Fréttablaðið - 02.10.2003, Qupperneq 12
12 2. október 2003 FIMMTUDAGUR
AFMÆLI FAGNAÐ
Kínversk herstöð í Hong Kong opnaði dyr
sínar fyrir almenningi í gær í tilefni af því
að 54 ár voru liðin frá stofnun kínverska
alþýðulýðveldisins. Þessi unga stúlka fékk
aðstoð hermanns við að munda hríð-
skotariffil.
SVEITARSTJÓRNIR Borgarráð hafnaði
í gær tillögu Ólafs F. Magnússon-
ar um að lýsa „áhyggjum sínum af
margendurteknum brotum á
kjarasamningum og eðlilegum
leikreglum í samskiptum verk-
taka við verkafólk vegna virkj-
anaframkvæmda við Kára-
hnjúka“.
Í stað tillögu Ólafs sameinuð-
ust fulltrúar R-lista og Sjálfstæð-
isflokks um tillögu Alfreðs Þor-
steinssonar um að fela borgar-
stjóra að óska eftir upplýsingum
frá forstjóra Landsvirkjunar um
stöðu framkvæmda við Kára-
hnjúka og starfsmannamálin: „Í
því sambandi leggur borgarráð
áherslu á að rétt sé staðið að mál-
um og gildandi reglur á vinnu-
markaði séu virtar“.
Í tillögu Ólafs hafði hins vegar
sagt að vinnubrögðin við Kára-
hnjúka væru óvönduð. Óverjandi
væri að þau einkenndust af virð-
ingarleysi fyrir verkafólki og við-
teknum leikreglum: „Borgarráð
krefst þess að úr þessu verði bætt
hið fyrsta, enda til vansa fyrir
Reykjavíkurborg að staðið sé að
framkvæmdum sem hún á stóran
hlut í með áðurgreindum hætti.“
Ólafur, sem er áheyrnarfulltrúi
fyrir F-lista í borgarráði, sagði
greinilegt af tillögu borgarfull-
trúa R-lista og D-lista að þeir
veigruðu sér við að gagnrýna
vinnubrögðin við Kárahnjúka. ■
BRETLAND Tvær breskar konur
sem óskuðu eftir því að fá að nota
frysta fósturvísa gegn vilja fyrr-
verandi maka sinna töpuðu mál-
inu fyrir hæstarétti. Konurnar
íhuga að áfrýja málinu til áfrýj-
unardómstóls eða vísa því til
Evrópudómstóla. Dómarar úr-
skurðuðu að eyða bæri fósturvís-
unum en það verður þó ekki gert
fyrr en áfrýjunarferlinu er lokið.
Natallie Evans og Lorraine
Hadley ákváðu að fara með mál
sín fyrir rétt þrátt fyrir að í lög-
um sé kveðið á um að báðir aðilar
verði að samþykkja geymslu og
notkun á fósturvísum sínum.
Dómarinn Justice Wall sagðist
hafa samúð með málstað kvenn-
anna en ítrekaði að hann væri
bundinn af lagabókstafnum. Wall
benti á að það væri hlutverk
þingsins að taka ákvörðun um
það hvort rétt væri að gera
breytingar á lögunum um fóstur-
vísa.
Konurnar hafa lagt áherslu á
að í fósturvísunum felist þeirra
eina von um að eignast barn og
með því að banna þeim að nota þá
sé verið að brjóta á rétti þeirra.
Þær benda enn fremur á að hefðu
þær orðið barnshafandi með eðli-
legum hætti hefðu makar þeirra
ekki getað bannað þeim að eign-
ast börnin.
Evans lét frysta fósturvísa
áður en hún gekkst undir krabba-
meinsmeðferð fyrir nokkrum
árum. Skömmu síðar lauk sam-
bandi hennar við kærastann
Howard Johnston. Evans varð
ófrjó í kjölfar meðferðarinnar og
vildi fá að nota frystu fósturvís-
ana. Johnston lagðist alfarið
gegn því og krafðist þess að þeim
yrði eytt. Hadley hefur einnig átt
við frjósemisvandamál að stríða
og lenti hún í sams konar aðstæð-
um þegar hún skildi við eigin-
mann sinn.
