Fréttablaðið - 08.05.2003, Qupperneq 16
16 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
EINBEITTUR
Rússneski tenniskappinn Yevgeny
Kafelnikov var einbeittur á svip í viðureign
sinni við Ítalann Giorgio Galimberti á
Opna Ítalska meistaramótinu í tennis í
gær. Einbeitingin bar árangur þvi
Kafelnikov vann leikinn 7:5 og 6:1.
Tennis
FÓTBOLTI Erlendir leikmenn eru
marksæknastir í flestum helstu
deildum Evrópu. Serbinn Mateja
Kezman hefur skorað 31 mark
fyrir PSV Eindhoven í hollensku
deildinni en markahæsti Hollend-
ingurinn, Roy Makaay, hefur
skorað 27 mörk fyrir Deportivo
La Coruña á Spáni.
Hollendingur er einnig marka-
hæstur á Englandi, Kongómaður
og Portúgali í Frakklandi, Svíi í
Skotlandi, Úrúgvæi í Sviss og
Spánverji af dönskum ættum í
Þýskalandi.
Heimamenn eru markahæstir í
þremur löndum. Tveir belgískir
leikmenn deila efsta sætinu í
Belgíu með Norðmanninum Ole-
Martin Årst. Arnar Grétarsson er
sjötti markahæstur í Belgíu með
17 mörk.
Christian Vieri (Inter-
nazionale) er markahæstur á Ítal-
íu með 24 mörk, átta fleiri en Al-
essandro Del Piero (Juventus) og
Filippo Inzaghi (Milan). Rúmen-
inn Adrian Mutu (Parma) er
markahæstur erlendra leikmanna
á Ítalíu með 15 mörk.
Simão Sabrosa (Benfica) er
markahæstur í Portúgal, einu
marki á undan Brasilíumanninum
Adriano Vieira Louzada hjá CD
Nacional.
Eistlendingurinn Andrei
Krõlov (TVMK Tallinn) er marka-
hæstur í Evrópu með 37 mörk og
Armeninn Arman Karamyan (FC
Pyunik) er næstur með 36 mörk.
Þriðji er Mateja Kezman (PSV
Eindhoven) með 31 mark. Roy
Makaay (Deportivo La Coruña)
og Henrik Larsson (Celtic) hafa
skorað 27 mörk. Krõlov fær þó
ekki gullskóinn sem samtök evr-
ópskra knattspyrnutímarita veita.
Í keppninni um gullskóinn er
reynt að jafna styrkleikamun
deildanna með mismunandi stuðl-
um. Deildir þeirra þjóða sem eru í
1. til 8. sæti á styrkleikalista
UEFA fá stuðulinn tvo, þær sem
eru í 9. til 21. sæti stuðulinn 1,5 en
aðrar deildir stuðulinn einn. Þar
með verður Makaay efstur með 54
stig en Kezman er í 4. sæti með
46,5 stig þar sem stuðullinn fyrir
hollensku deildina er 1,5. Ruud
van Nistelrooy (Man. United) og
Christian Vieri (Internazionale)
eru í 2. sæti með 48 stig en þeir
hafa skorað 24 mörk. ■
ROY MAKAAY
Hollendingurinn Roy Makaay í baráttu við Portúgalann Fernando Couto í landsleik þjóðanna
í lok apríl. Makaay leikur með Deportivo La Coruña á Spáni og Couto með Lazio á Ítalíu.
AUSTURRÍKI
Axel Lawree
(Belgi/SW Bregenz) 16
BELGÍA
Ole-Martin Årst
(Norðmaður/Standard Liége) 21
Wesley Sonck
(Belgi/RC Genk) 21
Cedric Roussel
(Belgi/RAEC Mons) 21
ENGLAND
Ruud van Nisterooy
(Hollendingur/Man. Utd.) 24
FRAKKLAND
Shabani Nonda
(Kongómaður/Monaco) 20
Pauleta
(Portúgali/Bordeaux) 20
HOLLAND
Mateja Kezman
(Serbi/PSV Eindhoven) 31
ÍTALÍA
Christian Vieri
(Ítali/Inter Milano) 24
PORTÚGAL
Simão Sabrosa
(Portúgali/Benfica) 17
SKOTLAND
Henrik Larsson
(Svíi/Celtic) 27
SPÁNN
Roy Makaay
(Hollendingur/Deportivo) 27
SVISS
Richard Nuñez
(Úrúgvæi/Grasshoppers) 18
ÞÝSKALAND
Thomas Christiansen
(Spánverji/Bochum) 18
Marksæknir útlendingar
Erlendir leikmenn eru markahæstir í flestum stærri deildum Evrópu.
Hollendingurinn Roy Makaay er efstur í keppninni um gullskóinn.
KÖRFUBOLTI Sacramento Kings
vann Dallas Mavericks með 124
stigum gegn 113 í fyrstu viður-
eign liðanna í úrslitakeppni NBA-
deildarinnar í fyrrakvöld.
