Fréttablaðið - 27.09.2003, Side 16

Fréttablaðið - 27.09.2003, Side 16
16 27. september 2003 LAUGARDAGUR Flestir hafa fengið að kynnastþví að það getur verið ákaflega pirrandi að vera hafður fyrir rangri sök. Einhver segir að mað- ur hafi sagt eitthvað sem maður hefur ekki sagt og af því hlýst misklíð sem byggist á misskiln- ingi. Ennþá verra er þó að vera saklaus grunaður um að brjóta lögin. En verst af öllu hlýtur þó fyrir saklausan aðila að lenda í því að vera handtekinn fyrir morð, og settur í gæsluvarðhald meðan fjölmiðlar hamast við að birta mismunandi nákvæmar lýsingar á öllum þeim mistökum sem manni kunna að hafa orðið á gegn- um tíðina. Aðeins eitt getur verið verra, en það er að vera dæmdur til refsingar fyrir verknað sem maður er saklaus af. Í Svíþjóð sat 35 ára gamall maður í haldi lögreglunnar frá föstudegi í síðustu viku fram á miðvikudag. Hann var grunaður um að hafa myrt Önnu Lindh, ut- anríkisráðherra landsins. Um það morð hefur verið fjallað í flestum fjölmiðlum heimsins, og víðast hvar gengu menn að því sem vísu að lögreglan hefði fundið ódæðis- manninn. Endurtekur sagan sig? Fyrir sautján árum gerðist sá atburður í Svíþjóð að Olof Palme, forsætisráðherra landsins, var skotinn til bana á götu í Stokk- hólmi, þegar hann var á leið heim úr kvikmyndahúsi ásamt konu sinni. Mikill óhugur greip sænsku þjóðina og mjög var þrýst á lögregluna að finna morð- ingjann hið bráðasta. Nokkrum dögum síðar var 33 ára gamall maður handtekinn og settur í gæsluvarðhald grunaður um ódæðisverkið. Hann hét Viktor Gunnarsson. Lögum samkvæmt máttu fjöl- miðlar í Svíþjóð ekki skýra frá nafni mannsins, en honum var lýst í smáatriðum, og fjölmiðlar í öðrum löndum birtu nafn hans von bráðar, svo að fljótlega vissi hvert mannsbarn í landinu að Viktor Gunnarsson væri grunaður um að hafa banað Olof Palme, þrátt fyrir að fjölmiðlar töluðu ævinlega um „33 ára gamlan mann“ í stað þess að nefna nafn hans. 33 ára og 35 ára Viktor Gunnarsson sat í gæslu- varðhaldi í Kronobergsfangelsinu í sex og hálfan sólarhring áður en lögmaður hans, Gunnar Falk, fékk hann leystan úr haldi vegna skorts á sönnunum. Sautján árum síðar sat 35 ára gamall maður í hinu sama Krono- bergsfangelsi, og sami lögmaður- inn, Gunnar Falk, vann að því að fá hann látinn lausan. Hinn grunaði maður hefur nú verið látinn laus og hvaða áhrif gæsluvarðhaldsvistin og fjöl- miðlaumfjöllun mun hafa á líf hans vita menn ekki. Hins vegar vita menn örlög Viktors Gunnars- sonar sem fyrir 17 árum var hand- tekinn og grunaður um annað morð sem einnig var á forsíðum allra blaða. Laug að lögreglunni Viktor Gunnarsson var ólíkur þeim manni sem nú sat í gæslu- varðhaldi að því leyti að Viktor var ekki á sakaskrá, hafði aldrei komist í kast við lögin. Sá sem handtekinn var grunaður um morðið á Önnu Lindh hefur verið dæmdur fyrir 50 afbrot við 14 mismunandi réttarhöld. Viktor Gunnarsson þótti grun- samlegur fyrir ýmissa hluta sakir þrátt fyrir að hann væri ekki á sakaskrá. Hann gekk með húfu eins og menn töldu sig hafa séð á morðingjanum. Hann laug til um æviferil sinn, þóttist vera lang- skólagenginn og kvaðst vinna hjá bandarísku uppboðsfyrirtæki sem reyndist ekki vera til. Kunnugir sögðu að hann liti á sig sem ein- hvers konar ofurmenni, og vitni héldu því fram að hann hefði sagst hata Olof Palme. Hann var sagður stórlygari og líta á Banda- ríkin sem fyrirmyndarland. Eftir sex og hálfan sólarhring í gæsluvarðhaldi var Viktor Gunn- arsson látinn laus. Ef til vill hefði hann átt að vera frelsinu feginn, en hann komst fljótlega að því að almenningsálitið hafði kveðið upp sinn dóm hafandi kynnt sér um- fjöllun fjölmiðla. Og dómurinn var á þá leið að Viktor Gunnars- son væri sekur. Annað hvort væri hann sjálfur morðinginn, eða að minnsta kosti tengdur ódæðis- verkinu með einhverjum hætti. Landflótta Eftir að annar maður hafði ver- ið handtekinn, og síðar sakfelldur og loks sýknaður af Palme-morð- inu, var Viktor Gunnarsson á flækingi um Svíþjóð. Hann kallaði sig ýmsum nöfnum, Åke, Lennart eða Vic, en það var sama hvað hann kallaði sig, honum var hvergi vært vegna þessa máls. Viktor Gunnarsson stefndi sænska blaðinu Arbetet og krafð- ist 400 þúsund sænskra króna í miskabætur fyrir umfjöllun blaðsins um sig meðan hann sat í gæsluvarðhaldi. Hann fékk að lokum 187.500 krónur í skaðabæt- ur. Hann stefndi sænska ríkinu fyrir ástæðulausa handtöku og krafðist þess að fá tvær milljónir sænskra króna í skaðabætur. Hon- um voru dæmdar 96.200 krónur í miskabætur. Loks kom þar að Viktor Gunn- arsson ákvað að sér væri ekki lengur vært í heimalandi sínu og hann fluttist til fyrirheitna lands- ins, Bandaríkjanna. Lík í snjóskafli Í desember 1994, tæpum níu árum eftir að Viktor Gunnarsson var látinn laus eftir sex sólar- hringa dvöl í Kronobergsfangels- inu, sáu vegavinnumenn við Blue Ridge Parkway, norðarlega í Norður-Karólínufylki, að berir fætur stóðu upp úr snjóskafli í Þrjátíu og fimm ára gamall Svíi sat í fangelsi í fimm daga, grunaður um morðið á Önnu Lindh. Nú hefur honum verið sleppt og annar maður handtekinn. Fyrir sautján árum átti svipuð atburðarás sér stað út af morðinu á Olof Palme: Sekur uns sak- leysi er sannað HVER ER MAÐURINN? Tveir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um að vera þessi maður, sem flest bendir til að sé morðingi Önnu Lindh. Þeim fyrri, þrjátíu og fimm ára gömlum Svía, hefur nú verið sleppt, en annar er kominn í hans stað, grunaður um að vera morðinginn. VIKTOR GUNNARSSON Hann sat í fangelsi fyrir sautján árum, grunaður um morðið á Olof Palme. Þrátt fyrir að honum hafi verið sleppt fékk hann aldrei uppreisn æru í Svíþjóð.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.