Fyrrverandi makar Evans og
Hadley fögnuðu úrskurði hæsta-
réttar. Að sögn lögfræðinga
þeirra kæra þeir sig ekki um að
eignast börn með konum sem
þeir slitu samvistum við fyrir
mörgum árum. „Johnston vonar
að Evans muni finna aðra leið til
að uppfylla óskir sínar um að
eignast fjölskyldu“ sagði lögmað-
urinn James Grigg. ■
Samkynhneigður leikari:
Aftur í
sjónvarp
SEOUL, AP Þremur árum eftir að
suður-kóreska leikaranum Hong
Suk-chon var bannað að koma
fram í sjónvarpi vegna samkyn-
hneigðar sinnar snýr hann aftur í
sjónvarp, nú í hlutverki samkyn-
hneigðs hönnuðar.
Endurkoma leikarans í sjón-
varp þykir til marks um að sam-
kynhneigðir mæti ekki jafn mikl-
um fordómum og mismunum og
áður. „Ég veit ekki með eldra fólk
en það virðist vera minni and-
staða meðal fólks gagnvart sam-
kynhneigðum en áður,“ sagði Jung
Yol, forstöðumaður samtaka sam-
kynhneigðra í Seúl. ■
ÞJÓÐHÁTÍÐ
Tugir þúsunda söfnuðust saman á Torgi
hins himneska friðar til að fagna þjóðhá-
tíðardegi Kína.
Ný lög um giftingar:
Úreltar regl-
ur afnumdar
PEKING, AP Yfirvöld í Kína hafa
gert breytingar á lögum um gift-
ingar sem gera Kínverjum kleift
að ganga í hjónaband án þess að fá
leyfi vinnuveitenda sinna.
Lögin gengu í gildi á þjóðhátíð-
ardegi Kínverja og hafði fjölda
hjónavígsla verið frestað fram að
þeirri stundu. Um allt land voru
haldin fjöldabrúðkaup og langar
raðir mynduðust við opinberar
skrifstofur sem gefa út hjúskap-
arvottorð.
Með nýju lögunum var jafn-
framt afnumin sú regla að pör
yrðu að gangast undir læknis-
skoðun áður en þau fengju að eig-
ast. Hér eftir þurfa hjón heldur
ekki leyfi vinnuveitenda til að
skilja. ■
NEYTENDUR Samkvæmt viðhorfs-
rannsókn sem Gallup fram-
kvæmdi fyrir Neytendasamtökin
vegna hækkunar Orkuveitu
Reykjavíkur á orkuverði í ágúst
kemur í ljós að 85% aðspurðra
finnst hækkunin ósanngjörn.
Hækkunin var mjög umdeild en
forsendur hennar voru fyrst og
fremst betra árferði.
„Þessar niðurstöður koma mér
ekkert á óvart,“ sagði Alfreð Þor-
steinsson, formaður stjórnar
Orkuveitunnar. „Það segir sig
sjálft að enginn er ánægður með
hækkanir af neinu tagi. Ég held
hins vegar að fólk hafi ekki áttað
sig á því hversu lítil þessi hækkun
er. Hún er ekki nema tvö hundruð
krónur á mánuði fyrir fjögurra
manna fjölskyldu. Það er jafn mik-
ið og strætófargjald aðra leiðina.“
Jóhannes Gunnarsson segir að
rökin fyrir hækkun á gjaldskrá
Orkuveitunnar séu haldlaus.
„Okkar krafa er að þessi hækkun
verði dregin til baka hið fyrsta.
Það er fyrst og fremst þessi rök-
leysa sem gerir neytendum gramt
í geði eins og þessi könnun gefur
til kynna.“
Alfreð sagði ekki á döfinni að
endurskoða þessa ákvörðun
stjórnar Orkuveitunnar. ■
PÁFI
Ávarpaði 12.000 manns í gær.
