu tölulegar
upplýsingar frá Gallup um birt-
ingar á auglýsingum stjórnmála-
flokkanna í sjónvarpi og dagblöð-
um í mars og apríl. Síðan fékk
flokkurinn auglýsingastofu til að
leggja mat á áætlaðan kostnað
með tilliti til þekktra afsláttar-
kjara og kostnaðar við gerð sjón-
varpsauglýsinga. Þá var áætlaður
kostnaður við birtingar frá 1. til
10. maí og var miðað við tvöfalt
fleiri birtingar en að meðaltali á
dag í apríl.
Samkvæmt ofangreindu eyðir
Framsóknarflokkurinn 28 til 29
milljónum króna í auglýsingar í
dagblöðum og sjónvarpi, um 9
milljónum meira en Sjálfstæðis-
flokkurinn og 13 milljónum meira
en Samfylkingin. Vinstri grænir
og Frjálslyndi flokkurinn eyða
miklu minna, eða 2 til 4 milljónum
króna.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, segir að
flokkurinn hafi ákveðið að leggja
þessar upplýsingar fram þar sem
hann telji mikilvægt að þjóðin átti
sig á því hversu mikill munur sé á
flokkunum hvað þetta snertir.
Hann segist líta það alvarlegum
augum að ekki skuli gilda neinar
reglur um fjárreiður flokkanna
hérlendis. Brýnt sé að bæta úr því
þannig að fólk sjái hvaðan flokk-
arnir séu að fá þessa peninga.
Þess ber að geta að í tölum
Vinstri grænna er ekki tekinn inn
í reikninginn kostnaður við aðrar
auglýsingar eins og í útvarpi og
tímaritum. Þá er ekki tekið tillit til
annars kostnaðar svo sem eins og
við útgáfu á kynningarefni og
kostnaðar við fundarhald og
ferðalög.
Hvað Vinstri græna snertir
segir Steingrímur að heildarkostn-
aður flokksins vegna kosningabar-
áttunnar sé um 16,5 milljónir
króna, eða þrefalt meiri en hann
eyðir í auglýsingar. Líklega megi
reikna út kostnað kosningabaráttu
hinna flokkanna með sama hætti.
Ef það er gert kostar kosningabar-
átta Framsóknarflokksins um 90
milljónir króna, Sjálfstæðisflokks-
ins um 60 og Samfylkingarinnar
um 50 milljónir króna.
Steingrímur J. segir að ólíkt
mörgum öðrum flokkum sé bók-
hald Vinstri grænna opið. Ef
flokkurinn fái meira en 300 þús-
und í styrk frá ákveðnum aðila sé
sá aðili tilgreindur í ársreikningi
flokksins.
trausti@frettabladid.is
FJÁRMÁL FLOKKANNA Framsóknar-
flokkurinn mótmælir harðlega
þeim útreikningum sem Vinstri
grænir hafa lagt fram um 28 til 29
milljóna króna auglýsingakostnað
Framsóknarflokksins í dagblöð-
um og sjónvarpi.
Ingvi Jökull Logason, markaðs-
samskiptafræðingur hjá Hér og
nú, segir að frá 1. mars til 4. apríl
hafi flokkurinn eytt rúmum 16
milljónum í auglýsingar í öllum
miðlum, ekki bara dagblöðum og
sjónvarpi. Hann segir að tölur
Vinstri grænna séu því rangar og
svo virðist sem þeir magni tölur
Framsóknarflokksins umfram
aðra. Þá segir hann tölur Vinstri
grænna byggja á röngum forsend-
um. Framsóknarflokkurinn hygg-
ist t.d. ekki tvöfalda auglýsinga-
magn sitt í maí miðað við í apríl.
Ingvi Jökull segir að sam-
kvæmt sinni samantekt sé Fram-
sóknarflokkurinn aðeins hálf-
drættingur á við Samfylkinguna
og Sjálfstæðisflokkinn þegar
komi að auglýsingum í dagblöð-
um. Þá segir hann að Vinstri
grænir hafi ekki tekið með í
reikninginn að framboðin geti
verið að beita mismunandi áætl-
unum um hvenær birtingar eigi
að ná hámarki og svo virðist sem
þeir hafi heldur ekki reiknað með
kunnáttu fagfólks við að hámarka
eftirtekt og lágmarka kostnað. ■
Saddam blankur:
Þurfti gáma
undir allt féð
NEW YORK, AP Blankur Saddam
Hussein sendi son sinn út í banka
rétt áður en innrás bandamanna
hófst í Írak. Tók hann út einn
milljarð Bandaríkjadala og ók
peningunum á brott í þremur gám-
um. Upplýsingadeild Bandaríkja-
hers segist hafa vitneskju um að
vörulestin hafi ekið yfir landa-
mærin við Sýrland en að öðru leyti
er ekki vitað um áfangastaðinn.
