Fréttablaðið - 21.08.2003, Page 2

Fréttablaðið - 21.08.2003, Page 2
2 21. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR Að sjálfsögðu, og við bjóðum öllum til laxveiði í Norðfirði sem ekki hefur verið boðið í íslenskar laxveiðiár. Guðmundur Bjarnason er bæjarstjóri í Fjarða- byggð. Þúsundir laxa sluppu úr eldiskví í höfnina í Norðfirði í gær. Spurningdagsins Guðmundur, á að bjóða í lax? Þrjú þúsund eldislaxar sluppu Gat kom á eldiskví í höfninni í Norðfirði í gærmorgun með þeim afleiðing- um að tæplega þrjú þúsund laxar sluppu. Tekist hafði að fanga 60-70 þeirra í gærkvöldi. „Mikill skaði fyrir fiskeldið,“ segir landbúnaðarráðherra. FISKELDI Tæplega þrjú þúsund lax- ar sluppu úr eldiskví í höfninni í Norðfirði í gærmorgun. Um 4.000 laxar voru í kvínni og hafði Síldar- vinnslan á Neskaupstað fengið þá frá Víkurlaxi í Eyjafirði til slátr- unar. Þegar verið var að dæla úr kvínni kom í ljós að gat var á henni og höfðu 2.700 til 2.800 lax- ar sloppið. Lagðir voru tugir neta í sjó til þess að fanga eins mikið af laxin- um og mögulegt er, að sögn Björgólfs Jóhannssonar, for- stjóra Síldarvinnslunnar, en í gærkvöldi hafði tekist að ná 60 til 70 löxum á land. Ekki er enn vit- að hvað olli því að gat kom á kvína, en að sögn Björgólfs virt- ist hún heil þegar henni var lyft upp í fyrradag. Björgólfur segir kvíarnar ein- ungis hafa verið í höfninni til bráðabirgða. „Við erum búnir að leggja drög að því að setja upp tanka í landi,“ segir Björgólfur, en atburðurinn hefur töluvert fjár- hagslegt tjón fyrir Síldarvinnsl- una í för með sér. „Stærsta tjónið er þó þetta áfall að hafa lent í þessu, miðað við hversu mikið við höfum lagt okkur fram í öryggis- málunum.“ „Ég harma þennan atburð,“ seg- ir Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra. Að sögn Guðna verður í framhaldinu farið rækilega yfir hvað fór úrskeiðis og hvort reglum hafi verið fylgt. „Á þessu þarf að taka og þetta er mikill skaði fyrir fiskeldið,“ segir Guðni. „Auðvitað vona ég að sem mest af þessum fiski náist og fiskeldið taki á sínum málum í framhaldi af þessu,“ segir Guðni. Aðspurður um hvort ekki sé þörf fyrir strangari reglur segist Guðni telja þær reglur sem nú gilda mjög strangar. „Það verður þó skoðað í framhaldi af því þegar þetta mál hefur verið rannsakað til botns.“ „Við höfum miklar áhyggjur af þessu,“ segir Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiði- félaga. „Við höfum fordæmi fyrir því hvaða áhrif það hefur á lífrík- ið þegar eldislax sleppur út í villta náttúru, til dæmis frá Færeyjum. Þar eru árnar stórskaðaðar og sumar ónýtar vegna blöndunar eldislax við villtu stofnana.“ Óðinn telur fullt tilefni til þess að fram fari rannsókn á starfsemi Síldarvinnslunnar. „Það liggur fyrir að þeir hafa ekki farið að reglum eða gætt þess öryggis sem skylt er.“ helgat@frettabladid.is UPPGJÖR Niðurstaða hálfsársupp- gjörs Flugleiða er undir vænting- um greiningardeilda bankanna. Hagnaður á milli annars árs- fjórðungs þessa árs og 2002 dróst saman um 1,2 milljarða. Uppgjör- ið í fyrra var það besta í langan tíma. Greiningardeild Landsbank- ans veltir upp þeirri spurningu hvort ekki hefði verið ástæða fyrir fyrirtækið að senda frá sér afkomuviðvörun. Uppgjörið hafi komið markaðsaðilum á óvart og lækkaði gengið í kjölfar upp- gjörsins. Greiningardeildin telur upplýsingagjöf fyrirtækisins að öðru leyti