Fréttablaðið - 07.05.2003, Síða 9
■ Asía
■ Sjávarútvegur
9MIÐVIKUDAGUR 7. maí 2003
Úrval-Úts‡n hefur nú teki› yfir sölu á Paraiso de Albufeira á Íslandi
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
á mann m.v. 2 fullor›na og 2 börn í
íbú› me› einu svefnherbergi og stofu í 2 vikur.
49.967 kr.*
á mann m.v. 2 fullor›na í íbú› me› svefnherb. og stofu í 2 vikur.
69.855 kr.*
Tvær vikur á ver›i einnar í eftirtaldar fer›ir:
Sérstakt kynningarver› á nokkrum íbú›um
í 1, 2 e›a 3 vikur.
20. maí / 10. og 24. júní / 8. og 22. júlí / 5., 19. og 26. ágúst.
Ver› frá
Ver› frá
Paraiso de Albufeira er 4ra stjörnu íbú›ahótel í göngufæri vi› Laugaveginn
og íbú›ahótelin Paladim og Brisa Sol. Á hótelinu er veitingasta›ur, bar og
gó› a›sta›a fyrir börn. Hótelgar›urinn er glæsilegur me›
gó›ri sólba›sa›stö›u, sundlaug, barnalaug, veitingasta›
og bar. Vel búnar íbú›ir taka 2 til 7 gesti og eru
loftkældar me› eldhúsi, sjónvarpi og síma.
Innifali›: Flug, gisting, flugvallarskattar og akstur til og
frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
10
76
05
/2
00
3
www.samfylking.is
Á FLEYGIFERÐ
Áætlað er að tilraunir með nettengingu í
lestum á milli Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar hefjist í febrúar á næsta ári.
Nettenging í lestum:
Farþegar kom-
ast á Netið
SVÍÞJÓÐ, AP Innan skamms mun
farþegum í lestum á milli Dan-
merkur og Svíþjóðar gefast kost-
ur á því að tengja tölvur sínar
Netinu.
Fyrirhugað er að setja upp að-
gang að breiðbandi í lestum sem
fara á milli Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar. Markmiðið er að fá
fólk í viðskiptaferðum til að velja
járnbrautina fram yfir flugið.
Notast verður við þráðlaust
kerfi sem byggir á gervihnatta-
sambandi ásamt GSM-tengingu. Í
hverjum vagni verður WiFi-tæki
sem tekur við útvarpsbylgjum.
Farþegar sem eru með fistölvur
með viðeigandi búnaði geta síðan
fengið aðgang að Netinu gegn
gjaldi.
Sama tækni er þegar fyrir
hendi á flugvöllum og kaffihúsum
víða um heim. ■
MISLINGAFARALDUR Að minnsta
kosti 38 börn hafa látið lífið af
völdum mislinga á undanförnum
fjórum vikum í afskekktum
fjallahéruðum Nepal. Áætlað er
að um það bil 100 börn til viðbót-
ar hafi veikst af sjúkdómnum.
Yfirvöld hafa sent lækna og
lyfjabirgðir á staðina þar sem
faraldurinn geisar.
FLEIRI KONUR Á ÞING Hart er
deilt á indverska þinginu um laga-
frumvarp þess efnis að þriðjung-
ur þingsæta verði tekinn frá fyrir
konur. Nú sem stendur er hlutur
kvenna á þjóðþinginu aðeins um
tíu prósent. Markmiðið með frum-
varpinu er að auka áhrifamátt
kvenna í samfélagi þar sem karl-
menn fara með völdin.
FRIÐARVERÐLAUNAHAFI Á
FERÐALAGI Eitt ár er liðið frá því
að Aung San Suu Kyi, friðarverð-
launahafi frá Myanmar, var látin
laus úr stofufangelsi. Af því til-
efni hélt Suu Kyi í ferð til norð-
urhluta Myanmar þar sem hún
ætlar að koma á fót svæðisskrif-
stofum fyrir flokk sinn, Þjóðar-
bandalag fyrir lýðræði.
DREIFIKERFI Lagt er til að stjórn-
völd hafi forgöngu um stofnun
sameiginlegs dreifingarfyrirtæk-
is stafræns sjónvarps á Íslandi.
Þetta er mat starfshóps sem
samgönguráðherra skipaði. Hóp-
urinn telur að með þessu móti
verði öll fjárfesting hagkvæmari
en ef hver og einn aðili byggir upp
sitt eigið stafræna dreifikerfi. Auk
þess verði auðveldara fyrir nýja
aðila að koma inn á markaðinn.
Í skýrslu starfshópsins kemur
fram að það sé að verða tímabært
að endurnýja sjónvarpsdreifi-
kerfi á Íslandi. Jafnframt er talið
að stafrænt sjónvarp verði einn af
drifkröftum í upplýsingasamfé-
laginu.
Kostir stafrænnar tækni um-
fram hliðræna eru m.a. aukin
flutningsgeta hverrar rásar og
betri nýting í dreifi- og flutnings-
kerfum. Þá býður hún upp á betri
mynd- og hljóðgæði, auðveldar
samruna við önnur fjarskipti og
gefur möguleiki á gagnvirkni auk
þess sem þráðlaus móttaka á sjón-
varpsefni verður möguleg.
RÍKISÚTVARPIÐ
Í skýrslu starfshópsins kem-
ur fram að það sé að verða
tímabært að endurnýja
sjónvarpsdreifikerfi á Íslandi.
Starfshópur samgönguráðherra skilar tillögum um stafrænt sjónvarp:
Sameiginlegt dreifikerfi
stafræns sjónvarps
TÍUNDI HLUTI Á LAND Búið er að
landa 33.000 tonnum af kolmunna
það sem af er fiskveiðiárinu.
Þetta er ríflega tíundi hluti heild-
araflans, sem er 318.000 tonn. Að
auki hafa erlend skip landað
16.500 tonnum af kolmunna hér.