Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 4
4 27. september 2003 LAUGARDAGUR
Hverjir verða bikarmeistarar karla
í fótbolta?
Spurning dagsins í dag:
Fær Ísland sæti í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
37,6%
62,4%
FH
ÍA
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Samtök verslunar segja Impregilo enga reikninga hafa borgað:
Impregilo sagt lofa og svíkja
VIÐSKIPTI Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu, segir ít-
alska verktakafyrirtækið Impreg-
ilo stunda að efna til reikningsvið-
skipta við íslensk fyrirtæki og
svíkja síðan öll loforð um greiðsl-
ur.
Samtökin hafa óskað eftir því
við félagsmenn sína að þeir gefi
yfirlit yfir stöðu viðskipta við
Impregilo fyrir lok dags á mánu-
daginn. Andrés segir sum fyrir-
tækin þegar hafa lokað á viðskipti
við ítalska verktakann. Útlit sé
fyrir að vanskilin skipti tugum
milljóna króna.
„Hversu margir milljóna-
tugirnir eru vitum við betur á
mánudaginn. Ég myndi giska á að
það væru á milli tíu og tuttugu
fyrirtæki innan okkar vébanda
sem í hlut eiga. Þetta eru fyrst og
fremst fyrirtæki sem flytja inn
byggingarvörur, rafmagnsvörur
og slíka hluti,“ segir Andrés.
Að sögn Andrésar hafa við-
skiptin staðið allt frá því í júní:
„Þeir hafa ekkert borgað og það
eru þrír mánuðir gjaldfallnir. Þeir
bara lofa og svíkja. Það eru engar
efndir.“ ■
Á sjúkrahúsi
eftir hnífstungu
22 ára maður liggur enn á sjúkrahúsi eftir hnífstungu aðfaranótt síðasta
sunnudags. Gunnleifur Kjartansson, hjá ofbeldisbrotadeild lögreglunn-
ar, segir einn vera grunaðan um verknaðinn.
BREIÐHOLT Tuttugu og tveggja ára
maður liggur á sjúkrahúsi eftir
skurðaðgerð sem gerð var eftir
hnífsstungu. Maðurinn var stung-
inn fyrir utan Select í Breiðholti
aðfaranótt sunnudags. Árásar-
mennirnir hættu
misþyrmingunum
þegar þeir sáu að
maðurinn var ekki
sá sem þeir áttu
sökótt við.
V i ð m æ l a n d i
Fréttablaðsins seg-
ir að maðurinn hafi
verið fluttur á slysadeild eftir
árásina þar sem var saumaður
fimm sentímetra skurður á síðu
hans. Síðan var hann sendur heim.
Honum leið illa og fann til slapp-
leika. Á mánudaginn var hann
orðinn mikið veikur, meðal annars
var hann mjög bólginn á maga.
Farið var með hann á sjúkrahús
og þá kom í ljós að um innvortis
meiðsl var að ræða og var hann
sendur í skurðaðgerð um mið-
nætti á mánudag. Viðmælandi
blaðsins segir manninn ætla að
kæra og að hann sé þegar búinn
að fá sér lögfræðing.
„Enginn hefur verið handtek-
inn vegna árásarinnar,“ segir
Gunnleifur Kjartansson hjá of-
beldisbrotadeild lögreglunnar.
Hann segir einn vera grunaðan og
unnið hafi verið í málinu af krafti
síðan árásin átti sér stað. Að sögn
Gunnleifs er búið að yfirheyra
nokkra en ekki þann grunaða.
„Húsbrotið á mánudagskvöld
var einhvers konar uppgjör um
persónulega hluti á milli einstak-
linga. Það var ekki kært, sem seg-
ir kannski meira en mörg orð,“
segir Geir Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík. Hann
segir eitthvað annað á bak við
árásina en sýnist í fyrstu. „Við
höfum verið að rannsaka hver
grunnorsökin er og höfum unnið í
því að leysa málið, meðal annars
til að stoppa múgsefjun á meðal
unglinganna.“
Geir Jón segir að árásin fyrir
utan Select hafi verið gerð vegna
misskilnings, sá sem ráðist var á
hafi ekki verið sá sem árásarmað-
urinn átti sökótt við.
