Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 6
6 27. september 2003 LAUGARDAGUR ■ Reykjavík GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 77.11 -0.71% Sterlingspund 128.03 -0.55% Dönsk króna 11.91 -0.87% Evra 88.5 -0.84% Gengisvístala krónu 125,85 -0,39% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 417 Velta 4.690 milljónir ICEX-15 1.818,8 0,36% Mestu viðskiptin Flugleiðir hf. 1.838.933.290 Össur hf. 364.860.517 Pharmaco hf. 188.307.518 Landsbanki Íslands hf. 137.901.962 Íslandsbanki hf. 93.646.000 Mesta hækkun Hampiðjan hf. 9,09% Fiskmarkaður Íslands hf. 7,89% Össur hf. 6,06% Grandi hf. 2,33% Opin Kerfi Group hf. 2,11% Mesta lækkun Kögun hf. -2,40% AFL fjárfestingarfélag hf. -0,55% SÍF hf. -0,44% Og fjarskipti hf. -0,36% Kaupþing Búnaðarbanki hf. -0,27% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 9.322,4 -0,2% Nsdaq* 1.801,8 -0,8% FTSE 4.157,1 -1,1% DAX 3.313,6 -0,4% NK50 1.323,4 -0,1% S&P* 998,9 -0,4% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Á öskuhaugum hvaða bæjar voru 200riðuveikar kindur skotnar á dögun- um? 2Hversu öflugur var jarðskjálftinn semskók japönsku eyjuna Hokkaido? 3Hvað verður Lárus Orri Sigurðsson,landsliðsmaður í fótbolta, lengi frá vegna meiðsla? Svörin eru á bls. 38 OLÍUMÁL Samkeppnisstofnun hefur afhent Ríkislögreglustjóraembætt- inu frekari gögn um meint sam- keppnisbrot olíufélaganna. Jón H. Snorrason saksóknari hjá efna- hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra segir að honum hafi borist mjög mikið af gögnum til skoðunar. Þessi gögn eru til viðbótar þeim sem embættið fékk 9. september eftir nokkrar deilur milli Sam- keppnisstofnunar og Ríkislögreglu- stjóra um hvernig standa ætti að rannsókn málsins. Ríkislögreglustjóri taldi að þau gögn sem Samkeppnisstofnun hafði áður afhent, væru ekki fullnægj- andi til að meta hvort einstaklingar hjá olíufélögunum hefðu gerst brot- legir við lög. „Við óskuðum eftir frekari gögn- um og fengum þau. Við munum nú fara yfir þau til að hægt sé að meta hvort ákveðin atvik gefi ástæðu til að hefja opinbera rannsókn. Mér sýnist að nú getum við myndað okk- ur heildarsýn yfir málið,“ segir Jón. ■ Lýsa vilja til meiri samskipta þjóðanna Geir H. Haarde átti fundi með forseta, forsætisráðherra, fjármálaráðherra og seðlabankastjóra Líbanon. Hafinn verður undirbúningur að tvísköttun- ar- og fjárfestingarsamningi Íslands og Líbanon í kjölfar fundanna. STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, fjár- málaráðherra, heimsótti Líbanon á leið sinni frá fundum Alþjóða- bankans og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins í Dubai í Sameinuðu ar- abísku furstadæmunum. Í Líbanon átti hann fundi með forseta landsins, forsætisráð- herra og fjármálaráðherra auk seðlabankastjóra. Geir segir að þessir fundir hafi verið í senn gagnlegir og fróðlegir og að á fundunum hefði komið fram skýr vilji hjá ráðamönnum í Líbanon til þess að auka samskipti við Ísland á sviðum viðskipta, bankastarf- semi og ferðamennsku. „Þá kom fram áhugi líbanskra stjórnvalda á því að koma á gagnkvæmum fjárfestingar- og tvísköttunar- samningi,“ segir Geir. Hann segir að vinna við undirbúning slíks samnings muni hefjast á Íslandi í kjölfar fundanna. Heimsókn fjármálaráðherra til Líbanon er fyrsta heimsókn ís- lensks ráðherra en í ferðinni var einnig Sverrir Haukur