Fréttablaðið - 07.05.2003, Blaðsíða 38
7. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Mótsagnir eru yndislegt fyrir-bæri. Við árekstur gagn-
stæðra hugmynda getur ýmislegt
fæðst. Stjörnuskin,
snilld, fyndni, sorg
eða hörmungar.
Þess vegna er
svona gaman að
Sopranos. Tilfinn-
ingaofsi og sorg
Tony Soprano
vegna dauða veð-
hlaupahests fær
sérstaka merkingu
vegna skeytingar-
leysis hans um líf
og heill manna.
Mótsagnakenndar
persónur eru einhvern veginn
alltaf meira spennandi en hinar
sem eru lógískar.
Stjórnmál lúta einnig þessum
lögmálum. Jafnvel þótt siðferði-
legt markmið okkar sé að halda
þræði í skoðunum okkar og hug-
myndum hneigjumst við frekar að
mótsagnakenndum stjórnmála-
mönnum. Það er auðvitað mót-
sögn í því, en svona virðist þetta
vera. Þannig á sá málefnalegi
alltaf undir högg að sækja.
Ég horfði á Silfur Egils á
sunnudaginn. Það var pínulítið
eins og tímaferðalag. Maður var
kominn á kosningafund úti á
landi. Menn voru ekkert sérstak-
lega málefnalegir. Helst að Birgir
Guðmundsson blaðamaður væri
að reyna að færa umræðuna til
nútímans. Hið nýja og gamla
mættist í póstmódernískum
árekstri þegar Hlynur Hallsson,
sá ágæti myndlistarmaður, sagði
að kosningar ættu að snúast um
málefni, íklæddur rauðum bol
með mynd af Steingrími J. Sigfús-
syni. Mynd í anda byltingarleið-
togans Che Guevara. Þá hló ég. ■
Við tækið
HAFLIÐI HELGASON
■ veltir fyrir sér mótsögnum í
stjórnmálum og tilfinningalífi
mafíósa.
Árekstrar gagnstæðra hugmynda
20.00 Kvöldljós
21.00 Bænastund
21.30 Joyce Meyer
22.00 Benny Hinn
22.30 Joyce Meyer
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
17.30 Olíssport
18.00 Western World Soccer Show
18.30 Meistaradeild Evrópu Bein út-
sending frá undanúrslitum.
20.45 Enski boltinn (Arsenal - South-
ampton) Útsending frá leik Arsenal og
Southampton.
22.50 Olíssport Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
23.20 MAD TV (MAD-rásin) Geggjaður
grínþáttur þar sem allir fá það óþvegið.
Þátturinn dregur nafn sitt af samnefndu
skopmyndablaði sem notið hefur mikilla-
vinsælda.
0.05 Phoenix Aðalhlutverk: Ray
Liotta, Anthony Lapaglia, Daniel Baldwin
og Jeremy Piven. Leikstjóri: Danny Cann-
on. 1998. Stranglega bönnuð börnum.
1.50 Lust and Lies (Losti og lygar)
Erótísk kvikmynd. Stranglega bönnuð
börnum.
3.00 Dagskrárlok og skjáleikur
16.35 Kastljósið -
Kosningar 2003
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Disneystundin
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.05 Ed (8:22)
20.50 Læknar á Grænlandi (2:2)
(Lægens bord i Grönland) Seinni þáttur
um ferð dansks læknis til Ilulissat á
Grænlandi þar sem hann hugar að sjúk-
lingum og talar við hjúkrunarfólk.
21.25 Kosningar 2003 – Tæpitungu-
laust Formaður Framsóknarflokksins,
Halldór Ásgrímsson, mætir í yfirheyrslu í
beinni útsendingu til Kristjáns Kristjáns-
sonar og Sigmars Guðmundssonar.
22.00 Tíufréttir
22.20 Kosningar 2003 – Sjálfstæðis-
flokkurinn kynnir stefnumál sín fyrir
kosningarnar.
