Fréttablaðið - 07.05.2003, Side 36
6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR24
CONFESSIONS. bi 14 10.40
JUST MARRIED kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
ABRAFAX m/ísl.tali kl. 4 og 6 400 kr. SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
JOHNNY ENGLISH kl. 4, 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 6 og 9
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
kl. 8NÓI ALBINÓI
kl. 68 FEMMES
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd í lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
THUNDERPANTS kl. 4
DREAMCATCHER kl. 6, 8 og 10
kl. 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTT...NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4 og 6
RECRUIT bi 16 kl. 8 og 10.30
kl. 10THE PIANIST
Sýnd kl. 6, 8
Myndin gerist í Víetnam ummiðja síðustu öld. Nýlendu-
stjórn Frakka er á fallanda fæti.
Breski blaðamaðurinn Thomas
Fowler (Michael Caine) skrifar
fréttir heim til Evrópu. Kommún-
istar virðast vera að ná undirtök-
unum. Í þessu stríðshrjáða landi
birtist skyndilega bandaríski
mannvinurinn Pyle (Brendan
Fraser) sem má ekkert aumt sjá.
En það er ekki allt sem sýnist.
Takmarkalaus manngæska og
ábyrgðartilfinning kyrrláta Amer-
íkanans breytir þróun mála, bæði
fyrir einstakar persónur og alla
víetnömsku þjóðina.
Það væri hægt að skrifa langt
mál um þessa mynd, en frá því er
skemmst að segja að svona snilldar-
verk eru ekki á hverju strái. Mich-
ael Caine hefur aldrei verið betri og
þá er mikið sagt, og Brendan Fraser
sýnir að hann er frábær leikari. Það
er Ástralinn Philip Noyce sem
stjórnar þessu meistaraverki
þannig að manni koma helst í hug
myndir eins og Casablanca frá
gullaldarárum kvikmynda í
Hollywood.
Þessa mynd hefði George Bush
endilega þurft að sjá og bjóða
Davíð og Halldóri með sér.
Þráinn Bertelsson
THE QUIET AMERICAN
Aðalhlutverk: Michael Caine, Brendan
Fraser, Do Thi Hai Yen
Handrit: Christopher Hampton eftir skáld-
sögu Graham Greene
Leikstjórn: Philip Noyce
Umfjöllunkvikmyndir
Ljúfmennið frá
Ameríku
Fréttiraf fólki
MYNDASÖGUR Myndasögublaðið Blek
hefur komið út árlega frá því að
fyrsta blaðið leit dagsins ljós árið
1996. Fjöldamargir áhugamenn
um myndasögugerð hafa prófað
sig áfram á síðum blaðsins í gegn-
um árin. Nokkrir hafa snúið sér að
öðrum verkefnum en aðrir haldið
ótrauðir áfram. Út er komin inn-
bundin bók sem safnar saman
fyrstu 7 tölublöðunum Bleks og
má þar finna sögur eftir nafntog-
aða einstaklinga á borð við Ómar
„Suarez“ Hauksson, Hugleik Dags-
son, Erp Eyvindarson, Inga Jóns-
son, Jón Ingiberg Jónsteinsson,
Kjartan Arnórsson, Pétur Yama-
gata og Jean Posocco, sem nú
starfar sem ritstjóri blaðsins
ásamt Þorsteini Guðnasyni.
„Það voru ekki margir af þeim
sem byrjuðu sem höfðu kraft til
þess að framleiða myndasögur,“
útskýrir Jean Posocco sem bættist
við Blek-byttuna strax eftir útgáfu
fyrsta tölublaðsins. „Það eru mjög
fáir sem gera sér grein fyrir því
hversu mikil vinna er á bak við
eina myndasögu, þótt stutt sé. Það
þarf að semja sögu, búa til texta og
teikna í kringum setningarnar.“
Jean fluttist til Íslands frá
Frakklandi árið 1983 en þar í landi
er rík hefð fyrir myndasögugerð.
Að sögn hans kom fyrsta mynda-
sögublaðið þar út árið 1928.