mjög góða. Greiningardeild Íslandsbanka tekur undir með Landsbanka og segir uppgjörið hafa valdið von- brigðum. Greiningardeildin bjóst við meiri árangri af hagræðingar- aðgerðum og að tekjur drægjust minna saman en raunin varð. Tekjusamdráttur varð í far- þegaflugi og búast greiningar- deildirnar við að verð flugmiða verði áfram undir þrýstingi vegna aukinnar samkeppni. ■ Örlagafundur Impregilo og starfsgreinasambanda í dag: Vilja spilin á borðið VIRKJUN Samráðsnefnd um virkj- anasamning fundar í dag um meint aðstöðuleysi starfsmanna og meint ólöglega lág laun út- lendra starfsmanna við Kára- hnjúkavirkjun, Á fundinum verða Þórarinn V. Þórarinsson og Roberto Velo af hálfu Impregilo auk fulltrúa Samtaka at- vinnulífsins og fulltrúa frá Samiðn, Rafiðnaðarsambandinu, Starfs- greinasambandinu, Matvís og ASÍ. „Þeir segjast munu leggja fram áætlun um uppbyggingu á starfs- mannaaðstöðu. Einnig á að ræða fyrirkomulag vakta í mötuneyti,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. Þorbjörn segir þess vænst að Impregilo leggi loks fram gögn um laun erlendra virkjanastarfs- manna. „Við viljum gögn sem staðfesta að þeir séu ekki á laun- um sem eru undir lágmarksvið- miðunum virkjunarsamningsins.“ Að sögn Þorbjörns hafa aðeins verið afhentir örfáir samningar fyrir 300 til 400 erlenda starfs- menn við Kárahnjúka. Gengið verði eftir sönnunarskyldu sem hvíli á Impregilo: „Á Íslandi er bundið í lög að lágmarkslaun hverrar starfsgreinar eru lág- markslaun fyrir alla á svæðinu. Brjóti menn kjarasamning brjóta þeir líka landslög.“ Útgáfa atvinnuleyfa til út- lendra starfsmanna Impregilo hefur verið stöðvuð í bili. ■ Hvalveiðar: Önnur hrefna skotin HREFNUVEIÐAR Áhöfn Halldórs Sig- urðssonar ÍS skaut fyrstu hrefn- una í gær og er það önnur hrefnan af 38 sem fyrirhugað er að veiða í vísindaskyni í þessum mánuði og hinum næsta. Fyrstu hrefnuna veiddi áhöfn Njarðar KÓ á mánu- dag. Hrefnan, sem var 9 metra lang- ur tarfur, veiddist norður af land- inu, en þar hefur Halldór Sigurðs- son verið við veiðar síðan á sunnu- dag. Fyrst í stað var þó bátnum fylgt eftir af fjölmiðlum og gat áhöfn hans því ekki hafið veiðarn- ar fyrr en nú. ■ Bætur vegna árásar: Byrjuð að borga LÍBÍA Yfirvöld í Líbíu hafa þegar látið af hendi hluta af þeim 2,7 milljörðum Bandaríkjadala sem þau samþykktu að greiða fjöl- skyldum fórnarlamba Lockerbie- árásarinnar í bætur. Upphæðin, sem nemur 217 milljörðum ís- lenskra króna, verður millifærð yfir á bankareikning í Sviss á næstu dögum. Fjölskyldurnar fá bæturnar ekki greiddar fyrr en viðskipta- þvingunum Sameinuðu þjóðanna á Líbíu hefur verið aflétt. Búist var við því að málið yrði tekið fyr- ir í öryggisráðinu í þessari viku en hugsanlegt er að atkvæða- greiðslunni verði frestað vegna sprengjuárásarinnar á höfuð- stöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad. ■ Íslenskt hvalkjöt: Í búðir í dag HVALVEIÐAR Hægt verður að kaupa íslenskt hrefnukjöt í verslunum Hagkaupa frá og með morgundeg- inum, en rúmlega 500 kíló af kjöti verða seld. Boðið verður upp á hrefnusteik og hráa hrefnu á jap- anska vísu í verslun Hagkaupa í Skeifunni klukkan 11:30. ■ GRÆNFRIÐUNGAR Samtökin hafa hætt að mótmæla með þeim hætti sem hér sést. Grænfriðungar koma: Hyggjast funda með ráðherra HVALVEIÐAR „Við áætlum að skip okkar, Rainbow Warrior, leggist að bryggju í Reykjavíkurhöfn þriðja