Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
EIRÍKS JÓNSSONAR
Brúnu augun
www. .is
Taktu þátt
í spjallinu á
...
www.IKEA.is
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
IKEA PS PARVEL vasaljós 790,-
KRYP NYCKELPIGA motta 67x80 sm 690,-
MAMMUT grænn kollur 990,- , KRYP GRÄS sessa 345,-
MÖRKER vinnulampi bleikur 690,-
LILLABO húsgögn, borðstofa 990,-
Finndu fimm villur...
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
22
01
4
09
.2
00
3
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
3
Hef svo sem sagt það áður. Bý í101 eins og hitt fræga og ríka
fólkið og uni mér vel í selskapnum.
Nema hvað. Rauði krossinn leigir
íbúð á móti mér fyrir flóttamenn sem
eru fínt fólk. En það er ekki nóg að
mér finnist það. Útlendingaeftirlitið
er á öðru máli.
FYRST bjuggu þar hjón með tvær
dætur. Þær voru brúneygðar og buðu
góðan dag í þágufalli í stigagangin-
um. Tóku sig vel út í flíspeysunum
frá 66 gráður norður. Pabbinn sagði
mér að þau tilheyrðu ungverska þjóð-
arbrotinu í Rúmeníu. Á flótta af ótta
um líf sitt. Heyrði fjölskylduna stund-
um syngja í íbúðinni. Fann á lyktinni
að húsmóðirin bakaði sætabrauð með
kanil. Svo kom löggan og sendi þau úr
landi. Veit ekki meir.
NÆST kom albönsk fjölskylda frá
Grikklandi. Hjón með tvo stráka. Þeir
léku sér á hjólabrettum og veiddu
fisk niður við höfn. Þarna var líka
sungið og bakað á kvöldin. Hljóðin
falleg og ilmurinn eftir því. Svo eitt
kvöldið þegar pabbinn var ekki heima
kom löggan og sparkaði upp hurðina.
Tók konuna og strákana og setti upp í
næstu flugvél. Hitti húsbóndann
morguninn eftir með kökk í hálsi og
brostin augu. Þau voru brún eins og í
strákunum. Svo hvarf hann líka.
NÚNA býr þarna ung kona frá
Tjetsjeníu. Með tvö brúneygð börn.
Þau leika sér ekki úti. En kíkja alltaf
fram þegar þau heyra umgang eins
og af ótta við lögregluna.
SVO var bankað upp á hjá mér í gær.
Fyrir framan dyrnar stóðu tveir lög-
reglumenn og slengdu lögreglumerki
í leðurhulstri framan í mig svona eins
og þeir gera í CSI – Crime Scene In-
vestigation á Skjá einum. Spurðu mig
hvort ég vissi um konuna og börnin á
móti. Ég vissi að þau voru inni en
sagði ekki orð. Hafði tekið afstöðu
með mannúðinni gegn evrópskum
reglum um meðferð flóttamanna.
Sagði þeim að láta fólkið í friði.
NÚ bíð ég eftir að hurðinni verði enn
og aftur sparkað upp af laganna vörð-
um og börn dregin grátandi og skelf-
ingu lostin á dyr. Er ekkert viss um að
ég sitji þegjandi hjá. Safna kannski
liði og þá yrði hvellur í 101. Jafnvel
glóðaraugu fyrir öll brúnu augun. ■