Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 11
debenhams
S M Á R A L I ND
n‡tt Merki
um sjálfstæ›i
Enn bætast n‡ merki vi› frábært úrval merkjavöru
í Debenhams Fyrir konur, karla og börn. DEBENHAMS -
Merki um frábært úrval, hagstæ› kaup og flægilegt
andrúmsloft.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
21
20
09
/2
00
3
Nýr margmiðlunardiskur
ÚTGÁFA Út er kominn hjá Gagarín
margmiðlunardiskur sem hefur
að geyma lifandi efni um sögu og
náttúru Þingvalla. Á disknum,
sem er fyrir PC-tölvur, er nýjustu
margmiðlunartækni beitt til að
skyggnst aftur í aldir og undir yf-
irborð Þingvallavatns. Þar er að
finna talsett efni á fjórum tungu-
málum: íslensku, ensku, þýsku og
dönsku. Hægt er að kynna sér
sögu og náttúru svæðisins með
nýstárlegum hætti og hentar disk-
urinn bæði til fræðslu og fróð-
leiks fyrir ferðamenn sem og
skólafólk og almenning. Efnið
samanstendur af sjónvarpsefni,
kvikmyndum, ljósmyndum, teikn-
ingum og öðru tölvuunnu efni.
Með því að nýta ólíka birtingar-
miðla má skýra betur ýmis atriði
er varða sögu og náttúru svæðis-
ins. Þannig má t.d. sjá þrívíddar-
myndir af þingbúðum, Lögréttu,
jarðsögu Þingvallasvæðisins og
flekahreyfingum. ■
Viðeyjarprinsessa skírð
Prinsessan í Viðey verðurskírð á sunnudaginn. Fer at-
höfnin fram í guðsþjónustu í
Viðeyjarkirkju í dag klukkan 14
en bátsferð verður úr landi hálf-
tíma fyrr. Séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson dómkirkjuprestur
skírir.
„Hún er núna þriggja mánaða
og eina barnið sem á lögheimili
hér,“ segir Ragnar Sigurjónsson,
ráðsmaður í Viðey og faðir
prinsessunnar. Ráðsmannshjón-
in Ragnar og Sigríður Oddný
Stefánsdóttir ætla að slá upp
hlaðborði eftir skírnina en litla
stúlkan er fyrsta barn þeirra.
Fyrir á Ragnar tvö börn.
„Það verður ekki gefið upp
hvað stúlkan heitir fyrr en í
kirkjunni í dag,“ segir Ragnar.
Viðey?
„Nei, ekkert eyjanafn,“ segir
faðirinn. ■
LAUGAVEGUR 24
Nýtt kaffihús fyrir jól.
FLUTNINGAR Eigendur Tes og kaffis
við Laugaveg hyggjast opna
kaffihús að Laugavegi 24, handan
götunnar, þar sem þeir nú reka
verslun og kaffihús. Þröngt hefur
verið um kaffihúsið þar sem það
er nú starfrækt inn af verslun-
inni og með nýja kaffihúsinu,
handan götunnar, á að gera að-
komuna betri og glæsilegri. Nýja
kaffihúsið var teiknað af arki-
tektastofunni Nexusi og hefur
þegar hlotið öll leyfi frá skipu-
lagsyfirvöldum. Kaffihúsið verð-
ur opið á venjulegum verslunar-
tíma en Te og kaffi sér nú þegar
flestum kaffihúsum borgarinnar
fyrir kaffi þannig að þarna verð-
ur kaffibollinn á heimavelli. Opn-
að verður fyrir jól. ■
GAGARÍN
Var að gefa út disk um Þingvelli.
VIÐEYJARPRINSESSAN
Þriggja mánaða með lögheimili í Viðey.
Tímamót
VIÐEYJARPRINSESSAN
■ verður skírð í dag. Athöfnin fer fram í
guðsþjónustu í Viðeyjarkirkju.
Te og kaffi yfir götuna
SUNNUDAGUR 7. september 2003