Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 35
 Hlynur Hallson sýnir ljósmynda- og textaverkið „sund - schwimm - swim“ undir stiganum í galleríinu i8, Klappar- stíg 33. Sýningin stendur yfir til 13. sept- ember. Opið fimmtudaga og föstudaga 11-18, laugardaga 13-17 og eftir sam- komulagi.  Sýning Roni Horn „This is me, this is you“ stendur yfir í gallerí i8, Klapparstíg 33. Sýningu lýkur 13. september. Opið fimmtudaga og föstudaga 11-18, laugar- daga 13-17 og eftir samkomulagi.  Höggmyndasýningin „Meistarar formsins - Úr höggmyndasögu 20. ald- ar“ stendur yfir í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Sýndar eru perlur helstu módernista í evrópskri höggmyndasögu og má þar nefna listamennina Degas, Archipenko, Maillol, Moore, Marino Marini, Manolo, Laurens, Renoir, Bar- lach, Kollwitz, Hartung og samtíma- listamennina Sol LeWitt, Schwegler, Per Kirkeby og Axel Lischke. Á sýning- unni verða einnig verk eftir brautryðj- endur íslenskrar höggmyndalistar, þá Einar Jónsson, Ásmund Sveinsson, Sigurjón Ólafsson og Gerði Helgadótt- ur.  Á Kjarvalsstöðum stendur yfir einkasýning myndlistarmannsins Eyjólfs Einarssonar. Sýningin ber nafnið Hringekjur lífsins og er áherslan á stór málverk sem listamaðurinn hefur verið að vinna undanfarin ár. Sýningin stend- ur til 12. október.  Myndhöggvarinn Sæmundur Valdi- marsson sýnir á Kjarvalsstöðum. Tré- myndir sínar vinnur listamaðurinn úr rekaviðardrumbum og sýna þær ævin- týraverur hulduheima sem standa lands- mönnum nærri í gegnum þjóðtrú og sagnaminni. Sæmundur fagnaði 85 ára afmæli sínu á dögunum.  Hjörtur Hjartarson sýnir í Slunka- ríki á Ísafirði. Þar eru teikningar og mál- verk sem unnin hafa verið á þessu og síðasta ári. Þema verkanna eru mismun- andi „Hópar“ þ.e. ekki einstaklingurinn heldur hvernig hann er innan um sína hjörð. Sýningin í Slunkaríki verður opin kl. 16 -18 fimmtudaga - sunnudaga til sunnudagsins 28. september.  Andri Páll Pálsson og Brynja Guðnadóttir sýna í Gallerí Undirheim- um, Álafossvegi 31 Mosfellsbæ. Sýning- in kallast Fenjavík og samanstendur af ljósmyndum og innsetningu. Hún stend- ur til 14.september.  Sýningin “4 colours 4 ladies“, stendur yfir í Listhúsi Ófeigs Skóla- vörðustíg 5. Um er að ræða fjórar norskar textillistiðnaðar konur. Hilde Horni, Torill Haugsvær Wilberg, Tove Nordstad og Inger Lise.  Pétur Kjærnested sýnir heimilda- mynd sína um ástandið í Palestínu í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5. Mynd- ina tók Pétur upp í Palestínu í mars 2003, viku áður en stríðið braust út í Írak, og sýnir hún kaldan veruleikann á átakasvæðum Palestínu og Ísrael. Mynd- in verður sýnd á klukkutíma fresti en sýningar standa til 13. september.  Listasafn Reykjavíkur sýnir „Viðtöl um dauðann“ eftir Magnús Pálsson myndlistarmann og Helgu Hansdóttur öldrunarlækni í Hafnarhúsinu. Sýningin er opin milli 10-17. Leiðsögn um sýning- una er kl. 15.00.  Sýning Charlottu Sverrisdóttur á olíumálverkum stendur yfir í kaffihúsinu Te og Kaffi að Laugavegi 27.  Sýning myndhöggvarans Sæmundar Valdimarssonar stendur yfir á Kjarvals- stöðum. Trémyndir sínar vinnur lista- maðurinn úr rekaviðardrumbum og sýna þær ævintýraverur hulduheima sem standa landsmönnum nærri í gegn- um þjóðtrú og sagnaminni. Sæmundur fagnaði 85 ára afmæli sínu á dögunum.  Inga Jónsdóttir, myndlistarkona er höfundur sýningarinnar RYK í Ásmund- arsal og Gryfju Listasafns ASÍ. Á sýning- unni RYK eru þrívíddar- og myndbands- verk, ljósmyndir og teikningar. Sýning Ingu Jónsdóttur stendur til 21. septem- ber.  16.00 Hjörtur Hjartarson sýnir Slunkaríki á Ísafirði. Þar sýnir hann teikningar og málverk sem unnin hafa verið á þessu og síðasta ári. Þema verk- anna eru mismunandi „Hópar“ þ.e. ekki einstaklingurinn heldur hvernig hann er innan um sína hjörð. Sýningin í Slunka- ríki verður opin kl. 16 -18 fimmtudaga - sunnudaga til sunnudagsins 28. sept- ember.  