Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 1
VIÐSKIPTI Forsvarsmenn Fjárfest-
ingarfélagsins Atorku hf. og Afls-
fjárfestingarfélags hf., Margeir
Pétursson og Þorsteinn Vilhelms-
son, hafa sent Benedikt Sveinssyni,
stjórnarformanni Sjóvár Almennra
- Trygginga hf., bréf þar sem þeir
fara fram á að stjórn Sjóvár boði til
hluthafafundar eins skjótt og verða
megi. Í bréfinu er farið fram á að á
hluthafafundi verði tekin afstaða til
þess hvort félagið skuli höfða mál á
hendur Íslandsbanka og/eða stjórn-
ar Sjóvár vegna sölu félagsins á eig-
in bréfum og annarrar meintrar
ólöglegar háttsemi í tengslum við
kaup Íslandsbanka á meirihluta
hlutafjár í Sjóvá.
Í bréfinu er þess krafist, með
vísan til laga um hlutafélög, að Ís-
landsbanki og aðrir aðilar að við-
skiptum milli bankans og Sjóvár
greiði ekki atkvæði um hvort höfð-
að skuli mál gegn bankanum
og/eða stjórnarmönnum í Sjóvá.
Eins er farið fram á að fjár-
málaviðskipti Sjóvár verði boðin
út í almennu útboði. Þá er þess
krafist að stjórn Sjóvar útbúi
skýrslu þar sem fjallað verði
ítarlega um viðskipti Sjóvar með
eigin bréf, og bréf í Eimskipi og
Íslandsbanka, dagana 15. til 19.
september.
Ef Íslandsbanki getur ekki nýtt
56,22% hlutafjáreign í Sjóvá á hlut-
hafafundinum þarf einungis tæp-
lega 22% hlutafjár til að samþykkja
tillögu um málsókn. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins lætur
nærri að sá stuðningur sé þegar
tryggður. ■
● palmer allur, 54 ára
Robert Palmer:
▲
SÍÐA 32
Lést á hóteli
í París
● er á fullu í viðskiptafræðinni
Jón Axel Ólafsson:
▲
SÍÐA 38
Vikan sem
var
● góður árangur með fh
Ólafur Jóhannesson:
▲
SÍÐA 12
Maður
vikunnar
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 28
Sjónvarp 36
LAUGARDAGUR
Meðallestur fólks
á landinu öllu
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
68%
50%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
23%
EKKERT GREITT Framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu segir að
ítalska verktakafyrirtækið Impregilo hafi
ekkert greitt af þeim vörum sem fyrirtækið
hefur keypt af félagsmönnum SVÞ. Greiðsl-
um sé lofað en ekki staðið við þær. Van-
skilin nemi tugum milljóna. Sjá síðu 4.
DÆMDUR FYRIR HNÍFSTUNGUR
Bandarískur hermaður var í gær dæmdur til
átján mánaða fangelsisvistar fyrir að særa
ungan mann alvarlega með hnífstungum í
Hafnarstræti síðasta vor. Hann var einnig
dæmdur til greiðslu skaðabóta og máls-
kostnaðar. Sjá síðu 2.
Í GÆSLUVARÐHALD 24 ára karlmað-
ur hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna
gæsluvarðhald vegna morðsins á Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Hann á
langan sakaferil að baki. Sjá síðu 2.
BIKARÚRSLITALEIKUR Skagamenn
og FH-ingar etja kappi um bikarmeistara-
titilinn á Laugardalsvelli klukkan tvö í
dag. Skagamenn hafa unnið bikarinn átta
sinnum en FH-ingar aldrei. Yngri FH-ingar
hita upp í Kaplakrika en þeir eldri á
Snóker sportbar meðan Skagamenn hita
upp í Ölveri áður en þeir fara í skrúð-
göngu á völlinn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÞURRT AÐ KALLA fyrripartinn í borg-
ini en gæti dropað seinnipartinn þegar úr-
slitaleikurinn í bikarnum stendur yfir. Úr-
koman verður mjög lítil. Hlýnar þegar líður
á daginn. Sjá nánar síðu 6.
27. september 2003 – 234. tölublað – 3. árgangur
Hluthafar fara fram á að Sjóvá fari í mál við Íslandsbanka og stjórn Sjóvár:
Vilja kæra sölu hlutabréfa
Bréfasafni Laxness
lokað óviðkomandi
Fjölskylda nóbelsskáldsins lét loka bréfasafni í Þjóðarbókhlöðunni næstu
þrjú árin en gaf tvær undantekningar. Enginn fær að sjá bréfin nema með
leyfi Guðnýjar Halldórsdóttur. Hannes Hólmsteinn kemur af fjöllum.
BÓKMENNTIR Fjölskylda nóbels-
skáldsins Halldórs Kiljans Lax-
ness hefur bannað öllum óviðkom-
andi aðgang að bréfum skáldsins
sem eru til varð-
veislu í Þjóðarbók-
hlöðunni. Þetta var
gert með bréfi
þann 18. september
og hér eftir fær
enginn aðgang að
bréfunum og öðrum einkaskjölum
nema með skriflegu samþykki
Guðnýjar Halldórsdóttur, dóttur
Halldórs, sem er umboðsmaður
fjölskyldunnar í málinu. Auk fjöl-
skyldu Halldórs hafa aðeins
Helga Kress bókmenntafræðing-
ur og Halldór Guðmundsson, sem
vinnur að skráningu ævisögu
Halldórs, leyfi til að skoða bréfin.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að lokunin sé tilkomin vegna rit-
unar Hannesar Hólmsteins Giss-
urarsonar á ævisögu skáldsins en
sú bók er unnin í óþökk fjölskyldu
Halldórs Laxness. Hannes Hólm-
steinn hefur á undanförnum mán-
uðum skoðað bréfasafnið á Þjóð-
arbókhlöðunni. Ögmundur Helga-
son, forstöðumaður handritadeild-
ar, staðfesti við Fréttablaðið að
þessi ákvörðun hefði verið tekin.
