Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 2
2 27. september 2003 LAUGARDAGUR
„Heita blóðið hjálpar þeim og Vinnu-
málastofnun ber til þeirra hlýhug.“
Vetur er að ganga í garð við Kárahnjúka. Gissur
Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Spurningdagsins
Gissur, verður Ítölunum kalt í vetur?
■ LögreglufréttirMaður á þrítugsaldri grunaður um morðið á Önnu Lindh:
Úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald
SVÍÞJÓÐ, AP Héraðsdómur í Stokk-
hólmi hefur úrskurðað 24 ára gaml-
an karlmann, sem grunaður er um
að hafa myrt utanríkisráðherrann
Önnu Lindh, í tveggja vikna gæslu-
varðhald. Manninum hefur einnig
verið gert að gangast undir geð-
rannsókn.
Dómarinn Göran Nilsson komst
að þeirri niðurstöðu að ákæruvald-
ið hefði undir höndum áþreifanleg-
ar vísbendingar um sekt mannsins.
Nilsson aflétti einnig nafnleynd af
manninum, gegn vilja skipaðs verj-
anda hans, Peter Althin. „Hann
telst ekki sekur fyrr en dómur hef-
ur verið kveðinn upp,“ sagði Alth-
in, sem farið hafði fram á það að
skjólstæðingur sinn yrði látinn
laus úr haldi.
Hinn grunaði heitir Mijailo
Mijailovic, er af serbneskum ætt-
um en fæddur í Svíþjóð. Í dóm-
skjölum kemur fram að hann hafi
hlotið dóma fyrir líkamsárás, ólög-
legan vopnaburð og hótanir. Árið
1997 var hann dæmdur í skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að stinga föð-
ur sinn í bakið með hnífi. Geðlækn-
ir sem rannsakaði Mijailovic af því
tilefni komst að þeirri niðurstöðu
að hann þyrfti nauðsynlega á með-
ferð að halda en ekki þótti þó
grundvöllur fyrir því að dæma
hann til vistar á geðsjúkrahúsi.
Ákæruvaldið hefur nú tvær
vikur til að afla sönnunargagna og
undirbúa ákærur á hendur mann-
inum. ■
HARÐUR ÁREKSTUR Ökumaður
var fluttur slasaður á slysadeild í
Fossvogi eftir harðan árekstur á
Suðurlandsvegi við Hvol í Ölfusi
um fimmleytið í gær. Bíl var ekið
á rúmlega 80 kílómetra hraða aft-
an á kyrrstæðan bíl.
BÍLLINN VAR HORFINN Bíl var
stolið í Breiðholti í gær. Eigandi
bílsins skildi hann eftir í lausa-
gangi þegar hann brá sér frá.
Þegar eigandinn sneri aftur var
bíllinn horfinn og er ófundinn.
Málið er í rannsókn lögreglu.
ÞRÍR Á OFSAHRAÐA Lögreglan á
Húsavík tók þrjá fyrir hraðakst-
ur í gær. Hraðinn sem bílarnir
mældust á var á bilinu frá 131
kílómetra á klukkustund upp í
142 kílómetra hraða.
Fullorðinn maður:
Laug um
eldsvoða
GABB Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var kallað út í Geit-
hamra í Grafarvogi í gær. Til-
kynnt var um að kviknað hefði í
feitipotti og að íbúðin væri full
af eldi og reyk. Slökkvilið,
sjúkrabílar og lögregla mættu á
staðinn en í ljós kom að um gabb
var að ræða.
Fullorðinn maður sem stóð í
illindum við heimilisfólk á Geit-
hömrum hafði tilkynnt um brun-
ann. Málið er litið mjög alvarleg-
um augum og verður kært.
Uppátækið varð til þess að
seinka sjúkraflutningi. ■
Lögreglan í Reykjavík:
Rannsakar
vændi
RANNSÓKN Gunnleifur Kjartans-
son hjá ofbeldisbrotadeild lög-
reglunnar í Reykjavík staðfestir
að lögreglan rannsaki hvort er-
lendar vændiskonur stundi
vændi hér á landi. Þrír Íslend-
ingar eru grunaðir um að eiga
þátt í skipulagningu starfsem-
innar, sem fer fram á hótelum
borgarinnar.
