Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 27. september 2003 1X2 – einn sjálfval, takk! fiA‹ ER TVÖFALDUR RISAPOTTUR Í ENSKA BOLTANUM fiú fer› bara á næsta lottósölusta› og segir: – e›a tippar á netinu. A›eins 10 kr. rö›in. N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 0 3 9 6 • s ia .i s FÓTBOLTI „Við gerum okkur grein fyrir því að þær mæta grimmar til leiks eftir leikinn heima,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari A- landsliðs kvenna. „Það er kannski erfitt að spila við þær strax aftur. En við mætum í leikinn af fullum krafti og ætlum okkur þrjú stig.“ Íslendingar leika gegn Pólverj- um í Bydgoszcz í dag í und- ankeppni Evrópukeppni kvenna- liða en fyrir tveimur vikum sigr- uðu Íslendingar 10-0 í leik liðanna á Laugardalsvelli. „Pólverjar skiptu um þjálfara eftir leikinn heima. Það getur ekki annað verið en að þeir fari yfir sinn leik og reyni að loka á okkar sóknarleik. Ég geri ráð fyrir að þær verði skipulagðari en þær voru í síðasta leik. Nýju fólki fylgja breyting- ar,“ sagði Helena. Þrír leikmenn koma inn í ís- lenska hópinn að nýju og ætti lið- ið að vera sterkara en fyrir tveim- ur vikum. „Í síðasta leik höfðum við ekki Guðrúnu Gunnarsdóttur, sem hefur verið meidd, og Edda Garðarsdóttir og María Björk Ágústsdóttir komust ekki vegna anna í skóla. Hópurinn er orðinn stærri og við höfum úr fleiri að velja.“ Ísland er í efsta sæti riðilsins með sjö stig eftir fjóra leiki en Rússar hafa sjö stig eftir þrjá leiki. Frakkar hafa sex stig eftir tvo leiki. Íslendingar leika við Ung- verja ytra í vor og Frakka og Rússa á heimavelli næsta sumar. ■ FÓTBOLTI Stjórn Manchester United hefur farið fram á að fá myndbandsupptöku af atvikinu þegar leikmönnum United og Arsenal lenti saman í deildarleik um síðustu helgi. Stjórnin vill komast að því hvort Ryan Giggs og Cristiano Ronaldo þurfi að svara til saka en hún telur að leik- mennirnir séu saklaus fórnar- lömb leikmanna Arsenal. United hefur einnig farið fram á skýringar á ummælum Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, þegar hann sagði að framherjinn Ruud Van Nistelrooy væri svindlari. ■ Leikmenn United: Saklaus fórnarlömb UPPÞOT Leikmönnum Manchester United og Arsenal lenti saman í og eftir leik liðanna um síðustu helgi. Stjórn United segir sína menn saklausa. Evrópukeppni kvennalandsliða: Ætlum okkur þrjú stig PÓLLAND - ÍSLAND Dóra María Lárusdóttir skorar tíunda mark Íslendinga gegn Pólverjum. BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS Þóra Björg Helgadóttir Guðrún Sóley Gunnarsdóttir Olga Færseth Edda Garðarsdóttir Margrét Lára Viðarsdóttir Ásthildur Helgadóttir (fyrirliði) Hólmfríður Magnúsdóttir Erla Hendriksdóttir Málfríður Erna Sigurðardóttir Íris Andrésdóttir Laufey Ólafsdóttir Varamenn: María Björg Ágústsdóttir, Erna B. Sigurðar- dóttir, Björg Ásta Þórðardóttir, Embla Grét- arsdóttir og Hrefna Jóhannesdóttir. FÓTBOLTI FH og ÍA mætast í dag í áttunda sinn í bikarkeppninni. Skagamenn hafa haft betur í fyrri viðureignum liðanna, hafa unnið fjóra leiki, einn endað með jafn- tefli en Fimleikafélagið vann tvisvar. Fyrsti leikurinn var á Akranesi árið 1965 og unnu heimamenn 3-0. Matthías Hallgrímsson skoraði tvívegis en Eyleifur Hafsteinsson einu sinni. Liðin skildu jöfn síðast þegar þau áttust við í undanúrslitum bikarkeppninnar árið 2000. Skagamenn höfðu betur í víta- keppni og urðu bikarmeistarar það ár. ■ Fyrri leikir FH og ÍA: Sagan með Skagamönnum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.