Fréttablaðið - 07.05.2003, Blaðsíða 16
16 7. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Þjónustuver VÍS svarar fyrirspurnum í
síma 560 5000 eða á
upplysingar@vis.is. Vátryggingafélag
Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík,
www.vis.is
Hvernig
röðum við saman
tryggingunum
okkar?
Mars 2003
Fjölskylduvernd VÍS
Hringdu í síma 560 5000
og fáðu sendan bækling um
fjölskylduvernd VÍS.
Lítið eða stórt, einfalt eða margbrotið
Fjölskylduhagir eru með ýmsu móti en allir eiga það þó sameiginlegt að þurfa
tryggingu við hæfi. Til að koma til móts við mismunandi þarfir býður VÍS mjög breitt
úrval trygginga fyrir fjölskyldur og heimili, því ætti enginn að vera ótryggður. Nýjasta
afurðin í þessum flokki er Festa, sem veitir víðtæka vernd á hagstæðum kjörum.
Það gildir einu hvort heimilið er lítið eða stórt, einfalt eða ríkulega búið. Í því eru
fólgin verðmæti fyrir hvern og einn ef til tjóns kemur. F plús, Festa, Kjarni,
Heimilistrygging og Innbústrygging eru tryggingar ætlaðar einstaklingum og
fjölskyldum. Bótasvið hverrar tryggingar og iðgjöld eru mismunandi þannig að allir
ættu að geta fundið tryggingu við sitt hæfi. Hafðu samband við VÍS og við metum
með þér hvað hentar í þínu tilviki.
Nánari upplýsingar um tryggingarnar er að finna í skilmálum þeirra.
Er eignatrygging fyrir innbú á heimili. Í henni er innbú tryggt gegn áhættu af ýmsu
tagi s.s. bruna, innbroti, ráni og þjófnaði svo fátt eitt sé nefnt.
Innbústrygging tryggir eingöngu innbú fyrir bruna, vatni og innbroti.
Ábyrgðartrygging einstaklings
Þessi trygging tekur til ábyrgðar gagnvart þriðja aðila ef einhver meðlimur í fjölskyldunni
veldur þriðja aðila tjóni sem felur í sér skaðabótaskyldu.
Málskostnaðartrygging
Tryggingin greiðir málskostnað vegna ágreinings í tilteknum einkamálum.
Innbústrygging Verð 6.053 kr. á árieða 504 kr. á mánuðiInnbústrygging *
Heimilistrygging
Verð 6.492 kr. á ári
eða 541 kr. á mánuðiTrygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings *
Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging
Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging
Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging
VÍS fjölskylduvernd Trygging á innbúi
Ágæti kjósandi, Nú styttist íkosningar og er óhætt að
segja að auglýsingar ákveðinna
flokka tröllríði fjölmiðlum hér.
Frjálslyndi flokkurinn hefur frá
stofnun flokksins verið með opið
bókhald á okkar heimasíðu, hvers
vegna eru Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur ekki með opið
bókhald? Við í Frjálslynda flokkn-
um höfum lagt mikla áherslu á
það að allir styrkir yfir 500.000 kr.
séu sjáanlegir í okkar bókhaldi.
Það er mikil hætta á spillingu ef
bókhald er ekki opið og er ég viss
um að núverandi stjórnarflokkar
eru að fá töluvert háa styrki, alla-
vega eru auglýsingar þeirra í fjöl-
miðlum yfirgnæfandi. Ef stjórn-
arflokkarnir hafa unnið svona vel,
og við lifum á góðum tímum þökk
sé þeim, hvers vegna láta þeir
ekki verkin tala og eyða minni
fjármunum í auglýsingar?
Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur verða dæmdir af
verkum sínum. Ég treysti því,
ágæti kjósandi, að þú látir ekki
hugfallast af þeirri glansmynd
sem þessir flokkar láta birtast í
fjölmiðlum núna.
Frjálslyndi flokkurinn hefur
verið hógvær í auglýsingum og
við viljum láta málefnin skipta
máli, ekki einhverjar skrautaug-
lýsingar sem gefa ranga mynd af
stöðu mála eins og Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur
gera nú korteri fyrir kosningar.
Það er afar athyglisvert að heyra
formann Sjálfstæðisflokks vera
með hræðsluáróður um það að
allt fari í bál og brand ef aðrir
munu fara með völdin í landinu
en hann og hans flokkur. Frjáls-
lyndi flokkurinn er með heil-
steypta stefnuskrá, ekki síst er
varðar þær breytingar sem þarf
að gera á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu. Hvert stefna byggðir
landsins undir núverandi kvóta-
kerfi? Það eru 80% þjóðarinnar á
móti núverandi kvótakerfi, það
segir allt sem segja þarf um þetta
„fína“ kerfi undir stjórn Davíðs
og félaga.