Gunnleifur segir rannsóknina
ganga vel en verst frekari
fregna af málinu. ■
LENTI UTAN VEGAR Ökumaður
missti stjórn á flutningabíl í vest-
anverðum Bitrufirði í gærkvöldi
með þeim afleiðingum að bíllinn
fór út af veginum og endaði á
hliðinni. Að sögn lögreglu slapp
ökumaðurinn án meiðsla.
Tvítugur maður:
Hlaut fjórar
hnífstungur
HNÍFSTUNGUR Maður um tvítugt
var stunginn fjórum sinnum
með hnífi í Ármúlanum að lokn-
um skóladansleik á Broadway
aðfaranótt föstudags. Maðurinn
hlaut ekki alvarlega áverka, þar
sem hnífurinn var lítill.
Í kjölfarið var maður um tví-
tugt handtekinn og hefur hann
játað verknaðinn. Gunnleifur
Kjartansson hjá lögreglunni í
Reykjavík staðfesti játninguna.
Málið er upplýst. ■
Einn laus
og liðugur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
22
36
7
0
9/
20
03
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - Strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur,
ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
BMW 323ci
Fyrst skráður: 04.2000
Ekinn: 90.000 km
Vél: 2500cc ssk.
Litur: Silfurgrár
Verð: 2.900.000,- kr.
Búnaður: Leður, álfelgur,
þjófavörn, AC ofl.
Tilboðsverð: 2.490.000 kr.
DÓMSMÁL Varnarliðsmaðurinn sem
var ákærður fyrir tilraun til
manndráps í Hafnarstræti 1. júní
var dæmdur í átján mánaða fang-
elsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Gæsluvarðhald frá fjórða
júní dregst frá dómnum. Hann
var einnig dæmdur til að greiða
þolanda árásarinnar, sem hlaut
fimm hnífstungur, þar af þrjár
lífshættulegar, 800.000 krónur í
miskabætur og 900.000 í máls-
kostnað.
Dómnum þótti ljóst að ákærði
hafi ekki staðið einn að verknaðin-
um en engu að síður þótti atlaga
hans stórhættuleg og aðeins hend-
ing ráðið að ekki fór verr.
„Miðað við þá niðurstöðu dóm-
aranna að hann hafi farið út fyrir
mörk leyfilegrar neyðarvarnar er
refsingin í eðlilegu samræmi við
það. Undir venjulegum kringum-
stæðum, ef engar varnir hefðu
komið fram í málinu, hefði mátt
búast við rúmlega þriggja ára
dómi,“ segir Sveinn Andri Sveins-
son, lögmaður varnarliðsmanns-
ins, um dóminn.
Sveinn segir þá ætla að taka
sér tíma til að ákveða hvort þeir
áfrýi dómnum. „Við erum sáttir
við að hann verði áfram í gæslu-
varðhaldi enda er skipan gæslu-
varðhaldsins óbreytt, hann verður
áfram uppi á velli.“ ■
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Dæmdur í 18 mánaða fangelsi
ÚR DÓMSAL
Varnarliðsmanninum var gert að greiða þolanda 800.000 krónur í miskabætur.
ALÞJÓÐAMÁL Ummæli Kofi Annan,
aðalritara Sameinuðu þjóðanna, við
upphaf allsherjarþings samtak-
anna í vikunni hafa vakið athygli. Í
ræðu sinni sagði Annan að öryggis-
ráðið svaraði ekki þörfum alþjóða-
samfélags nútímans og að breyt-
inga væri þörf. Hyggst Annan
skipa nefnd, sem fara á yfir starf
ráðsins og gera tillögur um breyt-
ingar á því.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að ræðu Annan hafi
almennt verið vel tekið og margir
hafi tekið undir orð hans.
„Við ákváðum það á sameigin-
legum fundi utanríkisráðherra
Norðurlandanna á miðvikudaginn
að styðja þessi ummæli Annan,“
segir Halldór. „Þá hyggjumst við
lýsa yfir áhuga Norðurlandanna á
að taka þátt í þeirri nefnd sem
hann hyggst koma á laggirnar. Mér
finnst ekki ólíklegt að Norðurlönd-
in fái fulltrúa í nefndina, en því
hvort hann verður íslenskur eða
ekki get ég ekki svarað.“
Halldór segir mikilvægt að gera
starf öryggisráðsins skilvirkara.
