Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 17
17LAUGARDAGUR 27. september 2003
skógarjaðri í námunda við veginn.
Þeir kölluðu í lögregluna og nakið
mannslík var grafið úr skaflinum.
Líkið var með hring á fingri og í
hringinn voru grafnir stafirnir
VG. Líkið var með skotsár á
hnakka og höfði. Þetta var inn-
flytjandinn Viktor Gunnarsson.
Lögreglurannsókn leiddi í ljós
að fyrrverandi lögreglumaður að
nafni Lamont Claxton hafði myrt
hann í afbrýðisemikasti vegna
kennslukonunnar Kay Weden.
Tæpum níu árum eftir morðið
sem Viktor Gunnarsson var grun-
aður um lét hann líf sitt fyrir
hendi morðingja. Lögreglan hafði
sýknað hann á sínum tíma, eftir að
hann hafði í sex og hálfan sólar-
hring haft stöðu grunaðs manns,
en almenningsálitið hafði dæmt
hann í útlegð. Grunurinn hefur
fylgt Viktori Gunnarssyni alla leið
í gröfina. Sumir segja að hann
hafi verið hinn raunverulegi
morðingi á vegum CIA og þess
vegna hafi hann fengið landvist-
arleyfi í Bandaríkjunum. CIA hafi
svo ákveðið að koma honum fyrir
kattarnef í öryggisskyni.
Sekur uns sakleysi
er sannað
Gunnar Falk, lögmaður í Stokk-
hólmi, hefur nú öðru sinni fengið
skjólstæðing sinn látinn lausan.
Það er margt líkt með þessu máli
og málinu sem kom nafni lög-
mannsins á allra varir fyrir 17
árum. En það er líka margt ólíkt.
Gunnar Falk segir að sér hafi
þótt lítið til þeirra sannana koma
sem lögreglan hefur lagt fram
gegn hinum 35 ára gamla skjól-
stæðingi. „Þeim hefur ekki tekist
að tengja hann við glæpinn,“ seg-
ir hann og orðin hljóma eins og
bergmál af því sem hann sagði við
blaðamenn út af öðru máli fyrir 17
árum. Tilhugsunin um að saklaus
maður sitji í haldi er skelfileg.
Það sem gerði Viktori Gunnars-
syni ólíft í Svíþjóð á sínum tíma
var að hinn raunverulegi morð-
ingi fannst aldrei, svo að sakleysi
hans var aldrei sannað í augum al-
mennings. Eina vonin núna til að
umflýja nýjan harmleik er að
rannsókn morðsins á Önnu Lindh
leiði til þess að ótvíræð niðurstaða
fáist. Þangað til sakleysi hans hef-
ur verið sannað og annar söku-
dólgur játað er hinn 35 ára gamli
maður sekur í augum almennings.
Sekur um að hafa legið undir
grun. Það er vissulega andstætt
lögunum. En lífið er einfaldlega
þannig.
thrainn@frettabladid.is
SÖNNUNARGAGNA AFLAÐ
Lögreglan í Svíþjóð aflar nú sönnunargagna.
Það var einmitt það sem skorti, sönnunar-
gögn, í tilviki hins þrjátíu og fimm ára
gamla manns sem nú hefur verið sleppt.
Hinn 35 ára gamli maður semáður sat í þeim klefa sem
hinn 24 ára gamli Mijailo
Mijailovic gistir nú, vegna
morðsins á Lindh, er frelsinu
feginn. Aftonbladet í Svíþjóð
hefur birt einkaviðtal við hann
þar sem hann lýsir veru sinni í
gæsluvarðhaldinu og ánægju
sinni með að hafa verið látinn
laus.
Hann segist hafa verið viss
um sakleysi sitt en engu að síð-
ur hafi hann óttast að lögreglan
mundi grípa til þess að falsa
sönnunargögn gegn sér til þess
að geta sagst hafa leyst morðið.
Hann segist hafa verið mjög
feginn þegar verjandi hans
sagði honum að gögn í málinu
hefðu verið send í lífsýnarann-
sókn, DNA, til Englands, en þá
hefði hann orðið þess fullviss að
sakleysi sitt kæmi í ljós.
Dagarnir í einangrunarvist-
inni voru lengi að líða. Í klefan-
um var einungis dýna og teppi
og salernisaðstaða. Klefadyrn-
ar eru úr skotheldu gleri.
Það er ljóst að hinn 35 ára
gamli maður mun eiga kröfu á
sænska ríkið í miskabætur fyr-
ir að hafa setið saklaus í gæslu-
varðhaldi. Hin gífurlega athygli
sem málið hefur vakið mun
verða til þess að hann geti gert
kröfu um mun hærri bætur
heldur en þeir sem óvart verða
fyrir því að lenda í steininum „í
kyrrþey“.
Umfjöllun fjölmiðla
Einnig er líklegt að maðurinn
reyni að höfða mál á hendur
þeim fjölmiðlum sem hann telur
að hafi farið offari í umfjöllun
sinni um persónu sína, æviferil
og annað sem honum tengist. Á
þessari stundu er engin leið að
spá fyrir um hvernig sá mála-
rekstur muni ganga því að fjöl-
miðlar svara því til að svona
stórmál geri kröfu til ýtarlegrar
umfjöllunar og almenningur eigi
rétt á því að fá allar þær upplýs-
ingar sem fjölmiðlar geti komist
yfir. Það þjóni ekki lýðræðinu að
fjölmiðlar ritskoði sjálfa sig, og
umfram allt megi aldrei vakna
grunsemdir um að fjölmiðlar
þegi yfir einhverju sem þeir hafi
vitneskju um. ■
Fyrri gæsluvarðhaldsfanginn í viðtali við Aftonbladet um reynslu sína:
Óttaðist lögregluna
MAÐUR Í MANNS STAÐ
Nýr maður hefur nú verið leiddur í réttar-
sal í stað þess fyrri. Myndatökur eru
bannaðar en þetta er hinn grunaði séður
augum teiknara.