Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 14. júlí 2003                !" #   $  " %    &    '      #  " (  )*  " #     + , + !     # & ''"$ ) - '."/ ) -    * 0 * 1  !  2)0 %#  0      /" '  3+)  4 56/ 6/6/  .. .6     RIMASÍÐA Rimasíða 10 á Akureyri er fallegt einbýlishús. Rimasíða 10/ Fallegt einbýlis- hús á Akureyri Að Rimasíðu 10 á Akureyri ertil sölu fimm herbergja 145,1 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 32,4 fm bílskúr. Gengið er inn í forstofu með vönduðum eikarskáp, flísar á gólfi. Þaðan er gengið inn í stofu sem er parketlögð, loft eru tekin upp og kappalýsing er yfir öllum gluggum. Í stofunni er afmarkað sjónvarpshorn og þar er útgengt á hellulagða afgirta verönd sem er sólrík og skjólgóð og snýr í suð- vestur. Eldhús er aðskilið frá stofu með furuinnréttingu og eru skáp- ar aðgengilegir bæði frá borð- stofu og eldhúsi. Í eldhúsi er vönduð rúmgóð furuinnrétting, flísar á gólfi og milli skápa, hellu- borð og ofn. Ísskápur mun fylgja. Gengið er úr eldhúsi í rúmgott þvottahús sem er flísalagt og með hillum. Bakdyraútgangur er úr þvottahúsinu. Lítil snyrting og geymsla eru inn af herberginu. Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketti á gólfum, innbyggð- um fataskáp með snyrtiborði og spegli í hjónaherbergi. Skápar eru allir hvítir í frönskum stíl. Baðherbergi er stórt með sturtu og baðkari og tvær hand- laugar eru í innréttingu, sem einnig er hvít í frönskum stíl. Flísar á veggjum eru munstraðar í bláum lit en á gólfi eru hvítar flísar. Sturtuklefi er steyptur og flísalagður. Baðsett er blágrænt auk þess sem kranar og blöndun- artæki eru úr burstuðu silfri. All- ar innihurðir eru hvítar fulninga- hurðir, sprautulakkaðar og mjög vandaðar. Útihurðir eru úr gegn- heilu tekki. Aðkoma að húsinu er upphituð, svo og hluti af bílaplani, sem er hellulagt og rúmar vel tvo til þrjá bíla. Lóð er stór og vel ræktuð með fallegum gróðri. All- ur frágangur á lóð og bílaplani er sérlega vandaður og viðhald gott. Í bílskúrslofti eru lítilsháttar rakaútfellingar. Ásett verð er 19,5 milljónir króna. Nánari upplýsingar fást hjá fasteignasölunni Framtíðinni. ■ Skyldur seljenda fast- eigna/ Upplýsa kaupendur um galla A Hann sýnir eignina og upp-lýsir kaupanda um þá galla sem hann má ætla að hafi þýðingu fyrir mat kaupanda á eigninni. B Hann sér til þess að kaupandifái eignina afhenta á réttum tíma og í því ástandi sem lýst er í kaupsamningi. C Hann afléttir veðskuldumsem kaupandi yfirtekur ekki. D Hann gefur út afsal til kaup-anda fyrir fasteigninni. ■ Þórarinn Jónsson Lögmaður, löggiltur fasteignasali Jón Kristinsson sölumaður GSM 894 5599 Viðar F. Welding Sölumaður GSM 866 4445 www.eignanaust.is Vitastígur 12 – 101 Rvík – Sími 551 8000 – Fax 551 1160 Einbýli - raðhús Ljósavík Glæsilegt 160 fm raðhús ásamt 27 fm bílskúr, 4 svefnherbergi, gestasnyrt- ing og baðherbergi, sjónvarpshol og stofa. Húsið er til afhendingar nú þeg- ar, fullfrágengið án gólfefna. Áhvíl. 