Þá hljóti að vera eðlilegt að draga í
efa réttmæti þess að ákveðnar
fimm þjóðir hafi neitunarvald en
aðrar ekki.
„Að mínu mati þarf að breyta
neitunarvaldinu, sem ég tel að sé
úrelt fyrirbæri. Hlutirnir hafa
breyst svo mikið síðan það var sett
á. Ég geri samt ekki ráð fyrir því
að það takist að afnema neitunar-
valdið fyrst því var einu sinni kom-
ið á. Það væri hins vegar að mínu
mati lágmark að því væri aðeins
beitt við einhverjar aðstæður sem
skilgreindar væru nánar, þannig að
þessar fimm þjóðir geti ekki beitt
neitunarvaldi hvenær sem er, eins
og nú er.“
Í dag eru fimmtán ríki í öryggis-
ráðinu. Fimm eru með varanlega
aðild, en auk þeirra sitja tíu ríki í
ráðinu sem kosin eru til tveggja
ára í senn. Skipt er um aðildarríki á
hverju ári, fimm í einu. Aðspurður
segist Halldór telja eðlilegt að ríkj-
um í ráðinu verði fjölgað um fimm
til tíu. „Ríki eins og Þýskaland,
Japan og Indland hafa gert kröfu
um að fá varanlega aðild að ráðinu.
Mitt mat er að það þurfi að fjölga
bæði ríkjum með varanlega aðild
og þeim sem kosið er um.“
trausti@frettabladid.is
Neitunarvaldið
er úrelt fyrirbæri
Utanríkisráðherra Íslands tekur undir með Kofi Annan, aðalritara
Sameinuðu þjóðanna. Hann segir mikilvægt að gera starf öryggisráðsins
skilvirkara og breyta reglum um notkun neitunarvalds.
ÍSLAND SÆKIR UM
Ísland, sem aldrei hef-
ur átt sæti í öryggisráð-
inu, hefur ákveðið að
sækja um aðild að ör-
yggisráðinu árið 2009
og 2010 og sú kosning
fer fram árið 2008. Að-
spurður segist Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra telja að Ís-
land eigi fullt erindi í ráðið.
„Ísland hefur það sama að gera í öryggis-
ráðið eins og allar aðrar þjóðir. Við höf-
um engan rétt á því að sitja ávallt hjá og
vera ekki tilbúnir að taka þátt í mikilvægu
starfi alþjóðlegra stofnana. Ísland hefur
skyldur gagnvart alþjóðasamfélaginu. Við
höfum byggt upp gott lýðræðisþjóðfélag
og höfum heilmikla reynslu. Við erum
þjóð friðar og talsmenn mannréttinda.
Það er því okkar skylda að leggja okkar af
mörkum á alþjóðavettvangi, eins og allar
aðrar þjóðir.“
NÝR FASTAFULLTRÚI ÍSLANDS HJÁ SÞ OG AÐALRITARI SAMTAKANNA
Hjálmar W. Hannesson afhenti Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá samtökunum í síðustu viku.
VERJANDINN SVARAR
BLAÐAMÖNNUM
Peter Althin, verjandi Mijailo Mijailovic,
ræðir við blaðamenn fyrir utan réttarsalinn
í Stokkhólmi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Olíufélagið ESSO:
Bensínverð
lækkar í dag
ELDSNEYTI Bensínverð hjá ESSO
lækkar í dag um þrjár og hálfa
krónu á hvern lítra. Lækkunin
kemur í kjölfar mikilla verðlækk-
ana á heimsmarkaðsverði og
styrkingar krónunnar að undan-
förnu. Stutt er síðan Greiningar-
deild Kaupþings Búnaðarbanka
spáði allt að þriggja króna verð-
lækkun um mánaðamót.
Önnur olíufélög höfðu ekki til-
kynnt verðlækkanir þegar blaðið
fór í prentun. ■
HANDSAMAÐIR Á HLAUPUM
Lögreglan í Reykjavík handsam-
aði tvo þjófa nærri Þjóðarbók-
hlöðunni í gærkvöldi. Nokkurt
lögreglulið var kallað á vettvang
og náði mönnunum tveimur eftir
hlaup og slagsmál. Mennirnir
voru í annarlegu ástandi að sögn
lögreglu, sem kvaðst lítið geta
sagt um málið þar sem það væri
enn í rannsókn.
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir