Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 19
19LAUGARDAGUR 27. september 2003                      ! " #     " $$ ! %         ! "  #$%  &&'(() % * ! & ' (  )  '+,-./,0   * (  # ( *   ( +  $ 12334$0 %  #  (   % .% 5"   ,'$ ## ( -)     &676 67+6 766 3766 676 76 Af hverju heiti ég Hringur?Jahhh, vegna þess að mamma mín gaf mér þetta nafn og pabbi vildi það,“ segir Hringur Haf- steinsson, margmiðlunarmeistari hjá Gagarín. Hann kemur af fjöll- um þegar þessi spurning er ann- ars vegar og hefur greinilega aldrei gengið á foreldra sína og heimtað svör. Nafnið Hringur var frekar sjaldgæft þegar Hringur var að vaxa úr grasi þó færst hafi í vöxt að börnum sé gefið það. „Eini maðurinn sem ég vissi um í þá daga var Hringur heitinn Jóhann- esson listmálari. Þannig tengdist ég honum órjúfanlegum andleg- um böndum án þess að hafa nokkurn tíma hitt manninn.“ Merking nafnsins liggur í aug- um uppi: Hringur eða baugur. Hringurinn er náttúrlega hið full- komna form og Hringur telur að þeir sem nafnið bera séu traustir menn – kannski svoldið drykk- felldir. „Heitir hann ekki Hring- ur, róninn á hjólinu? Nú, svo má segja að merkingin sé samheldni, sem á vel við mig og hinar póli- tísku skoðanir mínar.“ Þrátt fyrir að nafnið sé fágætt slapp Hringur vel við stríðni þeg- ar hann var strákur. „Ég var ekki fórnarlamb eineltis ef þú ert að fiska eftir því. Það var miklu frekar að ég nyti athygli vegna nafnsins og mér líkaði það vel. Upp að tólf ára aldri var ég reyndar á stundum kallað- ur Hringur – giftingar- hringur. Barnahúmor- inn klikkar ekki. Nú, og Hringavitleysa hjá stærðfræðikennaranum – allt mjög jákvætt og fínt og mér þyk- ir vænt um þetta nafn.“ Þegar Hringur var ungur að árum fengu eldri bræður hans gælunöfn, Þorvar var kallaður Þobbi og Hafsteinn Haffi. „Ég vildi náttúrlega líka og reyndi um tíma að láta kalla mig Higga – en Hringsnafnið virðist svo traust að ekki festist það nú við mig. Enda þetta Higgi alveg fáránlegt, ég sé það núna.“ Það verður vart skilið við Hring og hugleiðingar um hið ágæta nafn hans án þess að nefna hinn heimsþekkta nafna hans, sjálfan Ringó Starr. „Já, ég ein- hvern veginn áttaði mig ekki á þessu fyrr en Stuðmenn komu með lagið Hringur og bítlagæslu- mennirnir. Ég er þó ekki Ringó- maður líkt og Jón Óskar, elsti bróðir minn, heldur er það Lennon – að sjálfsögðu.“ ■ ■ Nafnið mitt HRINGUR HAFSTEINSSON Þegar hann var strák- ur vildi hann vera eins og eldri bræð- ur sínir, fá gælu- nafn, og reyndi að fá menn til að kalla sig Higga. En það gekk ekki, Hringsnafnið var traust... „Enda þetta Higgi alveg fáránlegt, ég sé það núna.“ Hringavitleysa og giftingarHringur HÖFUM OPNAÐ KÖKUHÚS Í KÓPAVOGI Hefur þú smakkað parísurnar okkar tilboð um helgina Kökuhúsið Auðbrekku 2 Kópavogi, s 554 2708 einnig tilboð á litlum tertum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.