9,0 millj. húsbr. Verð 23,0 millj. Núpabakki Endaraðhús með innbyggðum bílskúr 245 fm. 4 svefnherbergi, sólstofa, 2 stofur, útsýni, skólar og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð 20,9 millj. Þorláksgeisli Raðhús, 200 fm með innbyggðum 30 fm bílskúr. Gert ráð fyrir 4-5 svefn- herbergjum. Húsin seljast fokheld fullfrágengin að utan. Verð 14,9 millj. Nýbyggingar Blásalir Vandaðar nýjar íbúðir, fullinnréttaðar án gólfefna, ásamt stæði í bílahúsi. Seljandi getur lánað allt uppí 85% af kaupverði. Lómasalir 4ra herbergja íbúðir með sér inn- gangi og stæði í bílahúsi, til afhend- ingar tilbúnar til innréttingar eða full- frágengnar án gólfefna. Hamravík Glæsileg 3ja herb. 117fm endaíbúð með sérgarði, fullfrágengin án gólf- efna. Verð 15,0 millj. Hamravík Glæsileg 4ra herb. 134fm íbúð, full- frágengin án gólfefna, skólar og þjón- usta í næsta nágrenni. Verð 16,9 millj. 4-5 herbergja íbúðir Árkvörn-Ártúnsholti Falleg 4ra herbergja endaíbúð 118fm á 2hæð með sér inngangi. 3 stór svefnherbergi, sér þvottahús, skólar í næsta nágrenni. Verð: 16,9 millj. Stóragerði 4ra herbergja 106 fm íbúð á 3. hæð. 2 stofur og 2 svefnherbergi. Tengt fyrir þvottavél á baði. Í kjallara fylgir herbergi. Verð 13,3 millj. 3ja herbergja íbúðir Hringbraut-Hafnarfirði Falleg 3ja herbergja 77 fm efri hæð í tvíbýli, tvær skiptanlegar stofur og svefnherbergi, einnig herbergi í kjall- ara. Húsið er steinhús byggt 1951. Hjaltabakki Falleg 3ja herb 89fm íbúð á 1 hæð með sér garði. Nýlegt eldhús og bað, parket. Áhvíl: Bygg.sj. 4,4 millj. 4,9% vextir, greiðslubyrði á mán. 23 þús. Verð: 11,2 millj. Bergstaðarstræti Falleg 3ja herb. 98fm íbúð á 2hæð, með parketi og útsýni uppá Bald- urstorg. Verð 13,2 millj. Laufásvegur Glæsileg 3ja herbergja 93 fm íbúð á 2 hæð í steinhúsi. Tvær stofur, svefnherbergi og geymsla. Nýtt eld- hús og bað. Verð 14,5 millj. Jörfagrund Kjalarnesi Björt 3-4ra herbergja 91 fm íbúð á 2. hæð í fjórbýli. Sér inngangur, 2-3 svefnherbergi, stofa með fallegu út- sýni. Sér þvottahús. Verð 11,4 millj. 2ja herbergja íbúðir Æsufell 2ja herbergja 55 fm íbúð á 2 hæð. Fallegt útsýni yfir borgina og útá sundin. Verð: 7,4 millj. Opið virka daga 9-17 Álfheimar 60 2.hæð h - Opið hús Glæsileg nýinnréttuð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð, 3 svefnherbergi, rúmgóð stofa. Nýtt eikarparket og ný eldhúsinnrétting. Frábær stað- setning við útivistarparadísina í Laugardal. Laus strax. Verð 15,2 millj. Opið hús í dag milli 17-19 Rauðarárstígur 41 - Opið hús Falleg 5 herb. 103 fm íbúð á tveimur hæðum, í nýlegu húsi, ásamt stæði í bílahúsi. 