22.35 Kosningar 2003 – Flokka-
kynning Nýtt afl kynnir stefnumál sín
fyrir kosningarnar.
22.50 Handboltakvöld
23.05 Undir sama þaki (3:7) (Spaced)
Bresk gamanþáttaröð um ævintýri Tims
og Daisy sem leigja saman herbergi und-
ir því yfirskini að þau séu hjón. Aðalhlut-
verk: Jessica Stevenson, Simon Pegg, Jul-
ia Deakin og Mark Heap.
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
9.20 Í fínu formi
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 Reba (14:22)
13.00 Since You Have Been Gone
(Bekkjarmótið) Aðalhlutverk: Lara Flynn
Boyle, David Schwimmer. Leikstjóri: Dav-
id Schwimmer. 1998.
14.35 Tónlist
15.00 Spænsku mörkin
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.40 Neighbours
18.05 Off Centre (3:21)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.45 Animatrix
20.00 Að hætti Sigga Hall (10:12)
(Danmörk: Kaupmannahöfn) Meistara-
kokkurinn er mættur aftur. Siggi Hall ger-
ir víðreist og heimsækir marga spenn-
andi staði. Ómissandi þáttur fyrir mat-
gæðinga á öllum aldri.
20.35 Coupling (5:7)
21.10 Cold Feet (1:6) (Haltu mér,
slepptu mér) Margverðlaunaður mynda-
flokkur sem hefur slegið í gegn hér sem
annars staðar. Þetta er síðasta syrpan um
vinina í Manchester og gerist hún sex
mánuðum eftir ferðalag þeirra til Ástralíu.
Pete og Jo eru komin heim aftur, Adam
og Rachel takast á við fjölskyldulífið,
David og Karen reyna að skilja í vinsemd
og barnfóstran Ramona finnur sér nýjan
elskhuga.
22.05 Crossing Jordan (7:25)
22.50 Since You Have Been Gone Sjá
nánar að ofan.
0.25 Cold Feet (1:6)
1.15 Ísland í dag, íþróttir, veður
1.40 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVí
6.00 The Good Old Boys
8.00 Big Man on Campus
10.00 The Competition
12.05 Murder, She Wrote: The Last
Free Man
14.00 The Good Old Boys
16.00 Big Man on Campus
18.00 The Competition
20.05 Murder, She Wrote: The Last
Free Man
22.00 Final Destination
0.00 Norma Jean and Marilyn
2.00 Of Love and Shadow
4.00 Final Destination
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
19.00 XY TV
20.00 Trailer
21.00 South Park 6
21.30 Crank Yankers
22.03 70 mínútur
23.10 Lúkkið
23.30 Meiri músík
18.30 Innlit útlit (e)
19.30 According to Jim (e)
20.00 Guinness World Records Fólk er
fífl og það sannast hvergi betur en í
þessum fjölskrúðugu þáttum þar sem
menn reyna að ganga fram af sjálfum
sér og öðrum með skemmtilegum fífla-
látum og stundum stórhættulegum. Sjáið
fullorðið fólk dansa á línu, sjúga spagettí
upp í nefið, jórtra, borða úr, henda sér
fram af byggingum og margt fleira sem
sýnir hvað iðjuleysi hefur í för með sér.
21.00 Fólk – með Sirrý Fólk er þáttur
um allt sem við kemur daglegu lífi Ís-
lendinga og Fólki er ekkert mannlegt
óviðkomandi; þar verður meðal annars
rætt um tísku, heilsu, kjaftasögur, for-
dóma, mannleg samskipti auk þess sem
málefni vikunnar verður að venju krufið
til mergjar af sérfræðingum, leikmönn-
um og áhorfendum. Skollaleikurinn með
Árna Pétri verður á sínum stað og tekur
á sig ýmsar myndir.
22.00 Sillfur Egils – í beinni útsend-
ingu
23.30 Jay Leno Jay Leno sýnir fram á
keisarans nekt á hverju kvöldi er hann
grínast með þjóðarleiðtoga, frægt fólk og
bara hversdagslega vitleysinga.