Saddam sjálfur gengur enn laus
auk fjölda annarra samstarfs-
manna og líklegt að þeir eigi nú
fyrir helstu nauðsynjum. ■
Verkföll í austurhluta
Þýskalands:
Krefjast 35
tíma vinnu-
viku
FRANKFURT, AP IG Metall, verka-
lýðsfélag þýskra stál- og járniðn-
aðarmanna, hóf verkföll í
nokkrum verksmiðjum í því sem
áður var Austur-Þýskaland til að
krefjast þess að félagsmenn
fengju sömu réttindi og kollegar
þeirra vestanmegin. Vegna slak-
ari skilyrða hafa verkamenn aust-
anmegin fallist á að vinna 3 tím-
um lengur, 38 tíma á viku, en sam-
verkamenn vestanmegin sem að
jafnaði starfa 35 tíma á viku. At-
vinnurekendur segja að þetta sé
nauðsyn þar sem framleiðni sé
mun minni í austurhlutanum.
Atvinnuleysi í austurhluta
Þýskalands er með því hæsta sem
gerist í Evrópu og helmingi meira
en í vesturhlutanum. ■
Danskir dómstólar dæma
verkamönnum í hag:
Mega drekka
í vinnunni
KAUPMANNAHÖFN, AP Danskur dóm-
stóll hefur úrskurðað að þrátt fyr-
ir bann við neyslu áfengis á vinnu-
stöðum í Danmörku sé múrurum
hjá fyrirtæki í Brönderslev heim-
ilt að drekka í ólaunuðum pásum.
Þetta kemur til vegna þess að
samkvæmt dönskum lögum bar
Mogens Jensen, eiganda fyrir-
tækisins sem um ræðir, að semja
við verkamennina um tvær
ólaunaðar pásur sem þeir fá
hvern dag, hvort sem þeim líkar
eða ekki. Það gerði hann ekki og
því úrskurðar rétturinn að verka-
mönnunum sé heimilt að fá sér
bjór þangað til þeir semji sér-
staklega við atvinnurekandann
um annað. ■
Greining Íslandsbanka:
Vaxtahækkun
fram undan
EFNAHAGSMÁL Líklegt er að Seðla-
bankinn hækki stýrivexti sína um
25 til 50 punkta um eða upp úr
miðju ári. Þetta er mat Greiningar
Íslandsbanka á
vaxtaákvörðun-
um næstu miss-
eri.
Í markaðsyfir-
liti deildarinnar
er sagt líklegt að
verðbólgan fari
yfir verðbólgu-
markmið Seðla-
bankans á næsta
ári. Núverandi vaxtastefna bank-
ans sé eftirspurnarhvetjandi og í
ósamræmi við þessa fyrirsjáan-
legu þróun. Því séu sterk rök fyr-
ir því að hækka vexti. Ólíklegt er
þó talið að það verði gert fyrr en
ríkisstjórn næsta kjörtímabils
hefur sett fram stefnu sína í ríkis-
fjármálum. ■
FRAMSÓKN
MÓTMÆLIR
Framsóknarflokkurinn
mótmælir harðlega
þeim útreikningum
sem Vinstri grænir
hafa lagt fram um 28
til 29 milljóna króna
auglýsingakostnað
Framsóknarflokksins.
Framsóknarflokkurinn mótmælir tölum um auglýsingakostnað:
Rangar tölur Vinstri grænna
SEÐLABANKINN
Vaxtahækkun spáð
um eða upp úr
miðju ári.
STÍGURINN VIÐ SKELJAGRANDA
Rúmlega tvítugur maður fannst barinn nær
til ólífis þar sem honum hafði verið varpað
yfir grindverk við þennan stíg í Vesturbæn-
um í fyrrasumar. Maðurinn hefur nú verið
dæmdur fyrir að stela lyfjum á sjúkrahús-
inu sem gerði að sárum hans.
Fórnarlambið á Skeljagranda:
Dæmdur fyrir
stuld á lyfjum
Framsókn rekur
dýrustu baráttuna
Samkvæmt auglýsingastofu fyrir Vinstri græna eyðir Framsóknarflokkurinn 28 til 29 milljónum í
dagblaða- og sjónvarpsauglýsingar. Vinstri grænir eyða 3 til 4 milljónum króna.
VINSTRI GRÆNIR META AUGLÝSINGAKOSTNAÐ FLOKKANNA
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að flokkurinn hafi ákveðið að leggja fram tölur um auglýsingakostnað þar sem
hann telji mikilvægt að þjóðin átti sig á því hversu miklu flokkarnir séu að eyða. Á myndinni eru einnig Tryggvi Friðjónsson, gjaldkeri
flokksins, og Svanhvít Kaaber, framkvæmdastjóri hans.
AUGLÝSINGAR STJÓRNMÁLA-
FLOKKANNA Í DAGBLÖÐUM
OG SJÓNVARPI
Milljónir
Framsóknarflokkur 28,5
Sjálfstæðisflokkur 19,5
Samfylking 16,5
Vinstri grænir 3,5
Frjálslyndir 2,5
Nýtt afl 0,1
Heimild: Vinstrihreyfingin – grænt framboð