17.00 Nína Magnúsdóttir mynd- listarmaður sýnir Opið í Kling & Bang gallerí, Laugavegi 23. Nína útskrifaðist frá MHÍ 1995 og með Postgraduate gráðu frá Goldsmiths College í London árið 1999. Þetta er þriðja einkasýning Nínu og hér notar hún myndbandsverk og ljósmyndir til að miðla hugmyndum sínum. Sýningin stendur til og með 28. september. Kling & Bang gallerí opið fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14-18“.  17.00 Valgerður Guðlaugsdóttir sýnir Skemmtun í Gallerí Hlemmi, Þver- holti 5. Sýning Valgerðar er innsetning þar sem gestum og gangandi er boðið upp á afþreyingu. Valgerður útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskólanum árið 1994 og hefur unnið að list sinni síðan. Hún hlaut tveggja ára starfslaun á þessu ári og er þetta hennar 6. einkasýning. Sýningin stendur frá 6. - 28. september og er opin frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14.00-18.00.  17.00 Kristinn Pálmason er með málverkasýningu í Gallerí Skugga á Hverfisgötu 39. Sýningin stendur til 21. september og galleríið er opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis. SUNNUDAGUR 7. september 2003 35 áætlun til Vetrar Ali cante me› Icelandair í allan vetur Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Fyrstir koma - fyrstir fá! 22. október, 5. nóvember, 19. nóvember, 3. desember, 18. desember 5. janúar 2. febrúar 6. mars. Kynningarver› á fyrstu 200 sætunum 14.900 kr. Flug aðra leið með flugvallarsköttum. Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum vi› fengi› örfá vi›bótarsæti á eftirfarandi dagsetningar: 10., 17. og 24. september Ver› frá Ver› frá 27.930 kr. Flug fram og til baka með flugvallarsköttum. Beint leiguflug fyrir sumarhúsa- eigendur og a›ra farflega til Spánar! Halla Dagmar LCN gel neglur m/ french manicure á a›eins 5.500 kr Opnunartilbo› - Tilbo› gildir til 30.9.03 Nagla- og för›unarstudíó Laugavegi 176 solid neG lur ■ MYNDLIST Þetta eru op í ýmsum myndum,“segir Nína Magnúsdóttir myndlistarkona um sýningu á verkum hennar í gallerí Kling & Bang. Sýningin samanstendur af tveimur videoverkum og ljós- myndum eftir Nínu: „Ég vann videoverkin úti í London og er í raun að loka ákveðnu tímabili með þessari sýn- ingu áður en ég sný mér að ein- hverju öðru.“ Opin sem um ræðir eru allt frá veggjagötum til kló- settskálar og gapandi munns: „Þetta eru bæði op sem fæla og tæla. Á öðru videoverkinu er fylgst með því þegar endajaxlarn- ir voru teknir úr mér. Þá var ég með galopinn munninn.“ Nína Magnúsdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands árið 1995 og fór í framhalds- nám í myndlist í Goldsmiths College í London: „Það er gott að vera komin heim til Íslands en það hefur vissulega bæði kosti og galla í för með sér að vera á svona litlu landi. Þegar maður er einn í stórborg saknar maður þess að geta labbað niður Laugaveginn til að hitta fullt af fólki en það getur líka verið pirrandi að komast ekk- ert út fyrir rammann.“ Sýningin Opið stendur til 28. september. Gallerí Kling & Bang er staðsett á Laugavegi 23: „Við erum tíu listamenn sem rekum þetta gallerí. Okkur fannst vera vöntun á sýningarrými í bænum þar sem spennandi nútímamynd- list er alltaf á boðstólnum.“ ■ Fæla og tæla NÍNA MAGNÚSDÓTTIR Opnar sýningu sína Opið í gallerí Kling og Bang í dag FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.