Fréttablaðið - 07.05.2003, Qupperneq 34
22 7. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Förðunarnám
sem gefur f jö lbreyt ta mögule ika
Sumarnámskeið: Kópavogi, 12. maí 2003
Akureyri, 19. maí 2003
Haustnámskeið: Kópavogi, 15. sep 2003
Akureyri, 22. sep 2003
Förðunarskóli NO NAME
Hjallabrekka 1 - Kópavogi
Srandgata 25 - Akureyri
hringdu og fáðu nánari upplýsingar
í síma 588 6526 eða á heimasíðu okkar,
www.noname.is
Nemendur NO NAME
sýndu sig og sönnuðu á
förðunarkeppni Tískan á
Hótel Íslandi, mars 2003:
Vörumerkið NO NAME er tákn um gæði og
fagmennsku. Bæði er það tákn um hágæða
snyrtivörur og einnig eitthvert besta og
reyndasta fagfólk sem völ er á atvinnu-
mennsku í förðun eða sem áhugamál, þá er
Förðunarskóli NO NAME svarið
Elva Hrund Þórðardóttir -
SVARTHVÍT FÖRÐUN
Harpa Lind Harðardóttir -
SMOKY FÖRÐUN
Silja Þórðardóttir -
TÍMABILAFÖRÐUN
Silja Þórðarrdóttir - KVÖLDFÖRÐUN
Harpa Lind Harðardóttir -
BRÚÐARFÖRÐUN
Ásthildur Davíðsdóttir -
LITADÝRÐ
Kennarar með áralanga reynslu í faginu:
Kristín Stefánsdóttir - Birta Björnsdóttir -
Embla Sigurgeirsdóttir - Andrea Magnúsdóttir -
Kristín Hlín Pétursdóttir.
T í s k u - o g l j ó s m y n d a f ö r ð u n
H æ g t a ð v e l j a u m 6 e ð a 1 2 v i k u r
Hugrún
Malmquist
var í 1. sæti
nema.
Agnes Björk
Helgadóttir
var í 2. sæti
nema.
X-MEN „Myndirnar eru báðar mjög
fínar, ekki síst þar sem það er
ekki ólíkt því að lesa blöðin að
horfa á þær. Maður kemst smátt
og smátt að meiru um karakter-
ana. Þetta er fín persónusköpun
sem er útfærð í smáum skrefum
og maður fær það á tilfinninguna
að eitthvað stærra muni gerast í
næstu mynd. Þetta á sérstaklega
við um Jean Grey og Wolverine.
Það þarf auðvitað alltaf að
breyta ýmsu þegar myndasögur
eru færðar yfir á hvíta tjaldið og
ætli það megi ekki segja að hér
hafi öllum réttu hlutunum verið
breytt. Það sem gerir þessar
myndir líka sérstakar er að það
eru ekki sömu áherslur í þeim og
hefðbundnum risahasarmyndum.
Stígandinn er öðruvísi og þær eru
því ekki fyrirsjáanlegar.“
Hugleikur bætir því við að
myndirnar séu hæfilega krydd-
aðar með vísunum í sögurnar,
sem auki enn á ánægju þeirra
sem þekkja myndasögurnar.
Hann bendir einnig á að mynda-
sögur endurspegli oft samtíma
sinn á mjög skemmtilegan hátt.
„Ég veit ekki hvort ég er sá eini
sem tók eftir því að forsetinn í
X2 er skemmtilega líkur George
W. Bush. Ég er viss um að þessi
leikari hefur verið valinn með til-
liti til þess. Hann sýndi ýmis
svipbrigði sem maður kannast
við hjá Bush og það er skotið
svona mátulega vel á hann í
myndinni.
Það eru líka svipaðir hlutir að
gerast í til dæmis Ultimate X-Men
seríunni og í raunveruleikanum
en þar hefur stríðið gegn hryðju-
verkum verið heimfært á barátt-
una gegn stökkbreytunum og öll
stökkbrigði eru skilgreind sem
hryðjuverkamenn. Svo eru meira
að segja fangabúðir fyrir stökk-
breytur á Kúbu, þannig að mynda-
sögurnar notfæra sér oft þetta
lága flug sitt undir radarnum til
að hnýta í samtímann. Mér finnst
myndasögurnar líka góð áminn-
ing um að það er fullt af góðum
hlutum sem koma frá Bandaríkj-
unum. Það eru fleiri en tvær hlið-
ar á öllum þjóðum.“ ■
HUGLEIKUR DAGSSON
Segir Nightcrawler vera í miklu uppáhaldi hjá sér en „í gamla daga“ hafi Storm verið í
mestum metum.
Þjóðfélagsrýni í myndasögum:
Ekki allt vont sem
kemur frá Ameríku
X-MEN „Ég er mjög sátt við X2,“
segir Brimrún Hrönn, sem er
dyggur aðdáandi X-Men mynda-
sagnanna, en hún er þegar búin að
sjá myndina þrisvar sinnum. „Ég
var búin að leita allra upplýsinga,
lesa viðtöl í tímaritum og allt ann-
að sem ég komst yfir um myndina
en samt kom hún mér mikið á
óvart. Ég er alltaf að sjá eitthvað
nýtt þannig að ég get ekki annað
en verið mjög sátt.“
Brimrún segir endinn á X2
galopinn og „maður veit eiginlega
pottþétt hvað verður tekið fyrir í
næstu mynd.“ Hún er, eins og
fleiri aðdáendur X-Men sagnanna,
hæstánægð með að Nightcrawler
skuli vera mættur til leiks. „Mér
finnst þeim hafa tekist mjög vel
upp með hann og svo fannst mér
Mystique líka mjög skemmtileg.“
Brimrún segist aðspurð ekki
þekkja fleiri stelpur sem séu á
kafi í myndasögum. „Vinkona mín
hefur aðeins verið að kíkja á þetta
og hefur haft lúmskt gaman af en
ég er ekki viss um að það muni
ganga lengra. Ég telst alveg
myndasögunörd en ber það ekkert
utan á mér og er ekkert stórund-
arleg og vinnufélagar mínir urðu
steinhissa þegar þeir komust að
því að ég væri á kafi í X-Men.“ ■
BRIMRÚN HRÖNN
“Spiral er uppáhaldspersónan mín. Hún hefur ekki komið við sögu í myndunum og mun
örugglega ekki gera það. Hún er ekki stökkbreytt og er ósköp venjuleg þar til hún kemst í
kynni við illvirkja í New York sem breyta henni í Spiral. Hún er göldrótt og einstaklega ill-
kvittin með sex handleggi, eiginlega alveg kolvitlaus.“
X-Men njóta sín í bíó:
Alltaf að sjá
eitthvað nýtt
DARK PHOENIX SAGA
Frægt blað þar sem Jean
Grey sneri aftur. Hún var
þó ekki alveg söm við sig,
stúlkan.
FYRSTA TÖLUBLAÐIÐ
Stökkbrigðin komu fyrst fram á sjón-
arsviðið í september árið 1963. Ef þið
finnið þetta blað í safninu er það mikils
virði.
VIÐBÆTUR Í
HÓPINN
X-Mennirnir rudd-
ust inn á sjónar-
sviðið á nýjan leik
sumarið 1975. Þá
bættist m.a.
Wolverine í
hópinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T