„Mér fannst það alveg hrylli-
legt þegar ég kom hingað hversu
lítil hefð var fyrir myndasögunni.
Ég var safnari í Frakklandi og
þegar ég kom hingað reyndi ég að
leita eftir íslenskum myndasög-
um. Það var samt fróðlegt að sjá
hvað Íslendingar voru að gera.
Svo þegar ég kynntist Blek-hópn-
um kom í ljós að það voru nokkrir
hér sem höfðu áhuga.“
Áttunda tölublað Bleks er nú í
vinnslu og ætti að skila sér í búð-
ir fyrir mánaðarlok. Þeir sem
hafa látið blöðin fara framhjá sér
til þessa geta svo tryggt sér allt
heila klabbið á sanngjörnu verði í
innbundinni bók.
„Við vorum búin að gefa út
svo mörg blöð og áttum eitthvað
eftir á lager. Ég stakk því upp á
því hvort það væri ekki sniðugt
að safna þeim saman og binda
inn í bók. Ég er sjálfur bókbind-
ari þannig að ég tók það að mér
að gera þetta,“ útskýrir Jean að
lokum.
Stöðugt er verið að leita að
áhugasömu fólki í myndasögu-
smíðar og er hægt að koma sér í
samband við útgáfuna í gegnum
myndasöguverslun Nexus á
Hverfisgötu. Bókin er gefin út í
takmörkuðu upplagi og fæst að-
eins þar eins og er.
biggi@frettabladid.is
Uppsafnað Blek
Myndasöguhópurinn Blek hefur loksins safnað þeim 7 tölublöðum sem út hafa
komið í gegnum árin í innbundna bók. Þar er að finna rúmlega 50 íslenskar
myndasögur eftir fjölda höfunda.
JEAN POSOCCO
Ritstjóri íslenska myndasögublaðsins Blek fluttist til Íslands frá Frakklandi árið 1983.
Þar í landi er myndasöguhefðin sterk.
STEVIE KL. 6
BIGGIE & TUPAC KL. 10
HEIMILDA- OG STUTTMYNDAHÁTÍÐ
Kvikmyndaáhugamenn hafafundið um 42 villur í nýjustu
X-Manna
myndinni.
Það er rétt
yfir með-
altali á
villufjölda
í kvik-
myndum.
Villurnar í
X-Mönn-
um eru allt
frá því að
skjöl og lík
hverfa upp
í það að
glös fylli
sig sjálf af
vökva.
Myndin
verður
frumsýnd
í Bretlandi
um helg-
ina og spá
markaðsmenn þar í landi að að-
sóknarmet eigi eftir að falla.
Eintök af óútgefinni fimmtu bókí Harry Potter-seríunni fundust
á akri í Bretlandi. Göngumaður
rakst á tvö eintök af bókinni á
göngu sinni um akurinn. Maðurinn
hafði samband við dagblaðið The
Sun, sem borgaði vel fyrir eintök-
in. Bókunum var stolið af lager
Bloomsbury-útgáfunnar og hefur
verið skilað þangað. Breska lög-
reglan rannsakar nú málið.
Led Zeppelin hefur safnað sam-an sjaldgæfum tónleikaupptök-
um og áður óútgefnum hljóðrit-
unum fyrir útgáfu á væntanlegum
safnpakka. Um er að ræða yfir
átta klukkustundir af efni. Í pakk-
anum verða 2 DVD-diskar og þrír
geisladiskar. Aðallega verða þetta
58 lög sem voru hljóðrituð á tón-
leikum. Sum segulböndin sem
upptökurnar voru teknar af voru í
það lélegu ástandi að baka þurfti
þau í ofni í 60 klukkustundir til
þess að gera þau nothæf að nýju.
Leikkonan Reese Witherspoon erófrísk af öðru barni sínu.
Þriggja ára gömul dóttir hennar
og leikarans
Ryan Phillippe
er víst í skýj-
unum yfir
fréttunum.
Leikkonan
skýrði frá
þessu í spjall-
þætti Jay
Leno, sem
spurði eftir að
orðrómur um óléttuna hafði verið
á kreiki í slúðurblöðunum.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára