Fréttablaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 35
„Mökuleki“ í menningarmiðstöðinni
Skaftfell á Seyðisfirði. Sýningin stendur
til 10. október. Allir velkomnir.
■ ■ SKEMMTANIR
22.30 FM957-Higher Energy-
kvöld verður haldið á skemmtistaðnum
Pravda. 20 ára aldurstakmark.
23.00 Rúnar Þór og félagar leika í
Fjörugarðinum, Fjörukránni í Hafnar-
firði.
23.00 DJ Reynir og DJ Ricz verða
með Drum&Bass og Jungle tónlist á
Vídalín.
DJ Lupin spilar á Café Kúlture,
Hverfisgötu 18
Stórhljómsveitin Douglas-Wilson
verður með alvöru rock and roll stemn-
ingu á Odd-Vitanum, Akureyri.
Á Kránni, Laugavegi 73, spilar í kvöld
tríó sem kallar sig 3óDóR (tríódór) og
samanstendur af Óla gítarleikara og
Röggu söngkonu úr hljómsveitinni Sein
ásamt Dísu bongóleikara úr hljómsveit-
inni Rokkslæðurnar.
Svensen og Hallfunkel verða á
Gullöldinni.
Hljómsveitin Á móti sól spilar í
Stapanum, Reykjanesbæ.
Megas og Súkkat verða með Mega-
sukk á Grand Rokk.
Stórdansleikur með Hljómum á
Broadway. Miðaverð er 1.800 kr.
Skítamórall skemmtir á Gauki á
Stöng.
Sú Ellen, Dúkkulísur og Herbert
Guðmundsson spila á 80’s kvöldi í
Sjallanum, Akureyri.
Hin ástsæla gleðisveit Gilitrutt leikur
á Krúsinni, Ísafirði.
Hljómsveitirnar Papar og Von spila í
„Reiðhöllinni á Sauðárkróki“.
Hljómsveitin Hálft í Hvoru spilar í
Höllinni, Vestmannaeyjum.
Hljómsveitin Sagaklass spilar á
Players í Kópavogi.
Hinir stórskemmtilegu drengir í
rokk-, diskó-, salsa-, kántrý- og pönk-
sveitinni Úlrik spila á Café Amsterdam.
Stuðmenn, hljómsveit allra lands-
manna, skemmtir Austfirðingum í Vala-
skjálf á Egilsstöðum. Þetta er fyrsta
framkoma Stuðmanna eftir velheppn-
aða tónleikaför til Tívolís í Danaveldi.
Óskar Einarsson trúbador spilar á
skemmtistaðnum De Boomkikker við
Hafnarstræti.
Hljómsveitin Skítamórall ætlar að
halda uppi stemninguni langt fram eftir
öllu á Gauknum. 1500 krónur.
Dúettinn Acoustics skemmtir á Ara í
Ögri.
Gullfoss og Geysir í Leikhúskjallar-
um.
Hinn stórfætti Kiddi Bigfoot sér um
skemmtunina á Hressó.
Dans- og gleðitríóið Copy Paste og
Enter mun skemmta gestum Kringlu-
kráarinnar.
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Síðasta haustganga ársins á
vegum Skógræktarfélaganna verður far-
in í Fossvogsdal. Göngustjórar verða
Steinar Björgvinsson og Hannes Þór
Hafsteinsson. Báðir garðyrkjufræðingar
og miklir áhugamenn um fugla. Safnast
saman við hliðið að Gróðarstöðinni í
Fossvogi neðan við Borgarspítalann.
Gengið um skóginn og farið yfir Kringlu-
mýrarbraut á göngubrú í kirkjugarðinn.
■ ■ FUNDIR
13.30 „Gáskafullur virðuleiki“ nefn-
ist Sjónþing í Gerðubergi, sem að
þessu sinni er helgað leirlistamanninum
Koggu, Kolbrúnu Björgólfsdóttur. Hún
mun ræða um leirlistina, hönnun, fortíð,
framtíð og allt þar á milli. Stjórnandi er
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur.
