Fréttablaðið - 07.05.2003, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 7. maí 2003
Tryggingin bætir tjón vegna slysa sem verða í frítíma og inniheldur hún dánarbætur,
dagpeninga og stighækkandi örorkubætur. Börn undir 16 ára aldri eru tryggð við
íþróttaæfingar og keppni, hér á landi og erlendis. Þá nær tryggingin til barna vátryggðs,
yngri en 16 ára, sem hafa annað lögheimili en hann og eru á ferðalagi með honum
erlendis. Sjúkrakostnaður innanlands er greiddur að tiltekinni fjárhæð þegar um
bótaskyld tjón er að ræða vegna varanlegrar örorku eða tímabundins missis starfsorku.
Farangurstrygging erlendis
Tryggingin bætir tjón sem verður ef farangur týnist í flutningum eða er stolið á
ferðalögum erlendis.
Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging erlendis
Tryggingin greiðir bætur ef rjúfa þarf ferð erlendis vegna tiltekinna atvika svo og
sjúkrakostnað ef slys eða veikindi ber að höndum á ferðalögum erlendis.
Með umönnunartryggingu barna fást bætur vegna langtímadvalar barna yngri en
16 ára á sjúkrahúsi.
Afslættir
Fjölskyldu- og heimilistryggingar hjá VÍS veita einnig rétt til margvíslegra afslátta
á öðrum tryggingum svo sem:
• bifreiðatryggingum
• brunatryggingum íbúðarhúsnæðis
• húseigendatryggingum íbúðarhúsnæðis
• Lífís, líf- og sjúkdómatryggingum
og fjölmörgum sértryggingum sem VÍS býður viðskiptavinum sínum
Nánari upplýsingar um bótasvið er að finna í skilmálum félagsins.
þar sem tryggingar
snúast um fólk
VÍS býður nú fjölbreyttari tryggingar fyrir
fjölskyldur og heimili
– og veitir þér alla afslætti strax
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
3
6
2
Frítímaslysatrygging
Verð 8.825 kr. á ári
eða 735 kr. á mánuði*
Frítímaslysatrygging
Verð 13.406 kr. á ári
eða 1.117 kr. á mánuðiFarangurstrygging erlendis
Sjúkrakostnaðar- og
ferðarofstrygging á
ferðalögum erlendis
*
Umönnunartrygging barnaFrítímaslysatrygging
Verð kr. 17.943 á ári
eða 1.495 kr. á mánuði*Farangurstrygging erlendis
Sjúkrakostnaðar- og
ferðarofstrygging á
ferðalögum erlendis
Umönnunartrygging barna
*Iðgjöld með afslætti vegna eins bíls þar sem á við með opinberum gjöldum, án stimpilgjalds í maí 2003. Vátryggingarverðmæti innbús kr. 4.500.000.
Bótasvið og bótafjárhæðir eru mismunandi eftir tryggingum.
Frítímaslysatrygging
Róttækar menntafjárfestingareru undirstaða uppbyggingar
atvinnulífs framtíðarinnar. Slíkar
fjárfestingar þurfa að ná til allra
skólastiga og landsins alls. Eitt
stærsta skref sem hægt væri að
stíga í mannlífsþróun og til að efla
launastigið í Suðurkjördæmi væri
að byggja upp háskóla á svæðinu,
með áherslu á fjarnám. Slíkur
skóli gæti t.d. sérhæft sig í sjávar-
útvegi, landbúnaði, tæknimennt-
un, kennslu-
fræðum og mat-
vælaiðnaði. Þar
liggur sérstaða
svæðisins og
hana eigum við
að nýta. Háskóli
í héraði er það
sem koma skal.
Illa staðið
að mennta-
málum
Illa hefur
verið staðið að
menntamálum
hérlendis síð-
ustu ár og jafn-
vel áratugi. Upp-
taka samræmdu
stúdentspróf -
anna er menntastefnan í smækk-
aðri mynd. Enginn undirbúningur,
hroðvirkni og skammsýni á öllum
sviðum, fyrir utan að það er hætta
á að prófin vegi að rótum sérstöðu
skólanna. Því á að fresta þeim og
endurskoða. Við höfum dregist
mikið aftur úr öðrum þjóðum í
menntamálum og setjum ekki
sambærilegt fjármagn í mannauð-
inn og nágrannalöndin. Á næstu
árum þarf að eiga sér stað mark-
viss menntasókn á Íslandi eftir
langvinna stöðnun í menntunar-
málum þjóðarinnar. Samanborið
við nágrannalöndin er mennta-
kerfið fjársvelt og ekki varið til
þess þeim fjármunum sem þarf til
að leggja grunninn að þekkingar-
samfélagi framtíðarinnar. Marg-
víslegar umbætur verða að eiga
sér stað á skólamálunum til að við
náum í fremstu röð.
Aldrei skólagjöld við HÍ
Sjálfstæðisflokkurinn boðar
skólagjöld við HÍ. Því höfnum við
jafnaðarmenn algjörlega. Innan
við 16% aldurshópsins 25-64 ára
hafa lokið háskólaprófi og segir
það allt um mikilvægi þess að
efla nám á háskólastigi, ekki að
mismuna með auknum gjöldum.
Jafnrétti til náms er grundvallar-
atriði til að skapa jöfn tækifæri.
Það þarf að styðja við samkeppni
á háskólastigi og ýta undir bætta
kennslu, aukið námsframboð og
auknar rannsóknir. Enda eiga
háskólastofnanir sem skara fram
úr að njóta þess í fjárfram-
lögum. Efla þarf rannsóknar-
tengt framhaldsnám við alla
háskóla landsins og styrkja með
auknum fjárframlögum og því
að auka tengslin milli rann-
sóknastofnana ríkisins og við-
eigandi háskóla og háskóla-
deilda. Tengt þessu á að auka
framlög til rannsóknasjóða hins
opinbera til að ýta undir mögu-
leika ungra fræðimanna til að
hasla sér völl hér heima að fram-
haldsnámi loknu. Mikilvægast
að öllu er að efla Háskóla Ís-
lands og gera honum kleift að
sinna sínu verkefni með stæl og
án þess að innheimta skólagjöld
af nemendum. Jafnrétti til náms
óháð efnahag er grundvallar-
atriði. Því þarf að stórauka fjár-
framlög til HÍ. Annars dregst
skólinn aftur úr og dagar uppi
sem gamaldags nátttröll, eins og
stefnir í undir metnaðarleysi
síðustu menntamálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins. ■
Menntasókn og háskóli
í Suðurkjördæmi
Kosningar
maí 2003
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
■ í 3. sæti á lista
Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi skrifar
um menntamál.
„Innan við
16% aldurs-
hópsins 25-
64 ára hafa
lokið háskóla-
prófi og segir
það allt um
mikilvægi
þess að efla
nám á há-
skólastigi,
ekki að mis-
muna með
auknum
gjöldum.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Mikilvægast af öllu er að efla Háskóla
Íslands, segir Björgvin G. Sigurðsson.