Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 22
Ritstjóri hinnar öflugu og blóm-legu barna- og unglingabóka- útgáfu Máls og menningar er Sig- þrúður Gunnarsdóttir. Hún segir útgáfuna þetta árið einkennast af vönduðum bókum sem séu mjög ólíkar innbyrðis. Fyrir krakka eins til fimm ára koma út fallegar myndabækur með stuttum texta. Brian Pilk- ington sendir frá sér bókina Mánasteinar í vasanum, sem er litrík og skemmtileg saga um litla stelpu sem á leynivin sem er dreki. Nokkuð langt er síðan Anna Cynthia Leplar sendi frá sér bók en nú kemur bókin Ég vildi að ég væri, um hund sem veit ekki hvað hann vill. Klippimyndabókin Egg- ið er eftir Áslaugu Jónsdóttur, „afar listræn og falleg bók,“ segir Sigþrúður. Björk Bjarkadóttir sendir frá sér spennandi sögu fyr- ir minnstu krílin, Leyndarmálið hennar ömmu. Til viðbótar fyrir þennan aldurshóp er þýdd bók, Greppikló, sem Þórarinn Eldjárn þýðir listilega. Bókin hefur notið mikilla vinsælda um allan heim og fjallar um skrímslið Greppikló sem músin nær að leika á. Sögur með myndum Ævintýrið um Augastein er hug- ljúf jólasaga sem Felix Bergsson skrifar og Halla Sólveig Þorgeirs- dóttir myndskreytir en hún vakti mikla athygli í fyrra fyrir mynd- skreytingar sínar við Engil í vest- urbænum. Sagan segir frá jóla- sveinunum sem sitja uppi með lítið barn og vita ekki hvað þeir eiga að gera við það. „Þetta er eiginlega sagan af því þegar jólasveinarnir hættu að hrekkja og fóru að gefa í skóinn,“ segir Sigþrúður. Framhald verður á hinum geysivinsælu bókum um Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugs- son. Nýja bókin heitir Höfuðskepn- ur Álfheima og er afar dramatísk saga. Sigrún Eldjárn sendir frá sér Týndu augun. „Þetta er skemmti- leg og spennandi saga, húmorískur sögumannsstíll Sigrúnar er þarna í sinni tærustu mynd og myndirnar eru nokkuð ólíkar þeim sem við höfum áður séð frá henni,“ segir Sigþrúður. Skáldsögur fyrir börn og unglinga Fyrir nokkrum árum skrifaði Unnur Þóra Jökulsdóttir tvær ferðasögur sem nutu mikilla vin- sælda. Nú sendir hún frá sér fyrstu barnabók sína, Eyjadís. „Þetta er fantasíusaga um stelpu sem leggur upp í mikla leit, bregð- ur sér meðal annars í höfrunga- gervi og syndir í sjónum,“ segir Sigþrúður. Kristín Helga Gunnarsdóttir er einn vinsælasti barnabókahöfund- ur landsins. Strandanornir er ný bók þar sem hún vinnur út frá ís- lensku galdraöldinni og fer með sögumenn sína úr nútímanum norður á Strandir. Í sögumiðju eru tvær stelpur, tíu og tólf ára, og rammgöldrótt amma þeirra og þær lenda í ýmsum galdramálum. „Kristín Helga vinnur mjög skemmilega með atburði og sögu sem krakkar hafa ekki mikið kom- ist í tæri við. Þetta er hörkuspenn- andi bók fyrir alla fjölskylduna,“ segir Sigþrúður. Axel Gunnlaugsson er á allt öðrum slóðum í bók sinni Eldgos í garðinum sem fjallar um Vest- mannaeyjagosið. Axel flúði sjálf- ur Eyjar í gosinu og segir hér sína sögu af gosinu, flóttanum í land og verunni þar og biðinni löngu eftir að komast aftur til Eyja. Þetta er þroskasaga stráks sem er tólf ára þegar gosið hefst. Teiknimyndasaga og Madonna Útgáfa íslenskra teiknimynda- sagna hefur verið lítt áberandi síðustu árin en Ingólfur Örn Björgvinsson og Embla Ýr Báru- dóttir hafa unnið teiknimynda- sögu upp úr Njálu. Blóðregn – sög- ur úr Njálu hefst á Njálsbrennu. Sagan er mótuð innan forms teiknimyndasögunnar, persónum fækkað mjög og atburðir settir fram í myndum frekar en