Fréttablaðið - 02.10.2003, Qupperneq 1
FJÁRLÖG Gert er ráð fyrir 6,4 millj-
arða afgangi af fjárlögum ársins
2004 sem Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra kynnti í gær. Ekki
er búist við neinum tekjum af sölu
Landssímans á árinu. Geir sagði
að nýtt hagvaxtarskeið væri að
hefjast en spáð er 3,5% hagvexti á
næsta ári.
Geir kynnti áætlun í efnahags-
málum fyrir kjörtímabilið sem
bendir til mjög góðrar afkomu
næstu þrjú árin. Hann segir að
svigrúm gefist til að lækka skatta í
samræmi við
loforð ríkis-
stjórnarflokk-
anna frá kosn-
ingunum í vor.
Þannig sé gert
ráð fyrir því að
skattar verði
lækkaðir um 20
milljarða á ár-
unum 2005-
2007. Lækkun á
t e k j u s k a t t i
verður rædd í
tengslum við kjarasamningana í
vetur.
Þá er gert ráð fyrir þriggja
milljarða framlagi til sértækra
verkefna á árunum 2005-2007,
meðal annars til að hækka barna-
bætur. Ríkisstjórnin gerir ekki
ráð fyrir því í sínum áætlunum að
Norðurál verði stækkað. Hins
vegar sagði fjármálaráðherra í
gær að ef ákveðið yrði að stækka
álverið yrði tekið tillit til þess í
stjórn ríkisfjármálanna.
Nánar á síðu 8.
úr íslandi í dag í ísland í gær
Snorri Már Skúlason:
▲
SÍÐA 39
Kominn á
Þjóðminjasafnið
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
FIMMTUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á fimmtudögum
80%
53%
23%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
VILL AUKIN FRAMLÖG TIL ÞRÓ-
UNARHJÁLPAR
Forseti sagði við setn-
ingu Alþingis að lág
framlög til þróunar-
hjálpar gætu orðið Ís-
lendingum til álits-
hnekkis samhliða
auknum ábyrgðar-
störfum á alþjóða-
vettvangi. Sjá síðu 4.
GAGNRÝNIR LEKA TIL FJÖL-
MIÐLA Forsætisráðherra átelur fréttastofu
Stöðvar 2 fyrir frétt um stefnuræðu sína
sem lekið var til stöðvarinnar. Hann segir
þingmann hafa lekið ræðunni. Sjá síðu 2.
ÍSINN BROTINN Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir að
áþreifanlegur árangur hafi náðst í launadeilu
starfsmanna við Kárahnjúka. Samráðsnefnd
fundaði með Þórarni V. Þórarinssyni, lög-
fræðingi Impregilo, í gærkvöldi. Sjá síðu 2.
TÓLF MILLJARÐA FRAMKVÆMD
Nýtt tónlistar- og ráðstefnuhús kostar
12,4 milljarða króna. Talið skila hagnaði á
fyrsta ári. Stefnt er að opnun hússins í
árslok 2008. Sjá síðu 10.
STEFNURÆÐA FORSÆTISRÁÐ-
HERRA Davíð Oddsson forsætisráð-
herra flytur stefnuræðu stjórnar Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks á Al-
þingi í kvöld. Ræðunni verður sjónvarpað
beint í Ríkissjónvarpinu og hefst útsend-
ing klukkan 19.50.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐVÖRUN Mjög hvasst verður á Vest-
fjörðum síðdegis í dag og á Norður- og
Austurlandi í kvöld. Þá kólnar um allt land
síðdegis. Skaplegra veður verður í Reykja-
vík. Sjá síðu 6.
uppáhaldsborgin ● barnavænt í kaupmannahöfn
Sjóræningjar og
gullnar strendur
ferðir o.fl.
Ferðasagan:
▲
SÍÐUR 24 & 25
tískan í mílanó ● hattar alltaf í tísku
Gjöf frá eigin-
manninum
tíska o.fl.
Uppáhaldsskartgripurinn:
▲
SÍÐUR 22 & 23
2. október 2003 – 239. tölublað – 3. árgangur
Dregið verður úr framkvæmdum samkvæmt fjárlögum ársins 2004:
Skila 6,4 milljarða afgangi
HÆSTIRÉTTUR Í fyrramálið tekur
Hæstiréttur fyrir mál öryrkja gegn
íslenska ríkinu. Þar er þess krafist
að staðið verði við fyrri dóm
Hæstaréttar þar sem úrskurðað
var að ríkinu hafi verið óheimilt að
skerða tekjutryggingu öryrkja
vegna tekna maka þeirra. Málið olli
á sínum tíma mikilli pólitískri ólgu
enda féllst rétturinn á að ríkið
hefði brotið á rétti öryrkja.