Gunn- laugsson, sendiherra í London, sem fyrstur íslenskra sendiherra afhendir trúnaðarbréf sem sendi- herra Íslands Líbanon. Geir segir að Ísland hafi átt góð samskipti við Líbanon á undanförnum ára- tugum og að aðalræðismaður Ís- lands í Líbanon hafi unnið mikið og gott starf í þágu þeirra sam- skipta. „Við höfum um rúmlega þrátíu ára skeið notið góðs af frá- bærum störfum aðalræðismanns okkar, Francois Jabre, sem nýtur miklis álits og virðingar í heima- landi sínu,“ segir Geir. Líbanon var áður ein helsta bankamiðstöð heimsins en fimmt- án ára borgarasyrjöld olli landi og þjóð ekki aðeins mannfalli heldur tafði hún einnig fyrir framþróun landsins. „Ég hef mikla trú á því að þetta land eigi góða framtíð fyrir sér og að hér geti verið mörg góð tækifæri fyrir íslensk fyrir- tæki,“ segir Geir. Geir segir það hafa vakið at- hygli sína hve eindregið ráða- menn í Líbanon aðhyllist mark- aðs- og einstaklingsfrelsi en valdahlutföll þar í landi markast fyrst og fremst af trúarbrögðum en ekki hugmyndafræði. Í sam- komulagi við lok borgarastyrjald- arinnar var samið um skiptingu embætta á milli kristinna manna, súnní múslima og shíta múslima. thkjart@frettabladid.is Vélsmiðja Suðurlands: Yfirtekur Vél- smiðju KÁ SUÐURLAND Vélsmiðja Suðurlands ehf. mun taka yfir allan rekstur Vél- smiðju Kaupfélags Árnesinga (KÁ) á Selfossi, Hvolsvelli og Þorláks- höfn. „Ekki er gert ráð fyrir mikl- um breytingum til að byrja með og Vélsmiðja Suðurlands ehf. hefur ráðið flesta starfsmenn Vélsmiðju KÁ yfir í hið nýja fyrirtæki,“ segir í tilkynningu verða starfsstöðvar óbreyttar á Hvolsvelli og Þorláks- höfn. Starfstöðin á Selfossi verður á sama á meðan leitað er að framtíð- arhúsnæði í bænum. Vélsmiðja Suð- urlands er nýtt fyrirtæki í eigu Skipalyftunnar ehf. í Vestmanna- eyjum. ■ Húsavík: Vonir um álver 2008 STÓRIÐJA „Ef tímaplanið varðandi orkuöflun gengur saman á næstu vikum þá getur verið að verk- smiðjan hefji rekstur árið 2008. En þá verður allt að ganga eftir, „ seg- ir Reinhard Reynisson, bæjar- stjóri á Húsavík, um fyrirhugað ál- ver Atlantsáls. Viðræður standa um orkuöflun en óljóst er hvenær hægt verður að útvega næga orku fyrir fyrsta áfanga álversins sem er miðað við framleiði 60.000 tonn á ári. Hann segir að ef orkuöflun gangi eftir þá gæti áhrifanna strax á árunum 2005 til 2007 þegar fram- kvæmdir standi vegna virkjunar orku og framkvæmda við álverið. „Þetta verður bylting í atvinnu- málum. Álverksmiðjan myndi styrkja þjónustugrunni og opin- berri þjónustu,“ segir Reinhard. ■ TJALDAÐ YFIR FLUGVÉLAR Einka- hlutafélagið Sif á Seltjarnarnesi vill reisa tjaldhýsi fyrir flugvélar á Reykjavíkurflugvelli norðan Hótels Loftleiða. Skipulagsyfir- völd í Reykjavík eru að íhuga hvort það verði leyft. BÍLSKÚR DÆMDUR ÚR LEIK Hús- eigandi í Laugarásnum má ekki hafa bílageymslu við húsið þrátt fyrir áður gefið samþykki skipu- lagsyfirvalda og borgarráðs. Ná- granni kærði framkvæmdina til Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála sem ógilti leyfið. JÓN H. SNORRASON Metur hvort ástæða sé til opinberrar rann- sóknar í olíumálinu. Ríkislögreglustjórinn fær gögn: Heildarsýn yfir olíumálið HÚSAVÍK Íbúar vonast til þess að álver leiði til hagsældar. GEIR ÁSAMT RAFIC HARIRI Geir H. Haarde fundaði með Rafic Hariri, forsætisráðherra Líbanon,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.