orðum. Barnabækur Madonnu verða tvær á þessu ári en hún hefur í huga að skrifa alls fimm bækur. Ensku rósirnar komu út á dögun- um og er mest selda barnabók vik- unnar, og 10. nóvember kemur Eplin hans Peabodys. Á slóð skepnunnar er ævintýra- saga sem gerist í frumskógum Suður-Ameríku og er eftir Isabel Allende. Bókin er bæði fyrir börn og fullorðna. Gallabuxnaklúbbur- inn eftir Ann Brashares er vinsæl amerísk þroskasaga fjögurra stelpna sem er nýkomin út. Auga Óðins er safn smásagna sem sjö höfundar unnu upp úr norrænni goðafræði. Síðan er ver- ið að hefja endurútgáfu á hinum sívinsælu Múmínálfabókum og Vetrarundur í Múmíndal kemur út á næstunni. Ömmusögur, hinn 70 ára klassíker Jóhannesar úr Kötl- um, kemur einnig út fyrir jólin. kolla@frettabladid.is 22 27. september 2003 LAUGARDAGUR BÓK VIKUNNAR The Gospel According to Jesus Christ eftir José Saramago. Þessi stórmerkilega skáldsaga Saramago kom út árið 1991 þegar höfundurinn var tæplega sjötugur. Hún olli gríðarlegum deilum, meðal annars í portúgalska þing- inu. Sjö árum síðar fékk Sara- mago Nóbelsverðlaunin. Hér er sögð saga Jesú Krists, sem er sonur Guðs en um leið maður með mannlegar þrár og langanir. Einnig fjallar bókin um trú, til- gang og tilvist Guðs. Sambland af töfrum, goðsögnum og hörðu raunsæi, í bland við húmor. Meistaraverk. ■ Bókatíðindi METSÖLU- LISTI BÓKABÚÐA MÁLS OG MENNINGAR Allar bækur 1. Óvinurinn. Emmanuel Carrére 2. Mýrin. Arnaldur Indriðason 3. Skuggaleikir. Jose Carlos Somoza 4. Spútnik-ástin. Haruki Murakami 5. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 6. Stjórnun á tímum hraða og breyt- inga. Þórður Víkingur Friðgeirsson 7. Rokkað í Vittula. Mikael Niemi 8. Röddin. Arnaldur Indriðason 9. Sagan af Pí. Yann Martel 10. Líkami fyrir lífið. Bill Philips Skáldverk 1. Mýrin. Arnaldur Indriðason 2. Skuggaleikir. Jose Carlos Somoza 3. Spútnik-ástin. Haruki Murakami 4. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 5. Rokkað í Vittula. Mikael Niemi 6. Röddin. Arnaldur Indriðason 7. Sagan af Pí. Yann Martel 8. Blinda. José Saramago 9. Lovestar. Andri Snær Magnason 10. Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Steinunn Jóhannesdóttir Metsölulisti Bókabúða Máls og menningar 17. - 23. september METSÖLU- LISTI BÓKABÚÐA EYMUNDS- SONAR Allar bækur 1. Óvinurinn. Emmanuel Carrére 2. Stjórnun á tímum hraða og breyt- inga. Þórður Víkingur Friðgeirsson 3. Angurgapi. Magnús Rafnsson 4. Sagan af Pí. Yann Martel 5. Almanak HÍ. Háskóli Íslands 6. Láttu ekki smámálin í ástinni.. Ric- hard Carlson & Kristine Carlson 7. Mýrin. Arnaldur Indriðason 8. Skuggaleikir. Jose Carlos Somoza 9. Ekið um óbyggðir. Jón G. Snæland 10. Röddin. Arnaldur Indriðason Skáldverk 1. Sagan af Pi. Yann Martel 2. Mýrin. Arnaldur Indriðason 3. Skuggaleikir. Jose Carlos Samoza 4. Röddin. Arnaldur Indriðason 5. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 6. Spútnik-ástin. Haruki Murakami 7. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason 8. Elling - Paradís í sjónmáli. Ingvar Ambjörnse 9. Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Steinunn Jóhannesdóttir 10. Ár hérans. Arto Paasilinna METSÖLUBÆKUR BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR 17. - 23. SEPTEMBER ■ bækur Ég er alltaf með margar bæk-ur í takinu og ónýtur maður ef ekki eru allmargar ljóðabæk- ur í kringum mig,“ segir Sig- mundur Ernir Rúnarsson sjón- varpsmaður um lesefni sitt um þessar mundir. „Núna er ég á kafi í ljóðasafni Matthíasar Jo- hannessen og svíf um á mjúkum skýjum fyrir vikið. Þess utan er ég líka að fletta alls kyns bókum um tungumálið. Íslensk tunga er mín ástríða og ég hef einsett mér að kynnast henni betur. Það má segja að ein bók hafi alltaf fylgt mér í huganum. Það er ævisaga Stefans Zweigs, Veröld sem var. Ef ég þyrfti að fara með eina bók á eyðieyju yrði hún fyr- ir valinu vegna þess að þetta er sú bók sem hefur sennilega haft mest áhrif á mig. Hún er skyldulesning allra hugsandi manna. Einhver snjall- asti alda- speg- ill sem skrifaður hefur verið og Zweig er einhver magnaðasti höfundur síðustu aldar. Þegar ég er ekki að lesa eftir aðra er ég að reyna að setja eitt- hvað saman sjálfur. Maður les auðvitað mjög mikið eftir sjálfan sig og stundum finnst mér það of mikið vegna þess að það getur verið hættulegt. Maður verður að fá góða fjarlægð á það sem maður skrifar og þá er gott að grípa í eitt- hvað annað.“ ■ SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON „Ég er ónýtur maður ef ekki eru allmargar ljóðabækur í kringum mig.“ Mál og menning sinnir yngri kynslóðinni rækilega um þessi jól: Gróska í barnabókum NJÁLA SEM TEIKNIMYNDASAGA Ingólfur Örn Björgvinsson og Embla Ýr Bárudóttir hafa unnið teiknimyndasögu upp úr Njálu. Hér gefur að líta sýnishorn úr bókinni. SIGRÚN ELDJÁRN Ný barnabók eftir hana, Týndu augun, þyk- ir skemmtileg og spennandi. KRISTÍN HELGA GUNNARSDÓTTIR Galdrar koma mjög við sögu í bókinni Strandanornir eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Ný ævisaga leikarans AlecGuinness er á leiðinni og höf- undurinn er Piers Paul Reid. Guinness skrifaði á sínum tíma þriggja binda endurminningar sínar sem þykja skemmtilegar af- lestrar en gefa litla mynd af manninum sjálfum. Í hinni nýju ævisögu kemur fram að eiginkona Guinness hafði ætlað sér að skrifa bók um stormasamt hjónaband þeirra, en hún lést áður en hún gat komið því í verk. Fyrir ári síðan kom út opinská ævisaga um einkalíf leikarans eftir Garry O’Connor. Þar var því haldið fram að Guinness hefði margoft sýnt eiginkonu sinni kulda og niður- lægt hana fyrir framan vini þeirra og skipt sér lítið af syni þeirra, sem hann taldi mis- heppnaðan. Á unga aldri átti Guinness í ást- arsamböndum við karlmenn og seinna á æv- inni vaknaði á ný áhugi hans á karlmönnum. Höfundur hinn- ar nýju ævi- sögu hefur fundið bréf sem eigin- kona Guinness sendi umboðs- manni eiginmanns síns skömmu eftir dauða hans þar sem hún fjallar um tilfinningakulda manns síns og vonda framkomu í sinn garð og sonarins. ■ ALEC GUINNESS Ýmislegt í fari hans vekur áhuga ævi- sagnaritara. Flett ofan af Guinness Skyldulesning hugsandi manna Það má segja að ein bók hafi alltaf fylgt mér í huganum. Það er ævi- saga Stefans Zweigs, Veröld sem var.“ ,, Ein þeirra ævisagna sem spáð er góðu gengi fyrir jólin er ævisaga Vilhjálms Stefánssonar landkönn- uðar, eftir Gísla Pálsson mann- fræðiprófessor. Gísli hefur rann- sakað Vilhjálm um árabil og með- al annars komist í einkabréf og ýmis áður ókunn gögn og kemur þá margt forvitnilegt í ljós. Ástamál Vilhjálms munu til dæmis hafa verið afskaplega fjölskrúðug. Um það efni hefur aldrei verið fjallað með jafn opinskáum hætti og í bók Gísla þar sem afkomendur „Ofur- eskimóans“, eins og Vilhjálmur var kallaður, stíga fram í fyrsta sinn. OPINSKÁ SAGA „OFURESKIMÓANS“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.