4 svefnherbergi, sér þvottahús, sér inngangur af svölum. Verð 15,7 millj. Opið hús í dag milli 17-19 3. hæð. Bjalla merkt Hrafnhildur Eignir óskast Fjársterkir kaupendur óska eftir tveimur rúmgóðum sérhæðum 120-160fm í miðborginni, aðeins góð staðsetning á svæðinu kemur til greina. BAKKI.COM FASTEIGNASALA 533 4004 SKEIFUNNI 4 Árni Valdimarsson lögg. fast. Valdimar, sölumaður 822 6439 Vættaborgir GLÆSILEGT PARHÚS Á GÓÐUM STAÐ!!!! Byggt:1997 parhús. Herb: 3 + 1 Stofa. Stærð 135,4m2. Stærð bílskúrs 31,1m2. Sérlega vandað, viðhaldslítið klætt með skeljasandi og velskipulagt parhús sem getur verið til af- hendingar fljótlega. Stór suðurgarður, með stórri verönd, innréttingar sérlega fallegar. Göngluleiðir um sundin blá og Esjan er al- veg sjúkleg... Verð 22,5millj Brekkubyggð Garðabæ Byggt 1983 Raðhús Herb 2+1 Stærð 75,8m2. Otrúlega lekkert og huggulegt rað- hús á frábærum stað . Garðbæingar eru in- dælisfólk svo þú verður heppin með ná- granna og svo skín sólin svo fallega þarna í Brekkubyggðinni. Þú getur meira að segja flutt inn fljótlega svo best er að drífa sig að skoða og fara svo bara að pakka. Verð 12,9millj. Reykjabraut 15 Þorlákshöfn Steypa Byggt:1965 Einbýlishús. Herb: 3 + 1. Stofa. Stærð 105,1m2. Stærð bílskúrs 38. Hér er búið að skipta um bæði gler og glugga. Garður- inn er einstaklega skjól- góður með miklum trjá- gróðri, kofi á suðurlóð fyrir börnin til að leika sér í. Sannarlega eign fyrir fjölskylduna. Verð 12,7 millj. Blásalir 22 Fjölbýli 2-3-4herb. Ef þú ert fagurkeri og vilt búa í vönduðu húsi þar sem ekkert hefur verið til sparað að gera íbuðirnar sem glæsilegastar, þá er þetta eign fyrir ykkur. Segja má að hér sé sérbýli í fjölbýli, því hljóðeinangrun á milli íbúða er sérlega vönduð sem annað. Útsýnið er eitt hið besta á höfuðborgar- svæðinu. Vandaðar innréttingar frá Húsa- smiðjunni. Sjón er sögu ríkari. Seljandi lán- ar allt að 85% kaupverðs á hagstæðum kjörum. Lyklar á skrifstofu. Verð frá 13,7millj. Íragerði Stokkseyri Einbýlishús m bílskúr Hér er sannarlega húseign, þar sem hægt er að setjast niður og hlusta á nið aldanna. Al- gjör draumaeign fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar og unaðar við ströndina. Á neðri hæð er stofa, eldhús og hol allt mjög rúmgott. Fallegur furustigi liggur upp á efri hæð og þar er fjölskyldu- rými með fallegu merbau parketi, 3 svefnherbergi og vandað baðher- bergi. Útsýnið af efri hæðinni er stórbrotið. Þetta er lúxuseign sem vert er að kanna frekar. Verð 15,3millj. Erum með eina ósk heitari en aðra þessa vikuna, eigandi vandaðs raðhúss í Þor- lákshöfn vill skipta á eign á Reykjavíkur- svæðinu....Allar upplýsingar á skrifstofu. Allir sem selja eða kaupa hjá Bakka lenda í Sólhattinum og eiga þá möguleika á því að fara til Mall- orca í haust en þar er , eins og allir vita, gott að djamma og djúsa ... á sandölum og ermalausum bol! Nánari upplýsingar: Eignamiðlun Norðurlands S: 461-2900 Daníel s: 660-2951 eða Arnar 660-2950 Sólarsalir 6 Stærð eignar: 156,3fm. m. bílskúr Herbergi: 4 Byggingarár: 2003 Verð: 19,5 millj. Glæsileg fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð við Sólarsali, frábær eign á góðum stað. Íbúðin er í byggingu (vantar gólfefni) og fylg- ir henni bílskúr, innréttingar eru mjög vandaðar. Aðeins ein íbúð í þessu vandaða húsi eftir til sölu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.