Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 27
fast/eignirMÁNUDAGUR 14. júlí 2003 13
sölu hjá
Borgartún 30 A og B
Stórglæsilegt 6 hæða lyftuhús með stórum og
björtum íbúðum sem hannaðar eru með þægindi
íbúa í huga af Ingimundi Sveinssyni arkitekt.
Íbúðirnar eru sérlega vandaðar 130-150 fm á
frábærum stað í höfuðborginni, mitt á milli
Laugardals og miðbæjarins. Yfirbyggður sólskáli
gengur úr stofu mót suðri. Lyftur ganga beint úr
bílastæðahúsi og opnast beint inn í flestar íbúðirnar.
Öllum íbúðum fylgir sér stæði í bílageymsluhúsi.
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna að
undanskyldum baðherbergis- og þvottahúsgólfum.
Laugarnesvegur 87 og 89
Eigum eftir örfáar rúmgóðar íbúðir á einum eftirsóttasta
stað í bænum (gamla Goðalóðin) í hjarta borgarinnar.
Frábærlega hannaðar, bjartar og sólríkar íbúðir í 5 og 6
hæða fjölbýlishúsi með lágmarksviðhaldi. Húsin eru einangruð
að utan, klædd álklæðningu og harðviði. Sérstök áhersla er
lögð á hljóðvist. Dyrasími er tengdur myndavél í anddyri.
Val er um viðartegundir á innréttingum og hurðum.
Skemmtilegt útsýni er úr íbúðunum. Sérinngangur er í íbúðir
af svalagangi eða beint af jarðhæð og er hert gler í
svalagöngum til að skýla fyrir veðri og vindum. Teiknistofan
Úti og Inni hannaði húsin.
nnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á
Innréttingar eru sérlega vandaðar, en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina að eigin smekk tökum við vel í slíkar óskir.
Þær þurfa þó að koma fram í tíma.
Breytingar á íbúðum
Þórðarsveigur – Grafarholti
Skemmtilega hannaðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja
íbúðir í 4ra og 5 hæða lyftuhúsi á eftirsóttum og
fallegum útsýnisstað. Sérinngangur af svalagangi
eða beint af jarðhæð í hverja íbúð. Vandaðar innrétt-
ingar. Þvottahús er í öllum íbúðum. Mjög stutt er
í alla þjónustu og er leikskóli steinsnar frá húsinu.
Húsið er steinsallað að utan og þarfnast því lítils
viðhalds. Kanon arkitektar hönnuðu húsin.
Klapparhlíð Mosfellsbæ
Hlíðahverfi í Mosfellsbæ er fallegt og vel staðsett hverfi þar
sem Íslenskir aðalverktakar standa að uppbyggingu á blandaðri
byggð glæsilegra raðhúsa og fjölbýlishúsa, auk skjólgóðs
útivistarsvæðis. Byggðin rís á framtíðarbyggingarsvæði
Mosfellsbæjar. Við hönnun hverfisins var leitast við að
láta húsin snúa sem best með tilliti til sólar og útsýnis.
Fjölbýlishúsin við Klapparhlíð 7-13 eru á þremur hæðum með
15 íbúðum hvert. Íbúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja
(63-101 fm) og henta því flestum fjölskyldustærðum vel. Sér
þvottahús er í öllum íbúðum og sér afnotaréttur af lóð fyrir
íbúðir á jarðhæð, en suðursvalir á hæðum.
Raðhúsin eru á tveimur hæðum og er hvert hús um 170 fm.
Húsin eru með innbyggðum bílskúr og rúmgóður garður snýr
vel í suður. Frágangur húsanna við afhendingu er mun betri
en almennt gerist með fokheld hús, t.d. hvað varðar utan-
húsklæðningu.
Mjög falleg hönnun, gott útsýni og rými milli húsa.
Sérinngangur í fjölbýlishúsíbúðir er af svalagangi eða af
jarðhæð. Húsin eru klædd bárumálmi og harðviði og þarfnast
því lítils viðhalds. Öll þjónusta er við höndina, skóli og
leikskóli í næsta nágrenni. Barnvænt umhverfi. Teiknistofan
Úti og Inni sá um hönnun húsanna.
Verð frá 10,4 millj.
boði
Steinás – Njarðvíkum
Glæsileg, vel hönnuð tæplega 140 fermetra parhús
á einni hæð við Steinás í Njarðvíkum. Húsin eru
klædd að utan með álklæðningu og harðviði. Þau
eru með innbyggðum bílskúr og er í þeim gólfhiti.
Þeim er skilað tilbúnum til innréttinga en að auki
eru innveggir spartlaðir og grunnmálaðir. Að utan
eru þau fullbúin með fullfrágenginni lóð með hita
í stéttum og garður tyrfður. Húsin standa á mjög
fallegum og eftirsóttum stað í Njarðvíkum.
Smáraflöt – Akranesi
Skemmtilega hönnuð raðhús á einni hæð með
innbyggðum bílskúr. Húsin eru timburhús á
steyptum sökkli, klædd að utan með bárumálm-
klæðningu og þarfnast því aðeins lágmarksviðhalds.
Húsunum verður skilað fokheldum að innan en
fullbúnum að utan með grófjafnaðri lóð.
Húsin standa á skemmtilegum stað á nýjasta
byggingarsvæði Akraness.