Fréttablaðið - 07.05.2003, Side 7
Af hverju?
Börnin eru stærsti auður þjóðarinnar.
Við sem nú kjósum til Alþingis verðum að hugsa til komandi
kynslóða. Miklu skiptir að skapa öllum jafna möguleika.
Þess vegna vill Vinstrihreyfingin - grænt framboð verja
1800 milljónum á ári í að fella niður leikskólagjöld.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og hann á að vera öllum
opinn, óháð efnahag.
Heimur barna er flókinn og líf barna hefur í auknum mæli
færst út af heimilinu. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill
tryggja að öll börn geti stundað heilbrigðar tómstundir, s.s.
íþróttir og listnám. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill
ennfremur auka möguleika foreldra og barna á samveru-
stundum með því að stytta vinnuvikuna.
Við í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði vitum að
í börnunum býr framtíðin. Við viljum góða framtíð.
Kolbrún Halldórsdóttir, 1. sæti Reykjavík norður, Atli Gíslason, 2. sæti Reykjavík norður, Álfheiður Ingadóttir, 2. sæti Reykjavík suður, Ögmundur Jónasson, 1. sæti Reykjavík suður
www.xu.is • vg@vg.is
KJÓSUM RÉTTLÆTI
SAMMÁLA
UM ÓKEYPIS LEIKSKÓLA FYRIR ÖLL BÖRN