september,“ sagði Frode Pleym, talsmaður Grænfriðunga á Norðurlöndum, en Grænfrið- ungar vildu kanna áhuga lands- manna áður en tekin væri loka- ákvörðun um að senda skipið hingað til lands. „Við höfum fundið fyrir tals- verðum áhuga, nógum til að við tækjum þá ákvörðun að koma. Margir Íslendingar eru á móti hvalveiðum og við munum sýna þeim stuðning og eins eiga viðræð- ur við aðra aðila sem áhuga hafa á málinu. Einnig er það ætlun okkar að eiga spjall við sjávarútvegsráð- herra og koma þeim skilaboðum áleiðis að veiðar á hval hafi enga þýðingu fyrir Ísland, hvorki vís- indalega né efnahagslega.“ Pleym segir að í 16 manna áhöfn Rainbow Warrior sé Geld Leipold, úr framkvæmdastjórn Grænfriðunga, en hann kom einnig hingað þegar Grænfrið- ungar höfðu hér uppi mótmæli fyrir 25 árum síðan. „Hann verður með í för og mun leiða hópinn á ferðinni um Ísland. Ætlunin er að koma við í fimm höfnum víðs veg- ar á landinu og gefa áhugasömum tækifæri á að koma um borð og heyra okkar hlið mála.“ ■ KÁRAHNJÚKAVIRKJUN „Við viljum gögn sem staðfesta að þeir séu ekki á launum sem eru undir lágmarksviðmiðunum virkjunarsamnings- ins,“ segir Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar. VONBRIGÐI Afkoma Flugleiða var verri en greiningardeildir bankanna bjuggust við og Landsbankinn veltir því fyrir sér hvort fyrirtækið hefði átt að senda frá sér afkomuviðvörun. Vonbrigði með Flugleiðir: Ástæða til viðvörunar ELDISKVÍ Löxum dælt í kví í höfninni í Neskaupstað. NESKAUPSTAÐUR Þrjú þúsund eldislaxar sluppu í höfnina á Norðfirði í gærmorgun, en gat kom á kví sem laxarnir höfðu verið í. Tölvuormur veldur óþægindum: Tölvupóstur glatast TÖLVUR Tölvuormurinn Sobig, sem veldur því að tölvupóstföng notenda fyllast af ruslpósti, hef- ur valdið tölvupóstnotendum töluverðum óþægindum síðan á þriðjudag. Komist ormurinn inn í tölv- una leitar hann þar að tölvupóst- föngum og byrjar að senda sig út. „Það sem gerir þennan orm ólíkan öllu því sem við höfum áður séð er hvað hann sendir of- boðslega mikið af sér,“ segir Friðrik Skúlason, eigandi Frið- riks Skúlasonar ehf., en að sögn Friðriks voru rúmlega 68% af pósti sem fór um vefinn í gær eintök af orminum. „Vegna gífurlegs magns af skeytum sem eru í umferð getur fólk lent í því að tölvupósthólfið þess yfirfyllist, með þeim afleið- ingum að mikilvægur tölvupóst- ur glatast,“ segir Friðrik, en vit- að er um einn einstakling sem fékk send 40.000 eintök af orm- inum. Að sögn Friðriks er besta leið- in til þess að losna við tölvupóst- inn að sía hann áður en hann kemur til notandans. Uppfærð veiruvarnarforrit duga ekki þar sem þau koma aðeins í veg fyrir að tölvan smitist, en notandinn fær samt sem áður skeytin send. Ormurinn hættir hins vegar að senda sig út 10. september. ■ ALLT Á KAFI Snjónum kyngdi niður á skömmum tíma nærri Höfðaborg. Víða féllu snjóflóð í nálægt fjöllum en það er afar fátítt. Höfðaborg í Suður- Afríku: Kafsnjór og snjóflóð HÖFÐABORG, AP Á sama tíma og hitabylgja gengur yfir Evrópu ríkir vetrarveður í Suður-Afríku. Snjó kyngdi niður í nágrenni Höfðaborgar í gær og var yfir að líta líkt og um hávetur í Evrópu. Að minnsta kosti fimmtíu til sex- tíu sentimetra djúpur snjór lá yfir öllu og notuðu margir tækifærið og hlóðu snjókarla áður en snjór- inn bráðnaði. Úr fjallshlíðum féllu víða lítil snjóflóð. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.