„Alltaf þegar svona gerist hefj-
um við grunnvinnu meðal krakk-
anna. Tölum við þá og athugum
hvað er að gerast,“ segir Geir Jón.
Hann segir slíka atburði sem bet-
ur fer afar sjaldgæfa. „Það er
ekkert sem gefur tilefni til þess
að halda að um viðvarandi ástand
sé að ræða, það kæmi okkur á
óvart ef eitthvað nýtt kæmi upp á
eða þetta héldi áfram.“
hrs@frettabladid.is
Ísafjarðarbær:
Hætta drápi
villikatta
BÆJARMÁL Bæjaryfirvöld á Ísafirði
hafa ákveðið að hætta aðgerðum
við útrýmingu villikatta um sinn.
Fréttavefurinn bb.is greindi
frá því í gær að tillaga um að
hætta drápum á villiköttum
hefði verið samþykkt á bæjar-
stjórnarfundi á fimmtudaginn.
Jafnframt hafi verið samþykkt
að leggja fram drög að sam-
þykkt um kattahald á fund bæj-
arráðs eftir helgi.
Fyrir skömmu fór af stað átak
til að hreinsa Ísafjarðarbæ af
villiköttum. Valur Richter, mein-
dýraeyðir á Ísafirði, líkti þá
ástandinu við „algjöra plágu“. ■
ELDFJALLIÐ FUJI
Eldgos hefur ekki orðið á fjallinu Fuji í
þrjár aldir.
Eldfjallið Fuji:
Gufa úr
sprungum
TÓKÍÓ, AP Ljósleit gufa hefur
streymt úr sprungum í hlíðum
Fuji, frægasta fjalls Japans, und-
anfarna daga. Japanska veður-
stofan segir þó ekkert benda til
þess að eldgos sé á næsta leiti.
Þetta er í fyrsta sinn í hátt í sex
áratugi sem gufu leggur frá fjall-
inu. Mælingar hafa verið gerðar á
gufunni og inniheldur hún hvorki
brennistein né önnur frumefni
sem gætu bent til þess að eldgos
væri í vændum.
Fuji-fjall gaus síðast árið 1707.
Í dag búa um 12,5 milljónir manna
í nágrenni fjallsins. ■
BLÓMAHAF
Um sex milljónir rósa eru ræktaðar
hérlendis ár hvert.
Blómasýning:
Ræktun
í blóma
BLÓM Blómasýning 2003 í Ráðhúsi
Reykjavíkur verður opnuð al-
menningi í dag. Það er Samband
garðyrkjubænda, í samvinnu við
blómabændur, Garðyrkjuskóla
ríkisins og Félög blómaskreyta,
blómaheildsala og blómaverslana,
sem stendur að sýningunni.
Á sýningunni verða blóma-
skreytar að störfum, auk þess
sem efnt verður til samkeppni um
nafn á nýja gerberutegund.
Íslensk ræktun er í miklum
blóma, en talið er að framleiddar
séu um 6 milljónir rósa árlega hér
á landi. Þá er mikil gróska í potta-
blóma-, túlípana- og gerberu-
ræktun. ■
Össur:
Kaupir
fyrirtæki
FJÁRFESTING Stoðtækjafyrirtækið
Össur hefur samið um kaup á
bandaríska fyrirtækinu Gener-
ation II fyrir um 2,4 milljarða ís-
lenskra króna. Generation II er
eitt fremsta fyrirtæki heims í
framleiðslu á hnjáspelkum og hjá
því starfa 168 manns í þremur
löndum. Jón Sigurðsson, forstjóri
Össurar, segir kaupin mikilvægan
áfanga í sókn Össurar inn á stuðn-
ingstækjamarkaðinn og að áhersl-
ur bandaríska fyrirtækisins falli
mjög vel að hugmyndafræði Öss-
urar. ■
Bæjarstjóri um Norðurál:
Lítur vel út
ATVINNUMÁL Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, fagnar tíðindum
af því að samningsdrög liggi fyrir
um orkusölu vegna stækkunar
Norðuráls.
