Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 25
25SUNNUDAGUR 7. september 2003 Framtíðarhornið Bandarískir stjörnufræðingarhafa varað við því að risastórt smástirni stefni á jörðina og gæti skollið á henni árið 2014. Þeir sem óttast dómsdag ættu þó ekki að fara á taugum alveg strax þar sem líkurnar á árekstri með tilheyr- andi hamförum eru einn á móti 909.000. Smástirnið sem gengur undir nafninu „2003 QQ47“ verður sýni- legt frá jörðu næstu tvo mánuði og vísindamenn munu ekki taka augun af því á meðan. Fari allt á versta veg er reiknað með að áreksturinn verði þann 21. mars árið 2014 en stjörnufræðingar segjast gera ráð fyrir því að lík- urnar á því muni minnka eftir því sem meiri upplýsingar safnast saman. Breskir vísindamenn fylgjast einnig með smástirninu en að sögn talsmanns ríkisstjórnarinnar þar í landi myndi krafturinn sem losnar úr læðingi við áreksturinn jafnast á við 20 milljón kjarnorku- sprengjur eins og þá sem varpað var á Hiroshima. Breskir stjörnu- fræðingar vöruðu fyrst við smá- stirninu eftir að stjörnufræðingar í Nýju-Mexíkó komu auga á það. Smástirni á borð við „2003 QQ47“ eru bjarghnullungar sem urðu til þegar sólkerfið myndaðist fyrir 4,5 milljörðum ára. Flest eru þau í hæfilegri fjarlægð frá jörðu í smástirnabeltinu milli Mars og Júpíters en þyngdarkraftur risa- plánetna eins og Júpíters getur stjakað þeim af öruggri braut í átt til Jarðar. ■ Bókmenntahátíð: Dagskráin næstu daga Við setningu bókmenntahátíðarí dag kl. 15 í Norræna húsinu flytja ávörp Gro Kraft, forstjóri Norræna hússins, Tómas Ingi Ol- rich menntamálaráðherra og Stefán Jón Hafstein, formaður menningarmálanefndar Reykja- víkurborgar. Enn fremur munu rithöfundarnir José Saramago og Thor Vilhjálmsson flytja stutt er- indi. Hver stórstjarnan af annarri mun síðan stíga á stokk alla vik- una þar til á laugardaginn er bók- menntahátíð lýkur. Í Iðnó í kvöld klukkan átta lesa úr verkum sín- um þeir Emmanuel Carrére, Hall- grímur Helgason, Gerður Kristný, Per Olov Enquist og Yann Martel. Í hádeginu á morg- un, kl. 12.00, ræðir síðan Silja Að- alsteinsdóttir við Haruki Murakami í Norræna húsinu og Hjálmar Sveinsson ræðir í kjöl- farið við David Grossman. Klukk- an 15.00 verða síðan pallborðsum- ræður um enskar heimsbók- menntir með þátttöku þeirra Yann Martel, Murray Bail, Bill Holm og Nicholas Shakespeare. Um kvöldið, annað kvöld, klukkan 20.00 munu síðan lesa úr verkum sínum rithöfundarnir Murray Bail, Johanna Sinisalo, David Grossman, Vigdís Grímsdóttir og Haruki Murakami. Í hádeginu á þriðjudaginn, í Norræna húsið, spjallar Jón Karl Helgason við breska rithöfundinn Hanif Kureishi og í kjölfarið spjalla þau saman þau Halla Kjartansdóttir og Per Olov Enquist og munu þau ræða saman á sænsku. Síðdegis, klukkan 15.00, fara síðan fram pall- borðsumræður. Að þessu sinni verður viðfangsefnið spurningin: Hvaðan kemur innblásturinn? Þáttakendur verða þau Jan Sonn- ergaard, Judith Hermann, Emmanuel Carrere, Einar Kára- son og Kristín Steinsdóttir. Um kvöldið fer svo fram upplestur í Iðnó, en þá munu lesa úr bókum sínum þau Peter Zilahy, Ingvar Arnbjörnsen, Kristiina Ehin, Guðmundur Andri Thorsson og Hanif Kureishi. Á miðvikudaginn verður engin dagskrá um daginn en þá um kvöldið verður hins vegar áfram- haldandi upplestur. Þá stíga á stokk í Iðnó klukkan 20.00 þau Jan Sonnergaard, José Carlos Somoza, Andri Snær Magnason, Nicholas Shakespeare og Judith Hermann. Í fimmtudagshádeginu í Nor- ræna húsinu ræðir síðan Torfi Tulinius við nóbelsverðlauna- hafann José Saramago. Spjallið mun fara fram á frönsku og verð- ur túlkað jafnóðum á íslensku. Klukkan 15.00 á fimmtudaginn fara fram pallborðsumræður í Norræna húsinu undir yfirskrift- inni Glæpur og refsins. Í henni munu taka þátt spennusagnahöf- undarnir Henning Mankell, Boris Akunin, José Carlos Somoza og Árni Þórarinsson. Um kvöldið lesa svo upp í Iðnó þeir Mikael Niemi, Bill Holm, Arto Paasilinna, Huldar Breiðfjörð og José Saramago. ■ DÓMSDAGUR Vísindamenn telja ekki ástæðu til þess að óttast smástirnið „2003 QQ47“ sem stefnir á jörðina og því þarf ekki að kalla Bruce Willis og félaga til að svo stöddu en hann gerði sér lítið fyrir og sprengdi smástirni sem ógnaði öllu lífi á jörðinni í tætlur í kvikmyndinni Armageddon. Smástirni á leið til Jarðar: Sáralitlar líkur á árekstri 2014

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.