Kæri kjósandi, ekki láta hug-
fallast fyrir þeim bábiljum sem
forsætisráðherra heldur fram,
láttu málefnin ráða. Kynntu þér
ítarlega stefnuskrá okkar á
www.xf.is og taktu þátt í byltingu
með okkur í Frjálslynda flokkn-
um, byltingu til hins betra fyrir
land og þjóð. ■
Opið bókhald og auglýsingar
Kosningar
maí 2003
KOLBEINN
MÁR
GUÐJÓNSSON
■ í 4. sæti í Reykjavík
norður fyrir Frjálslynda
flokkinn skrifar um
bókhald og auglýsing-
ar stjórnmálaflokk-
anna.
Framsóknarflokkurinn erábyrgur flokkur sem hafnar
ævintýramennsku og tilrauna-
starfsemi með undirstöðuatvinnu-
veg þjóðarinnar,
sjávarútveginn.
F r a m s ó k n a r -
flokkurinn vill
öflugan, sjálf-
bæran íslenskan
s j á v a r ú t v e g
sem er fær um
að greiða auð-
lindagjald fyrir
aðgang að fiski-
stofnum. Við
viljum einnig byggðakvóta til að
verja minnstu byggðirnar og hina
fjölmörgu smáu en öflugu útvegs-
menn og fiskverkendur sem í
þeim búa. Stefna Frjálslynda
flokksins, Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna veldur hins vegar
mikilli óvissu og glundroða í
íslenskum sjávarútvegi sem ógna
mun byggðunum nái hún fram að
ganga.
Atvinnuöryggi ógnað
Frjálslyndi flokkurinn ætlar að
skilja milli veiða og vinnslu
þannig að allur afli fari á uppboðs-
markað. Þessi stefna mun valda
því að menn geta ekki landað í
sinni heimabyggð og verða að
keppa um aflann á uppboðsmörk-
uðum til að ná honum heim að
nýju. Allar líkur eru á að lands-
byggðin muni tapa aflanum til
höfuðborgarsvæðisins og jafnvel
úr landi.
Atvinnuöryggi fiskverkafólks
um land allt er ógnað af Frjáls-
lyndum. Tillögur flokksins miðast
greinilega við hagsmuni þröngs
hóps sjómanna en ekki hagsmuni
þjóðarinnar. Tillögur Frjálslynda
flokksins um sóknarstýringu miða
greinilega að því að opna fiskveið-
arnar aftur fyrir þeim sem búnir
eru að selja kvótann sinn og vilja
byrja frítt upp á nýtt og selja fisk-
inn á markaði í stað heimabyggðar.
Vinstri grænir vilja endur-
vekja pólitískt skömmtunarkerfi
síðustu aldar með fyrningastefnu
sinni þannig að fyrirtækin og
byggðirnar verði að hanga á
hurðarhúnum ráðamanna þjóðar-
innar og betla kvóta frá ári til árs.
Dæmigerð forsjárhyggja sem
ekki gengur upp á nýrri öld.
Stefna réttlætis
Samfylkingin vill taka kvótann
af fyrirtækjunum og byggðunum
og bjóða hann upp þannig að er-
lendir fiskkaupmenn fái aðgang
að honum í gegnum íslenska
leppa. Ekki er líklegt að smæstu
fyrirtækin eða byggðirnar fari
vel út úr þeim uppboðsslag. Sjálf-
stæðisflokkurinn er feiminn við
auðlindagjaldið og byggðakvót-
ann. Framsóknarflokkurinn er
eini flokkurinn með ábyrga sjáv-
arútvegsstefnu. Við viljum
treysta grundvöll sjávarútvegsins
þannig að hann verði fær um að
standa undir velferð þjóðarinnar
með öflugu atvinnulífi og hóflegu
auðlindagjaldi fyrir afnotin af
fiskistofnunum. Við viljum hækka
veiðiskylduna og grípa til sér-
tækra aðgerða í skattamálum til
að stemma stigu við braskinu. Við
viljum einnig efla og þróa byggða-
kvóta í samráði við sveitarstjórn-
ir um land allt og verja þannig
veikustu byggðirnar.
Sjávarútvegsstefna Framsókn-
arflokksins er stefna réttlætis
sem tekur tillit til hagsmuna allra
þorra Íslendinga. Hún tryggir öfl-
ugan, hagkvæman og sjálfbæran
íslenskan sjávarútveg í þágu allr-
ar þjóðarinnar. ■
Ábyrg fiskveiðistefna
Kosningar
maí 2003
SÆUNN STEF-
ÁNSDÓTTIR
■ viðskiptafræðinemi
við HÍ og í 4. sæti á
lista Framsóknar-
manna í Reykjavík
norður skrifar um fisk-
veiðistjórn.
„Atvinnu-
öryggi fisk-
verkafólks um
land allt er
ógnað af
Frjálslyndum.
FISKVINNSLA
Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn
með ábyrga sjávarútvegsstefnu, segir
Sæunn Stefánsdóttir.