Ný lög voru sett á Alþingi þar
sem kveðið var á um að kröfur
eldri en fjögurra ára væru fyrnd-
ar. Þessu vilja öryrkjar ekki una
og telja að lagasetning geti ekki
kveðið á um afturvirkni.
Það vekur sérstaka athygli að
dómurum í málinu hefur verið
fjölgað í sjö í stað fimm sem
dæmdu í máli öryrkja árið 2000.
Öryrkjar undrast þetta vegna
þess að fyrst og fremst sé um það
að ræða að þeirra mati að réttur-
inn svari því hvort hann var að
fallast á dómkröfu þeirra.
„Þessi fjölgun mun óhjá-
kvæmilega auka mjög á þá um-
ræðu sem nú þegar er í fullum
gangi um skipun og samsetningu
Hæstaréttar. Í lýðræðislegum
réttarríkjum er ekki lengur um
það deilt að bakgrunnur og lífsaf-
staða hefur mikil áhrif á túlkun
laga og niðurstöður dóma. Hér á
landi hefur aftur á móti verið í
gangi þykjustuleikur þar sem
reynt hefur verið að loka alveg
augunum fyrir því hvaða pólitísku
öfl hafa ráðið mestu um val
hæstaréttardómara,“ segir Garð-
ar Sverrisson, formaður Öryrkja-
bandalags Íslands.
„Fjölgun dómaranna úr fimm í
sjö er ekki aðeins athyglisverð í
ljósi árása forsætisráðherra á
réttinn og landsfundarályktunar
Sjálfstæðisflokksins, heldur
einnig vegna þess að hér er fyrst
og fremst um það að ræða að rétt-
urinn svari því hvort hann var að
fallast á dómkröfu okkar eða
senda valdsherrunum vinsamleg
tilmæli um að draga aðeins úr
stjórnarskrárbroti sínu. Til að
svara þessari meginspurningu
ættu þeir sem kváðu upp dóminn
ekki að þurfa neina sérstaka að-
stoð,“ segir Garðar. „Málið er þó
sem betur fer þannig vaxið og vel
undirbúið að það væri bjarnar-
greiði ef Hæstiréttur gengi gegn
fyrri dómi sínum, því þá yrði okk-
ur ekki stætt á öðru en að fá
Mannréttindadómstólnum í
Strassborg málið til endanlegs úr-
skurðar.“
rt@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Áhlaup á Vesturbakkanum:
Leiðtogi
Jihad
handtekinn
JERÚSALEM, AP Ísraelskir hermenn
handtóku einn af leiðtogum palest-
ínsku samtakanna Íslamskt Jihad í
flóttamannabúðum á Vesturbakkan-
um. Fjórtán aðrir Palestínumenn
voru færðir til yfirheyrslu.
Herinn notaði tvær herþyrlur og á
þriðja tug skriðdreka og brynvarinna
bíla þegar áhlaup var gert á búðirnar
snemma morguns. Fjögur fjölbýlis-
hús voru rýmd á meðan Bassam Saadi
var leitað en að sögn vitna faldi hann
sig undir kyrrstæðum bíl.
Saadi hefur verið í forsvari fyrir
Jihad á Vesturbakkanum um nokk-
urt skeið. Hann hafði verið eftir-
lýstur af ísraelskum yfirvöldum í
tvö ár. Tveir synir hans féllu í skot-
bardögum við ísraelskar hersveitir
á síðasta ári. ■
GENGIÐ TIL ÞINGS
Alþingi var sett í gær. Þar kynnti Geir H. Haarde fjármálaráðherra fjárlögin og ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ræðu þar sem
hann lagði áherslu á mikilvægi þess að Íslendingar ykju framlög sín til þróunarhjálpar.
Öryrkjar tilbúnir að
fara til Strassborgar
Fjölskipaður Hæstiréttur tekur fyrir seinni lotu öryrkjamálsins í fyrramálið. Formaður Öryrkjabanda-
lagsins undrast fjölgun dómara úr fimm í sjö. Hótar að fara fyrir Mannréttindadómstólinn tapi öryrkjar.
GEIR H. HAARDE
Fjármálaráðherra
kynnti í gær áætlun
í efnahagsmálum
fyrir kjörtímabilið.