Fréttablaðið - 07.05.2003, Blaðsíða 37
Fyrirhugað samstarf TheStrokes og upptökustjórans
Nigel Godrich gekk ekki upp.
Hljómsveitin hafði tilkynnt um
samstarfið við þennan fræga upp-
tökustjóra Radiohead í fyrra en af
einhverjum ástæðum var hætt við
á síðustu stundu. The Strokes
ætlar nú að hljóðrita aðra breið-
skífu sína með Gordon Raphael,
sama upptökustjóra og gerði
frumraunina.
Kiefer Sutherland hefur gefiðvísbendingar um það að kvik-
mynd eftir sjónvarpsþáttunum
„24“ sé í bígerð. Í nýlegu viðtali
talaði leikarinn um kvikmynd sem
„eðlilega framþróun“ miðað við
vinsældir þáttanna í Bandaríkjun-
um. Hann bætti því einnig við að
myndin yrði líklegast í anda „Die
Hard“-myndanna.
ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2003 25
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10Sýnd kl. 4, 6.30 og 9
THE CORE kl. 8 b.i 12 ára
SKÓGARLÍF 2 kl. 6
ABRAFAX OG SJÓRÆN. kl. 4 tilb. 400 5.45, 8 og 10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30 b.i.14.ára THE HOURS b.i. 12 kl. 10.20
MAID IN MANHATTAN kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
SHANGHAI KNIGHTS
UmfjöllunTónlist
Eins og aðdáendur DepecheMode vita hefur Martin L.
Gore verið aðallagahöfundur og
höfuðpaur þeirrar sveitar frá því
að Vince Clarke yfirgaf hana árið
1981. Nú virðist DM vera komin í
frí og liðsmenn hennar ákveðið að
spreyta sig hver í sínu lagi. Á með-
an Dave Gahan söngvari þreifar
fyrir sér í lagasmíðum virðist
Gore hafa ákveðið að hvíla sig á
þeim, því þessi fyrsta sólóbreið-
skífa hans „Counterfeit2“ er safn
tökulaga.
Hér má heyra Gore flytja lög á
borð við „Stardust“ eftir David
Essex, „In My Other World“ eftir
Julee Cruise, „Loverman“ eftir
Nick Cave, „Oh My Love“ eftir
John Lennon og „Lost in the Stars“
eftir Kurt Weill.
Það ætti ekki að fara framhjá
neinum sem hlustar að hér er sami
maður á ferð og stendur að baki
Depeche Mode. Gore gerir öll lög-
in að sínum og eru útsetningar frá
sama raftónlistar-hljóðheim og
DM. Útsetning lagsins „By This
River“, sem er eftir Brian Eno,
minnir svo meira en lítið á múm.
Gore notar gítarinn minna en
hann gerir hjá DM, kannski til þess
að forðast samlíkingar við sveit-
ina. Þetta er þó það líkt að það er
ekki hægt að komast hjá því að
velta því fyrir sér hvort þetta
myndi ekki sleppa sem DM-breið-
skífa ef Gahan myndi syngja.
Hörkufín plata, allir aðdáendur
Depeche Mode ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Birgir Örn Steinarsson
Stjörnuryk og
elskhugar
28 DAYS LATER b.i. 16 kl. 6
THE GOOD GIRL b.i. 16 kl. 6
MARTIN L. GORE: COUNTERFEIT2