Jóhannes Páll páfi II:
Virkaði
árvakur
VATÍKANIÐ, AP Jóhannes Páll páfi II
mætti í vikulegan áheyrnartíma
sinn í gær, degi eftir að einn nán-
asti ráðgjafi hans lýsti áhyggjum
af því að heilsufar páfa væri orð-
ið mjög slæmt. Það vakti spurn-
ingar um hvort heilsutap páfa
væri meira en sjá mætti af hrör-
leika hans.
Í áheyrnartímanum í gær sagði
páfi að hann myndi heimsækja
helgan stað í Pompeii í næstu
viku, „ef guð leyfir“. Páfinn virk-
aði árvakur og las ræður sínar á
fjölda tungumála. ■
Hryðjuverkamaður:
Biður
um miskunn
BALÍ, AP Ali Imron, sem dæmdur
var í lífstíðarfangelsi fyrir þátt-
töku sína í sprengjuárásunum á
Balí á síðasta ári, hefur sent
Megawati Sukarnoputri, forseta
Indónesíu, formlega beiðni um
sakaruppgjöf.
Imron játaði fyrir rétti að hafa
tekið þátt í sprengjuárásunum
sem kostuðu 202 menn lífið.
Hann lýsti þó iðrun og bar vitni
gegn öðrum sakborningum. Að
sögn Suyanto, verjanda Imrons,
býst hann ekki við því að verða
náðaður en vonast til þess að for-
setinn breyti dóminum í tuttugu
ára fangelsi. Suyanto segist hafa
trú á því að móðureðli
Sukarnoputri muni verða Imron
til framdráttar. ■
AFHENTI TRÚNAÐARBRÉF Ólafur
Egilsson sendiherra afhenti í gær
Tuanku Syed Sirajuddin Putra
Jamalullail, konungi Malasíu,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Íslands í Malasíu.
Ólafur F. Magnússon segir vinnubrögð við
Kárahnjúka borginni til vansa:
Borgarráð krafðist ekki
úrbóta við Kárahnjúka
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
Ólafur F. Magnús-
son, áheyrnarfull-
trú Frjálslyndra og
óháðra í borgar-
ráði, sagði í borg-
arráði í gær að
vinnubrögð við
Kárahnjúkavirkjun
væru óvönduð og
til vansa fyrir
Reykjavíkurborg,
sem ætti 45% í
Landsvirkjun.
■ Utanríkismál
Neytendur telja hækkun gjaldskrár OR ósanngjarna:
Haldlaus rök
KÖNNUN
NEYTENDASAMTAKANNA
Hversu sanngjörn eða ósanngjörn finnst
þér nýleg hækkun á verðskrá Orkuveitu
Reykjavíkur?
Ósanngjörn 85%
Sanngjörn 9%
Hvorki né 6%
Fjöldi svarenda var 800 manns.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Segir hækkanir OR ekki vera jafn miklar og margir halda.
JÓHANNES GUNNARSSON
Segir engin haldbær rök hafa verið fyrir
síðustu hækkun OR.
ÓSIGUR
Natallie Evans og Lorraine Hadley voru þungar á brún þegar þær stigu út úr dómshúsinu
í Lundúnum.
Deilt um framtíð
frystra fósturvísa
Tvær breskar konur hafa barist ákaft fyrir því að fá að nota frysta
fósturvísa gegn vilja fyrrverandi maka sinna. Konurnar töpuðu
málinu fyrir hæstarétti.
Ákærður í héraðsdómi:
Svipti móður
umsjá
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur
Frakki hefur verið ákærður af
ríkissaksóknara fyrir að hafa
svipt barnsmóður sína, sem
einnig er frönsk, valdi og umsjá
dóttur þeirra þegar hann fór með
stúlkuna til Frakklands og hélt
henni hjá sér, í mars árið 2002.
Árið áður hafði Héraðsdómur
Reykjavíkur úrskurðað móður-
inni forsjá stúlkunnar til bráða-
birgða og bannað foreldrum að
fara með hana úr landi.
Frakkinn mætti ekki í fyrirtöku
málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær og var henni því frestað.
Maðurinn hafði gert þá athuga-
semd að fyrirkall málsins væri
ekki á frönsku. Það verður birt
honum aftur og þá á frönsku. ■