Spyrlar eru Edda Jónsdóttir forstöðu-
maður gallerís I8 og Tinna Gunnars-
dóttir iðnhönnuður.
Jón Böðvarsson verður í Dalvíkur-
byggð og segir frá Svarfdælasögu og
tengdum sögum og þáttum. Samkoman
verður haldin í félagsheimilinu Rimum
við Húsabakkaskóla.
■ ■ SAMKOMUR
Ásatrúarfólk heldur tvö samtvinnuð
blót á Vesturlandi og verður mikið um
dýrðir. Árlegt haustblót Vestlendinga
verður haldið að Draghálsi klukkan tvö
síðdegis. Að því loknu færa blótsgestir
sig til Akraness þar sem haldið verður
helgunarblót að Minjasafninu á Görð-
um. Blótið hefst klukkan fjögur þegar
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði
helgar blótið Óðni og niðjum hans. Allir
eru velkomnir.
Stjórn Foreldrafélags Grunnskóla
Grindavíkur boðar til fjölskylduveislu um
uppeldis og menntamál í Grindavík
undir yfirskriftinni „Sól í Grindavík“. Frú
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi for-
seti, Guðbergur Bergsson rithöfundur,
Bergur Ingólfsson leikari, Dagný Reynis-
dóttir og Hildur Hafstað kennarar og
Jón Baldvin Hannesson skólastjóri og
ráðgjafi koma fram. Veislustjóri verður
Hjálmar Árnason alþingismaður. Dag-
skráin hefst kl. 10 og stendur til 15.15.
■ ■ SÝNINGAR
17.00 Elín Hansdóttir myndlistar-
maður, sem útskrifaðist frá Listaháskóla
Íslands nú í vor, sýnir nú verk sín í Gall-
erí Dvergi, Grundarstíg 21, 101 Rvk.
Sýningin, sem kallast „Big Bird“, er opin
fimmtudag til sunnudags kl. 17-19 og
stendur til 4.október“.
Sýningin Grasrót 2003 stendur yfir í
Nýlistasafninu. Að þessu sýna verk sín
þau Arndís Gísladóttir, Baldur G.
Bragason, Birgir Örn Thoroddsen,
Birta Guðjónsdóttir, Bryndís E. Hjálm-
arsdóttir, Bryndís Ragnarsdóttir, Elín
Helena Evertsdóttir, Hanna Christel
Sigurkarlsdóttir, Hrund Jóhannesdóttir,
Huginn Þór Arason, Hugleikur Dags-
son, Magnús Árnason og Rebekka
Ragnarsdóttir.
Þóra Sigurþórsdóttir sýnir útilista-
verk í Kringlunni í samvinnu við Gallerí
Fold. Verkin, sem eru unnin á járn með
logsuðu og málun, eru til sýnis úti á
torginu við Hard Rock Café og í Gallerí
Fold annarri hæð. Sýningin stendur til
30. september 2003.
Vögguvísur nefnist innsetning Bryn-
dísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wil-
sons í Listasafni Reykjavíkur - Hafnar-
húsi, sem stendur til 2. nóvember.
Yfir bjartsýnisbrúna - Samsýning
alþýðulistar og samtímalistar nefnist
sýning sem Listasafn Íslands hefur unn-
ið í samstarfi við Safnasafnið á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð. Hér leiða sam-
an hesta sína tuttugu og fimm lista-
menn sem ýmist kenna sig við alþýðu-
list eða samtímalist. Sýningin verður í
Hafnarhúsinu til 2. nóvember.
Box - ílát - öskjur nefnist sýning í
sal Handverks og hönnunar í Aðal-
stræti. Box ílát öskjur. Valin voru verk
frá 27 aðilum á sýninguna, sem stendur
til 12. október. Opið þri-sun 13-17.
Elín Hansdóttir myndlistarmaður,
sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands
nú í vor, sýnir nú verk sín í Gallerí
Dvergi, Grundarstíg 21, 101 Rvk. Sýning-
in, sem kallast „Big Bird“, er opin
fimmtudag til sunnudags kl. 17-19 og
stendur til 4. október“.
Atvinnuvegasýningin Akranes Expó
2003 stendur yfir í Íþróttamiðstöðinni
að Jaðarsbökkum á Akranesi. Alls taka
70 fyrirtæki þátt í sýningunni.
Í Sverrissal Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarðar,
stendur yfir sýning á málverkum Krist-
bergs Péturssonar. Sýningunni lýkur 6.
október.
Úr Byggingarlistarsafni, sýning á
húsateikningum og líkönum íslenskra
arkitekta verður opnuð í Hafnarhúsinu í
tilefni þess að tíu ár eru liðin frá stofun
byggingarlistardeildar við Listasafn
Reykjavíkur. Í safni deildarinnar eru varð-
veitt söfn teikninga eftir ýmsa af merk-
ustu frumherjum íslenskar byggingarlist-
ar á 20. öld. Sýningin stendur til 2. nóv-
ember.
Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Þórey
Rut Jóhannesdóttir sýna á Kjarvals-
stöðum í tengslum við listahátíðina List
án landamæra.
Ingiríður Ólafsdóttir sýnir textílverk í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Mið.-mán. 11-17 til 6.
október.
Sýning Ingu Jónsdóttur stendur yfir í
Ásmundarsal og Gryfju Listasafns ASÍ.
Sýninguna nefnir hún Ryk. Í Arinstofu
stendur yfir sýning á verkum Kristins
Péturssonar og nefnist hún Töfratákn.
María Guðnadóttir er með sýningu
á Kaffi Expresso í Spönginni Grafarvogi.
Sýningin stendur frá til 7. október.
Teikningar sjö til sextán ára barna í
Hafnarfirði og hugmyndir þeirra um
vinabæjarsamstarf Hafnarfjarðar og
Cuxhaven eru sýndar í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar. Sýningin stendur til 6. október.
Safn, samtímalistasafn á Laugavegi
37, er opið miðvikudaga til föstudaga frá
kl 14-18 en til 17 um helgar.
Jóna Þorvaldsdóttir er með sýningu
á ljósmyndum í Ljósfold í Galleríi Fold,
Rauðarárstíg 14 til 16. Listakonan nefnir
sýninguna Þjóðsögu. Sýningin stendur til
5. október.
Sýning Svanborgar Matthíasdóttur í
Galleríi Sævars Karls hefur fengið mjög
góða aðsókn og verður framlengd til 8.
október. Við hvetjum listunnendur til að
sjá sýninguna.
LAUGARDAGUR 27. september 2003 35
JÓN KARL HELGASON
Ég er staðráðinn í að sjá sýninguþeirra Einars Garibalda Ein-
arssonar og Bruno Muzzolini sem
opnar í Listasafni ASÍ í dag,“ seg-
ir Jón Karl Helgason bókmennta-
fræðingur. „Einar hefur verið að
nálgast íslenska landslagsmál-
verkið úr ýmsum óvæntum áttum
á síðustu árum – ég er ekki viss
um hvort hann ætli að endurnýja
það eða ganga af því dauðu – og af
nafni sýningarinnar að dæma, Ís-
land í níu hlutum, gerir hann
þarna enn eina atlöguna. Með hon-
um sýnir ítalskur snillingur sem
ég veit ekkert meira um en
hlakka til að kynna mér. Ég hef
líka hugsað mér að kíkja á Þjóð-
sögur, forvitnilega ljósmyndasýn-
ingu Jónu Þorvaldsdóttur í Gall-
eríi Fold, og ef svo ólíklega vill til
að ég fari ekki snemma í rúmið er
aldrei að vita nema ég rati inn á
Megasukk Megasar og Súkkats á
Grand Rokk um kvöldið.“
Val Jóns
Þetta lístmér á!
✓
✓
Einföld, mjúk og áhrifarík meðferð sem farið
hefur sigurför um Evrópu. Virkar vel á hverskonar
vandamál. Kennt á Íslandi 17. okt. - 20. okt.
Íslenskt námsefni og íslenskur kennari.
Námskeið í
Bowen Tækni
Upplýsingar og skráning:
Margeir s. 897-7469 og 421-4569
jmsig@simnet.is
www.thebowentechnique.com