„Þessi tíðindi eru á betri veg-
inn,“ segir hann. „Maður er aldrei
rólegur fyrr en allir samningar
hafa verið undirritaðir, en þetta
lítur vel út. Það er afar mikilvægt,
ekki bara fyrir Akranes, heldur
fyrir allt Vesturland og í raun höf-
uðborgarsvæðið að samningar
takist um þessa framkvæmd,“
segir Gísli. ■
Enn sprengt í Írak:
Níu létust
BAQOUBA, AP Níu manns létust og
tugir slösuðust þegar sprengja
sprakk á útimarkaði í Bagdad,
höfuðborg Íraks, í gær. Grunur
leikur á um að sprengjan hafi ver-
ið ætluð bandarískum hermönn-
um sem hafa aðsetur skammt frá
útimarkaðnum.
Þá var bandarískur hermaður
skotinn til bana nærri bænum
Kirkuk. Alls hafa 86 bandarískir
hermenn fallið í Írak frá því Bush
lýsti yfir formlegum stríðslokum
1. maí. ■
Landsbankinn:
Stefnan sett
í austurátt
VIÐSKIPTI Landsbankinn opnaði
nýtt útibú í Lúxemborg í gær. Úti-
búið var áður í eigu Búnaðar-
banka Kaup-
þings, en í maí á
þessu ári keypti
L a n d s b a n k i n n
það og breytti
nafninu í Lands-
bankinn Luxem-
bourg A.S.
„Landsbank-
inn hefur einsett
sér að að vaxa
með aukinni út-
rás,“ sagði Björg-
ólfur Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Landsbankans. Hann sagði
að til stæði að stækka Heritable-
bankann í London, sem er í eigu
Landsbankans. Þá væri stefnt á að
opna útbú í Pétursborg í Rúss-
landi og skoða möguleikana á að
opna útibú í Eystrasaltslöndun-
um. ■
Colin Powell setur framkvæmdaráði Íraks tímamörk:
Hálft ár til að semja stjórnarskrá
NEW YORK, AP Bandaríkjamenn
ætla að gefa framkvæmdaráði
Íraks sex mánaða frest til þess
að semja nýja stjórnarskrá og
efna til kosninga. Colin Powell
utanríkisráðherra skýrði frá
þessu í viðtali við New York
Times í gær. Powell sagði að tím-
inn væri naumur en með þessu
væri Bandaríkjastjórn að bregð-
ast við kröfum um valdaafsal til
Íraka. Frakkar og fleiri þjóðir
hafa krafist þess að íraska
heimastjórnin taki við stjórnar-
taumum í landinu eins fljótt og
auðið er.
Powell segir að í nýrri stjórn-
arskrá Íraks eigi meðal annars að
vera ákvæði um hvort forseti eða
landsþing fari með yfirstjórnina,
hvernig kjósa skuli forseta og
þing og hvert samspil ríkis og
trúar verði í nýju Írak.
Powell sagði að Bandaríkja-
stjórn hefði beðið framkvæmda-
ráðið í Írak að áætla hversu lang-
an tíma tæki að semja nýja
stjórnarskrá og svars væri að
vænta á næstunni. Bandarísk
hermálayfirvöld færu með stjórn
í Írak uns stjórnarskrá gefði ver-
ið samin og kosið í landinu. ■
ANDRÉS MAGNÚSSON
„Þeir bara lofa og svíkja. Það eru engar
efndir,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu.
BJÖRGÓLFUR
Stefnt á að opna
útbú í Pétursborg í
Rússlandi.
SELECT Í BREIÐHOLTI
Maðurinn sem var stunginn fyrir utan Select var ekki sá sem árásarmennirnir
áttu sökótt við.
■
Það er ekkert
sem gefur til-
efni til þess að
halda að um
viðvarandi
ástand sé að
ræða.
SETUR TÍMAMÖRK
Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir framkvæmdaráðið í Írak fá sex mán-
aða frest til að semja nýja stjórnarskrá fyrir landið. Í kjölfarið verði efnt til kosninga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T