Peja Stojakovic var stigahæst-
ur í liði Kings með 26 stig og Chris
Webber bætti við 24 stigum.
Kings hafði mikla yfirburði í
leiknum og náði m.a. 20 stiga for-
ystu snemma í þriðja leikhluta.
Detroit Pistons vann Phila-
delphia 76ers 98:87. Richard
Hamilton skoraði 25 stig fyrir
Pistons, en Allen Iverson setti nið-
ur 27 stig fyrir 76ers. ■
Kvennalandsleikir háðir á
Íslandi:
Þeir fyrstu
síðan 1997
KÖRFUBOLTI Dagana 23. og 25. maí
næstkomandi verða fyrstu
kvennalandsleikirnir háðir hér á
landi í sex ár, eða síðan 1997.
Þá kemur norska landsliðið í
heimsókn og leikur þrjá leiki við
okkar stúlkur.
Karlalið Norðmanna kemur
einnig til landsins og leikur þrjá
leiki við landsliðið okkar. Landslið
þjóðanna hafa mæst 39. sinnum.
Þessir leikir eru hugsaðir sem lið-
ur í undirbúningi liðanna fyrir
Smáþjóðaleikana sem verða
haldnir á Möltu í byrjun júní.
Guðmundur Bragason, leik-
maður Grindavíkur kemur aftur
inn í karlalandsliðið eftir nokkurt
hlé. Auk þess eru tveir leikmenn
af erlendum uppruna í hópnum,
þeir Brenton Birmingham og
Damon Johnson.
Leikirnir verða spilaðir í
Keflavík föstudaginn 23. maí, í
Reykjavík laugardaginn 24. maí
og sunnudaginn 25. maí að Ásvöll-
um í Hafnarfirði. ■
ÍR
ÍR-ingar geta jafnað metin með sigri gegn
Haukum í kvöld.
Úrslitakeppnin í hand-
bolta:
ÍR-ingar geta
jafnað metin
HANDBOLTI ÍR-ingar geta jafnað
metin gegn Haukum í Austur-
bergi í öðrum úrslitaleik liðanna í
Esso deild karla í handbolta í
kvöld.
Haukar unnu fyrri leikinn með
nokkrum yfirburðum og því eiga
lærisveinar Júlíusar Jónassonar
harma að hefna.
Fari svo að Haukar vinni leik-
inn í kvöld geta þeir tryggt sér Ís-
landsmeistaratitilinn á heimavelli
sínum að Ásvöllum á sunnudag-
inn. ■
KR:
Formaður
kosinn í kvöld
ÍÞRÓTTIR Nýr formaður KR verður
kjörinn á aðalfundi félagsins í
kvöld. Kristinn Jónsson, sem hef-
ur verið formaður félagsins í 12
ár, tilkynnti eftir endurkjör á að-
alfundi KR í fyrra að hann væri
að hefja sitt síðasta ár í embætt-
inu.
Guðjón Guðmundsson er einn í
kjöri til formanns félagsins en
hann hefur verið formaður knatt-
spyrnudeildar KR frá 1998. Hann
sagði sig úr stjórn deildarinnar á
þriðjudag og var Magnús Ingi-
mundarson kosinn formaður í
hans stað. ■
AP
/M
YN
D
STOJAKOVIC
Peja Stojakovic, leikmaður Sacramento Kings, var í stuði í fyrrakvöld og skoraði 26 stig.
Michael Finley, leikmaður Dallas Mavericks, fylgist með.
Úrslitakeppni NBA:
Yfirburðir hjá Kings
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Oliver Kahn, markvörð-
ur Bayern München, hefur gefið í
skin að hann sé á leið frá félag-
inu. Í vikulegum dálki sínum í
Bild segir hann að hann hafi unn-
ið allt sem hægt sé að vinna með
Bayern og leiðir hugann að nýj-
um viðfangsefnum á nýjum stað.
„Ef þú leikur erlendis þarftu að
sanna þig að nýju. Þú þarft að
byrja frá grunni. Það getur verið
ágætt því það býður upp á nýja
möguleika.“
Kahn kom til Bayern frá
Karlsruhe árið 1994. Hann lék
með yngri flokkum Karlsruhe frá
sex ára aldri og loks með aðalliði
félagsins árið 1987. Þremur árum
síðar varð hann aðalmarkvörður
Karlsruhe.
Afrekaskrá Kahns staðfestir
það að hann hefur unnið allt sem
hægt er að vinna með Bayern.
Hann hefur fimm sinnum orðið
þýskur meistari með félaginu,
einu sinni bikarmeistari og árið
2001 varð hann Evrópumeistari
og Heimsmeistari. Kahn lék sinn
400. leik í Búndeslígunni þegar
Bayern vann Kaiserslautern um
síðustu helgi. ■
OLIVER KAHN
Kahn fagnar sigri Bayern í þýsku deildinni
eftir leikinn gegn Wolfsburg 26. apríl.
Þýska knattspyrnan:
Kahn á leið frá Bayern?