Fréttablaðið - 02.10.2003, Page 23

Fréttablaðið - 02.10.2003, Page 23
■ Húsráð Kristín Matthíasdóttir er einn afeigendum Hattabúðar Reykja- víkur á Laugaveginum. Kristín segir að hattar séu alltaf í tísku: „Þetta fer dálítið eftir hugs- unarhætti hvers og eins. Það er mikið keypt af höttum fyrir brúð- kaup og í sumum veislum er skil- yrði að vera með hatta. Fólk sem var að fara í brúðkaup úti í Dan- mörku og Englandi í sumar keypti sér hatta hjá mér áður en það fór út. Síðan var töluvert keypt fyrir brúðkaup sem var haldið úti á sjó í sumar. Það var mikil stemning fyr- ir því.“ Kristín segir að engin ein hatta- tegund sé í tísku umfram aðra: „Það er eins með hatta og fatnað fyrir fólk sem vill vera venjulega klætt. Þeir þurfa að falla að smekk hvers manns. Þeir eru mismunandi eftir aldri fólks, vaxtarlagi og öðru.“ Aðspurð segir Kristín að ein- faldir hattar falli best að hennar eigin smekk: „Þeir eru fallegri og falla líka betur að umhverfinu. Maður vill heldur ekki vera ofpunt- aður með hatt nema í sérstökum tilfellum þegar maður vill verka virkilega fínn.“ Að sögn Kristínar kaupir fólk á öllum aldri hatta: „Hingað kemur mikið af ungu fólki sem stúderar hatta og langar í þá en getur kannski ekki keypt þá. Síðan kaup- ir fólk mikið af höttum og húfum fyrir veturinn. Fólk er mikið í úti- veru og það þarf að hafa hlýtt um höfuðið.“ ■ 23FIMMTUDAGUR 2. október 2003 Hattabúð Reykjavíkur: Flytur í nýtt húsnæði Á næstunni munu þau tímamóteiga sér stað í sögu Hattabúð- ar Reykjavíkur að hún flytur í nýtt húsnæði. Ekki verður leitað langt yfir skammt því nýja hús- næðið er að Laugavegi 8, en hing- að til hefur búðin verið starfrækt að Laugavegi 2. Hattabúðin var stofnuð fyrir 64 árum og er því með eldri búð- um Reykjavíkur. Á þessum tíma hefur fjölmargt fólk af öllum stærðum og gerðum vanið komur sínar í búðina. Hattabúðin mun vera eina hattabúð landsins sem selur allar tegundir af höttum bæði fyrir karla og konur. ■ Kauphlaup í Smáralind hefst ídag í þriðja sinn á árinu. „Á Kauphlaupsdögum er 20-25% afsláttur af völdum nýjum vör- um í öllum verslunum,“ segir Erla Friðriksdóttir hjá Smára- lind. „Síðan bregða sex verslanir á þann leik að í þeim er allt að 50% afslætti í 15 mínútur á dag.“ Nöfn allra sem versla í Smáralind á Kauphlaupsdögum fara í lukkupott og verða nöfn þriggja dregin úr honum. Í verð- laun eru úttekt í Smáralind og flugfar til Kaupmannahafnar og London með Iceland Express. Að sögn Erlu hafa Kaup- hlaupsdagar mælst vel fyrir til þessa. „Við höfum verið með þessa dagar þrisvar á ári, í mars, júní og í október.“ ■ Í SMÁRALIND Þar standa Kauphlaupsdagar yfir fram á sunnudag. Kauphlaup í Smáralind: Afsláttur á nýjum vörum KRISTÍN MATTHÍASDÓTTIR Er gefin fyrir einfalda hatta, helst bláa eða svarta. Hattar eru alltaf í tísku: Fólk þarf að hafa hlýtt um höfuðið FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Þegar þú kaupir þér nýjablússu eða jakka skaltu prófa að setja örlítið glært naglalakk framan og aftan við hvern hnapp. Hnapparnir detta þá síður af. Edik- og saltblanda virkar velþegar fjarlægja á saltbletti af skóm og stígvélum. Rennilásar festast síður ef þúnuddar þá með sápustykki. Ef þú vilt að sokkabuxurnar þín-ar endist lengur skaltu frysta þær áður en þú ferð í þær. Þú bleytir bara sokkabuxurnar, setur í plastpoka og skellir í frystinn. Mundu bara að þíða þær og þurrka áður en þú ferð í þær. KAUPHLAUP Demie tunick 1690,- 690,- Fiction langermabolur 1490,- 690,- Love langermabolur 1490,- 690,- Dante velour bolur 1690,- 690,- Sprite langermabolur 1990,- 990,- Caran tunick 1990,- 990,- Bristol bolir 2490,- 990,- Roman skyrtur 2690,- 1490,- Tolga peysa 2490,- 1490,- Puller úlpa 4490,- 1990,- Tilboð gilda í báðum verslunum Smáralind Kringlunni 2 FYRIR 1 ALLAR PEYSUR Buxur 6990 nú 2990 Úlpur 6990 nú 3990 20% af öllum bolum HAUSTSPRENGJA 2.-5. OKT FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.