Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 23
Hollendingar hafa leyft neysluá kannabis fyrir fólk sem er
illa haldið af krabbameini og
AIDS. Efnið er notað til að draga
úr ógleði sem fylgir krabbameins-
meðferð og til að auka matarlyst
hjá þeim sem eru langt leiddir af
alnæmi,“ segir Kristín Ingólfs-
dóttir, prófessor við lyfjafræði-
deild Háskóla Íslands og sérfræð-
ingur í lyfja- og efnafræði nátt-
úruefna.
„Það er líka rétt að taka það
fram að sumum krabbameins-
sjúklingum sem nota kannabis
gegn ógleði og klígju finnst víman
mjög óþægileg. Sjúklingarnir eru
því ekki að sækjast eftir því að
komast í vímu heldur að draga úr
verkjum.“
Kristín segir að það séu vissu-
lega til lyf sem er ætlað að draga
úr ógleði og verkjum en þau henti
alls ekki öllum. Sum verkjastill-
andi lyf geri alls ekkert gagn í
sumum tilfellum og þar geti
kannabis oft hjálpað til. „Það hef-
ur mikið verið reynt að búa til lyf
sem byggja á virka efninu í
kannabis og fjarlægja vímuvald-
inn með því að breyta sameinda-
byggingunni. Það virðist hins veg-
ar vera mjög erfitt að aðskilja
þetta og því hefur sú leið verið
farin að leyfa þessum sjúklingum
að nota kannabis.“
thorarinn@frettabladid.is
23SUNNUDAGUR 7. september 2003
Sjúklingarnir eru því
ekki að sækjast eftir
því að komast í vímu heldur
að draga úr verkjum.
,,
Sjúklingar sækjast
ekki eftir vímu
Fréttin:
KANNABIS Í
LÆKNINGASKYNI
Fréttablaðið sagði í vikunni frá ákvörð-
un hollenskra yfirvalda að leyfa notkun
kannabisefna í lækningaskyni. Garðar
Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags-
ins, sagði í samtali við blaðið að
ákvörðun Hollendinganna væri fagnað-
arefni og að reynist það rétt að „kanna-
bis sé betur fallið til að lina þjáningar
einhvers hluta sjúklinga og hjálpa þeim
að takast á við daginn, þá á það vita-
skuld að vera okkur fagnaðarefni en
ekki tilefni ábyrgðarlausra sleggju-
dóma“.
KANNABIS Í LYFJAUMBÚÐUM
Hollendingar hafa nú leyft sölu á kannabis
í apótekum í lækningaskyni.
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR
Segir að góð áhrif kannabis á krabba-
meinssjúklinga hafi komið í ljós þegar
langt leiddir sjúklingar í neyslu komust að
því að þeim leið betur þegar þeir voru
undir áhrifum. „Þetta er auðvitað umdeilt
en efnið er ekki notað nema hjá fólki sem
er mjög illa haldið.“
Spyrjum sérfræðinginn
Heilsugæslan
Ný getnaðar-
varnarpilla
Lyfjafyrirtækið Barr hefurfengið leyfi í Bandaríkjunum
fyrir sölu á nýrri tegund getnað-
arvarnarpilla fyrir konur. Sú ný-
breytni fylgir notkun á þessari
pillu, að tíðarhringum kvenna
sem taka hana fækkar úr 13 í
fjóra. Með öðrum orðum: konur
sem taka pilluna munu einungis
fara á blæðingar fjórum sinnum
ári. Pillan hefur hlotið nafnið
„Seasonable“ og fer notkun henn-
ar þannig fram að konur taka
hana í 84 daga, en síðan kemur sjö
daga hlé, en venjuleg pilla er tek-
in í 21 daga, með sjö daga hléum á
milli. ■