Hann segir að lokunin sé til
þriggja ára.
„Ættingjarnir eiga rétt á að
loka bréfasafni og minnisbókum
Halldórs og hafa nýtt sér það,“
segir Ögmundur. Hann segir að
mörg dæmi séu um að bréfasöfn-
um sé lokað og segir að safn
Gunnars Gunnarssonar skálds sé
lokað og enginn fái þar aðgang
nema með leyfi ættingja skálds-
ins. Sama hafi verið uppi á ten-
ingnum varðandi Kristin E. Andr-
ésson, útgáfustjóra Máls of
menningar. Ekkja hans vildi að
bréfasafni hans yrði lokað til að
forðast nornaveiðar.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, sem staddur er í Kaliforníu
þar sem Halldór Kiljan Laxness á
reyndar sín spor, sagðist ekkert
hafa heyrt um lokun bréfasafns-
ins.
„Ég kem af fjöllum,“ sagði
Hannes, sem undirbýr útgáfu
fyrsta bindis af þremur. Lokun
bréfasafnsins felur ekki aðeins í
sér að hann má ekki skoða gögn
um skáldið heldur má hann ekki
vitna til þeirra gagna í væntan-
legri ævisögu.
rt@frettabladid.is
kgb@frettabladid.is
FIMI Í BÚDAPEST Fimleikafólk leikur listir sínar í Búdapest þessa dagana þar sem 26. heimsmeistaramótið fer fram. Mörgum þótti mik-
ið til æfinga rússnesku stúlknanna koma.
M
YN
D
/A
P
Halldór Ásgrímsson:
Vill breyta
öryggisráði
ALÞJÓÐAMÁL Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra segir að ræðu Kofi
Annan, aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, um breytingar á öryggisráð-
inu hafi almennt verið vel tekið.
„Við ákváðum það á sameigin-
legum fundi utanríkisráðherra
Norðurlandanna á miðvikudaginn
að styðja þessi ummæli Annan,“
segir Halldór. „Þá hyggjumst við
lýsa yfir áhuga Norðurlandanna á
að taka þátt í þeirri nefnd sem hann
hyggst koma á laggirnar. Mér finnst
ekki ólíklegt að Norðurlöndin fái
fulltrúa í nefndina, en því hvort
hann verður íslenskur eða ekki get
ég ekki svarað.“
Halldór segir mikilvægt að gera
starf öryggisráðsins skilvirkara.
Sjá nánar bls. 2
ANNA LINDH
Þessi mynd mun að líkindum prýða
frímerki sænsku póstþjónustunnar.
Ráðherra minnst:
Á frímerki
STOKKHÓLMUR, AP Póstþjónustan í
Svíþjóð hefur ákveðið að gefa út
sérstök frímerki til minningar um
utanríkisráðherrann Önnu Lindh.
Frá og með 11. nóvember næst-
komandi getur almenningur keypt
fjögur mismunandi frímerki með
mynd af Lindh. Áætlað er að verð-
mæti frímerkjanna nemi um það
bil 300 íslenskum krónum. Ofan á
þá upphæð bætast 40 krónur sem
renna eiga í minningarsjóð Lindh
sem stofnaður var af sænska Jafn-
aðarmannaflokknum. ■
Helgi Hóseasson:
Mótmælir enn
Ekki er ólíklegt að Bene-
dikt búálfur fylgi í kjölfar
Íþróttaálfsins.
Benedikt búálfur:
Hyggur á útrás
Helgi Hóseasson lætur ekki deigan
síga í mótmælum sínum gegn guði
og mönnum.
▲
SÍÐA 14 ▲SÍÐA 18
■
Ættingjarnir
eiga rétt á að
loka bréfasafni
og minnisbók-
um Halldórs.
Bandaríkjaforseti:
Íranar kalla
reiði yfir sig
WASHINGTON, AP Bush Bandaríkja-
forseti fordæmir kjarnorkuáætl-
un Írana og segir að þjóðin kalli
yfir sig bölvun
he imsbyggðar -
innar ef í ljós
komi að verið sé
að smíða kjarn-
orkuvopn í Íran.
„Almenning-
ur skilur hætt-
una sem felst í
kjarnorkuáætl-
un Írana,“ sagði
Bush og bætti
við að hann ætl-
aði að ræða kjarnorkuáætlun
Írana á fundi sínum með Pútín
Rússlandsforseta í Camp David
um helgina.
Eftirlitsmenn Alþjóða kjarn-
orkumálastofnunarinnar fundu í
vikunni fleiri leifar af auðguðu
úraníumi í Íran en það efni er
meðal annars hægt að nota við
smíði kjarnorkuvopna. ■
BUSH
Gagnrýnir áform
Írana harðlega.