0.20 Boston Public (e)
1.10 Dagskrárlok
Formaður Framsóknarflokksins,
Halldór Ásgrímsson, mætir í yfir-
heyrslu í beinni útsendingu til
Kristjáns Kristjánssonar og Sig-
mars Guðmundssonar í þættin-
um Tæpitungulaust í Sjónvarp-
inu í kvöld. Annað kvöld situr
Guðjón A. Kristinsson, formaður
Frjálslynda flokksins, fyrir svör-
um.
Sjónvarpið
21.25 Stöð 2 21.10
Margverðlaunaður myndaflokk-
ur sem hefur slegið í gegn hér
sem annars staðar. Þetta er síð-
asta syrpan um vinina í
Manchester og gerist hún sex
mánuðum eftir ferðalag þeirra
til Ástralíu. Pete og Jo eru komin
heim aftur, Adam og Rachel
takast á við fjölskyldulífið, David
og Karen reyna að skilja í vin-
semd og barnfóstran Ramona
finnur sér nýjan elskhuga.
■
Jafnvel þótt sið-
ferðilegt mark-
mið okkar sé
að halda þræði
í skoðunum
okkar og hug-
myndum
hneigjumst við
frekar að mót-
sagnakenndum
stjórnmála-
mönnum.
Tæpitungulaust
Cold Feet
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200.
Einnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is.
Nánari upplýsingar
Í dag miðvikudag milli kl. 16 og 18
gefst þér kostur á að skoða glæsilegar 2ja, 3ja, og 4ra herbergja íbúðir
í nýju hverfi í Mosfellsbæ. Þar munu sölumenn okkar taka á móti þér
og svara öllum þínum spurningum.
Skipulag og hönnun hverfisins er til fyrirmyndar. Gott rými er á milli
húsa og bæði leikskóli og skóli eru í göngufæri án þess að fara þurfi
yfir fjölfarnar götur.
Íbúðirnar eru vel hannaðar og með sér inngangi. Húsin eru einangruð
að utan og klædd með áli og harðviði.
Opið hús í dag
miðvikudag kl.16–18
Sýnum glæsilegar nýjar íbúðir
við Klapparhlíð 26 í Mosfellsbæ
SJÓNVARP Leikarinn David Hyde
Pierce, sem leikur Niles Crane í
sjónvarpsþáttunum „Frasier“,
segir væntanlega elleftu seríu
vera þá síðustu. Hann segir að
leikarahópurinn vilji hætta á með-
an þátturinn eigi enn vinsældum
að fagna.
„Það bendir allt til þess að
þetta verði síðasta serían,“ sagði
Pierce í nýlegu viðtali. „Það er
okkur að minnsta kosti sagt, að
þetta sé búið eftir næstu seríu.
Það verður erfitt að hætta. Okkur
finnst þetta öllum enn skemmti-
legt. Ég vil samt sjá þetta enda
með stæl.“
Þátturinn hefur verið með
þeim langlífustu í bandarísku
sjónvarpi en frekar óalgengt er
að gamanþættir endist í tíu serí-
ur. Síðustu árin hafa vinsældir
þáttanna þá dvínað á sama tíma
og framleiðslukostnaðurinn hef-
ur aukist. Þar setja líklegast him-
inháar launakröfur aðalleikarans
Kelsey Grammer strik í reikn-
inginn. Hann fær 118 milljónir
króna fyrir að leika í einum
þætti. Það ætti því ekki að koma
neinum á óvart að hann vilji endi-
lega halda áfram eins lengi og
hægt er.
Eins og margir muna kom
persónan Frasier Crane fyrst
fram í þættinum „Cheers“ eða
Staupasteini eins og hann hét hér.
Frasier hefur unnið 31 Emmy-
verðlaun. ■
FRASIER
Nú þegar er búið að gera tíu seríur af „Frasier“. Framleiðendur ætla að gera eina til viðbótar en hætta svo.
Frasier:
Næsta sería sú síðasta