Fréttablaðið - 02.10.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 02.10.2003, Síða 6
6 2. október 2003 FIMMTUDAGUR ■ Afríka GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 75,99 -0,11% Sterlingspund 126,15 -0,78% Dönsk króna 11,96 0,03% Evra 88,85 0,05% Gengisvísitala krónu 125,22 -0,36% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 276 Velta 12.498 milljónir ICEX-15 1.812,7 -0,23% Mestu viðskiptin Landsbanki Íslands hf. 1.674.347.934 Íslandsbanki hf. 691.985.809 Sjóvá-Almennar hf. 356.984.658 Mesta hækkun Landsbanki Íslands hf. 0,96% Pharmaco hf. 0,35% Kaldbakur hf. 0,24% Mesta lækkun Líf hf. -10,20% Össur hf -1,87% Og fjarskipti hf. -1,44% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 9.406,1 1,4% Nasdaq* 1.812,7 1,4% FTSE 4.169,2 1,9% DAX 3.314,8 1,8% NK50 1.320,8 0,1% S&P* 1.008,0 1,2% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað kostar einn vetnisvagn eins ogStrætó bs. er að fara að taka í notk- un? 2Hvaða flokkar ætla að biðja um aðAlþingi láti rannsaka undirbúning og framkvæmd alþingiskosninganna í vor? 3Hvað heitir fyrrverandi þjálfari Fylk-is, sem sagt hefur verið upp störfum? Svörin eru á bls. 38 Litlar efndir Impregilo Flestir aðilar sem einhver samskipti eiga við verktakafyrirtækið Impregilo eru sammála um að forsvarsmenn þess komi af fjöllum þegar kemur að stífum lögum og reglugerðum eins og gilda hér á landi. KÁRAHNJÚKAR „Við vonum að þess- ar aðgerðir okkar virki þannig að bragarbót verði gerð á stöðu mála uppi við Kárahnjúka,“ sagði Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðis- firði, en við eftirlit lögreglu þar um helgina kom í ljós að talsvert vantaði upp á að lögum og reglu- gerðum væri fylgt eftir. „Við höfðum heyrt orðróm þess efnis að ekki væri allt með felldu varðandi öku- og vinnutæki á svæðinu. Það var ástæða þess að við fórum á staðinn og í ljós kom að margir starfsmennirnir voru ekki með tilskilin leyfi á þær vinnuvélar sem þeir störfuðu á. Alvarlegast var þó vörubíll hlað- inn sprengiefni, sem stóð á víða- vangi og allir höfðu aðgang að. Þessir aðilar sem standa að fram- kvæmdunum virðast hafa gert sér afar litla grein fyrir því hversu lög og reglugerðir eru hörð hér á landi.“ Lárus sagði að undir venjuleg- um kringumstæðum þyrfti að hafa lögregluþjóna á vinnusvæði Impregilo í fullu starfi en slíkt væri ekki mögulegt eins og staðan væri. „Ég hef óskað eftir fleiri lögregluþjónum og bifreiðum til að hafa eftirlit með Kárahnjúka- svæðinu en engin svör hafa enn borist frá ráðuneytinu.“ Ómar Þ. Björgólfsson, um- dæmisstjóri Vinnueftirlits ríkis- ins á Austurlandi, sagði að ráðgert væri að halda námskeið í krana- stjórnun fyrir starfsmenn Impregilo. „Flestir aðrir sem starfa við vélar og tæki á svæðinu eru með réttindi erlendis frá og þau gilda hér á landi.“ Fleiri eftirlitsaðilar á Austur- landi bera Impregilo slæma sög- una. Helga Hreinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands, sagði að þar á bæ væri fólk mjög farið að lengja eft- ir aðgerðum á Kárahnjúkasvæð- inu. „Impregilo hefur fengið fresti á fresti ofan til að færa ýmislegt til betri vegar en efnin hafa verið lít- il. Fyrir milligöngu Landsvirkjun- ar var skotið á fundi með æðstu yf- irmönnum Impregilo á vinnusvæð- inu og við sömdum um ákveðið verklag varðandi framhaldið. Það ferli er nýfarið í gang og nú reynir á hvort það gengur.“ Helga sagði að ekki væri um stórvægileg vandamál að ræða heldur væri fyrst og fremst um almenn atriði að ræða. „Það er margt smávægilegt sem færa má til betri vegar.