Fréttablaðið - 08.05.2003, Page 48

Fréttablaðið - 08.05.2003, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar SIGURJÓNS MAGNÚSAR EGILSSONAR Eins og flestir blaðamenn geng égmeð bók í maganum. Mín á að verða mjög góð. Þekki mann sem er að verða 100 ára og var meira en 70 ár til sjós. Hann var á sjó báðar heimsstyrjaldirnar, í Halaveðrinu, öllum þorskastríðunum og svona má lengi telja. Þegar hann byrjaði var engin höfn í Reykjavík, bara bryggjusporður. Hann var elstur systkinana og var aðeins tíu ára þeg- ar pabbi hans dó. Sá hafði verið á kútter Sigríði undir formennsku hins mikla sægarps Björns í Ánanaustum. HANN GRÉT og móðirin grét. Framtíð heimilisins í óvissu. Ekkja með fjögur börn og engar trygging- ar. Það var bankað, Björn í Ána- naustum var kominn. Hann sagði að þeir vildu að strákurinn fengi pláss föðurins. Móðirin fylgdi syninum til skips. Hann kom sér fyrir í jullunni sem róið var í átt að kútter Sigríði sem lá við festar. Hún var í senn stolt af syni sínum og kvíðin, aðeins tíu ára gamall að fara til sjós og ger- ast fyrirvinna heimilisins. Blessað barnið. HANN HORFÐI á móðurina þar sem hún stóð á bryggjusporðinum. Hann sá að hún hafði spennt greipar í bæn sinni um að allt færi vel. Hún var bænheyrð. Mörgum árum síðar var hann í kolalest á togara sem var við það að velta og sökkva í kaldan sjóinn. Þetta var í Halaveðrinu. Mörg skip sukku og margir sjómenn drukknuðu. Ekki hann, honum og hans félögum tókst að moka kolun- um yfir í hina síðu skipsins og rétta það við. Í þrjá sólarhringa mokuðu þeir í ótrúlegri baráttu í von um að bjarga sér frá drukknun. ÉG HEF aðeins stiklað á stóru. Það sem mér þykir merkilegast er að út- gefendur segjast vilja sjá til hvort hún eigi erindi á prent, saga manns sem var á sjó í 70 ár, bjargaði heim- ili sínu tíu ára, slapp við árásir óvina í tveimur heimsstyrjöldum, mokaði kolum í svarta myrkri til að bjarga eigin lífi og annarra og er fullur af þakklæti þegar hann horfir yfir far- inn veg. ■ Með bók í maganum Velferð Stutt ávörp flytja: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Össur Skarphéðinsson Jóhanna Sigurðardóttir Guðmundur Árni Stefánsson Fimmtudaginn 8. maí kl. 17:00–19:00 Birgitta Haukdal og Írafár taka Eurovisionlagið og nokkra Írafárssmelli Reynistaðarbræður, Halldór Gylfason og Freyr Eyjólfsson syngja, leika og fara með gamanmál Dísella Lárusdóttir syngur m.a. vinsæl lög úr Disneymyndum Fimleikasýning frá Gerplu Ríó tríó tekur lagið Sirkusatriði úr leikritinu Rómeó og Júlíu Hinir ægivinsælu sjónvarpsmenn Sveppi og Auddi koma enn á óvart Trúðar • Blöðrur • Andlitsmálun fyrir börnin • Harmonikkuleikur Hátíðinni stýrir Helgi Pétursson Allir velkomnir! Fjölskylduhátíð í Vetrargarðinum í Smáralind

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.