“ albert@frettabladid.is FLUTNINGABÍLL RAKST Á RÚTU 21 maður lést og að minnsta kosti 42 slösuðust þegar rúta lenti í árekst- ri við flutningabíl á hraðbraut í Simbabve. Að sögn lögreglu reyn- di ökumaður fólksbifreiðar að taka fram úr rútunni með þeim afleiðingum að flutningabílstjór- inn varð að sveigja til hliðar. BORGARASTRÍÐIÐ Í BÚRÚNDÍ Stjórnarhermenn og uppreisnar- menn í Búrúndí drápu 466 óbreytta borgara og nauðguðu 36 konum og stúlkum á fyrstu sex mánuðum ársins, að því er fram kemur í skýrslu búrúndískra mannréttindasamtaka. Talið er að yfir 200.000 manns hafi fallið síð- an borgarastríð braust út í land- inu fyrir tíu árum. BRUNI Eldur kviknaði í íbúðarhúsi við Íshússtíg í Keflavík í fyrrinótt. Húsið skemmdist nokkuð af völd- um eld og reyks. Tveir íbúar voru sofandi í húsinu þegar eldurinn kom upp. Þá sakaði hvorki af völd- um elds né reyks. Rýma þurfti næsta hús vegna reyks á meðan slökkvistarf stóð yfir. „Ég var sofandi uppi á lofti þeg- ar Andrew vinur minn sem svaf á neðri hæðinni vakti mig. Ég fór út um gluggann og niður á þak sem er undir glugganum og stökk niður,“ segir Lester Garden um flóttann úr brennandi húsinu. Lester Gard- en og Andrew Lamont eru frá Skotlandi en starfa við fiskverkun í Keflavík og hafa búið hér á landi í tólf og þrettán ár. Lester þakkar Söru Feyen, ná- grannastúlku þeirra félaga, fyrir að ekki fór verr. Hún vaknaði um nóttina við að kötturinn hennar var farinn og sá eldinn þegar hún fór út til að leita hans. Hún náði að vekja Andrew, sem gerði Lester viðvart. Lester segir eldinn hafa komið upp í herbergi Aarons, son- ar Andrews. Hann hafi hins vegar verið heima hjá kærustunni sinni þegar eldurinn kom upp. Hann segir herbergið hafa verið illa brunnið og nánast allar eigur Aar- ons hafi orðið eldinum að bráð. Lester segir eld og reyk hafa verið nánast um allt hús en mestar skemmdir eru næst upptökunum. Honum finnst ólíklegt annað en að húsið verði rifið, það hafi verið gamalt fyrir og sé óíbúðarhæft eft- ir brunann. ■ Eldsvoði í Keflavík: Komst úr brennandi húsi ÍSHÚSSTÍGUR Í KEFLAVÍK Lester Garden þurfti að fara út um glugga til að forða sér frá eldi og reyk. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Hafnfirðingar: Selja hlut sinn í OR SVEITARSTJÓRNIR Hafnarfjarðarbær hefur selt tæplega 1 prósents hlut sinni í Orkuveitu Reykjavíkur til fyrirtækisins sjálfs fyrir rúmar 346 milljónir króna. Sveitarstjórnir sem aðild eiga að sameignarfélaginu Orkuveitu Reykjavíkur þurfa að samþykkja viðskiptin og hefur borgarráð Reykjavíkur þegar gert það. Samn- ingur sem Orkuveitan og Hafnar- fjarðarbær gerðu í september 2001 um lögn og rekstur hitaveitu í Hafnarfirði heldur áfram gildi. Miðað við kaupverð er Orkuveitan öll nú metin á um 36,7 milljarða. ■ KÁRAHNJÚKAR Fjölmargir opinberir aðilar gera margvíslegar athugasemdir við starfsemi Impregilo við Kárahnjúka. Flokksþing Verkamannaflokksins: Íraksstríðið ekki rætt ENGLAND, AP Andstæðingar Íraks- stríðsins létu í sér heyra á flokks- þingi breska Verkamannflokks- ins þrátt fyrir að Tony Blair, for- s æ t i s r á ð h e r r a , hefði neitað þeim um formlegar um- ræður um málið. „Það var logið að okkur varðandi gereyðingavopnin“ sagði Alice Ma- hon, þingmaður flokksins. Nokkrir meðlimir Verkamanna- flokksins lögðu fram neyðartillögu þess efnis að hernaðaraðgerðir gegn Írökum hefðu verið órétt- mætar og kalla skyldi breskar her- sveitir heim frá Írak. Tillagan var ekki tekin til umfjöllunar á flokks- þinginu en andstæðingar Íraks- stríðsins fengu tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi í almennum umræðum um ut- anríkismál. ■ TONY BLAIR Vildi ekki ræða Íraksstríðið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.