Fréttablaðið - 18.10.2003, Side 23
LAUGARDAGUR 18. október 2003 23
opi›: laugardag 10-16 og sunnudag 13-16
STÆRRI OG GLÆSILEGRI VERSLUN
VI‹ BJÓ‹UM N†JAR VÖRUR OG ENN MEIRA
ÚRVAL Í STÆRRI OG GLÆSILEGRI HÚSAKYNNUM.
N†TT Á BO‹STÓLUM HJÁ OKKUR ERU FRÁBÆRAR
MOTTUR, LJÓS, BA‹- OG ELDHÚSVÖRUR.
B
O
R
‹
S
T
O
F
A
B
A
‹
E
L
D
H
Ú
S
L
J
Ó
S
B
Ö
R
N
B
O
R
‹
S
T
O
F
A
S
T
O
F
A
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
1
0
4
8
2
•
s
ia
.i
s
hverju einasta atriði. Seinni
helmingurinn er líkari fyrri
myndunum mínum, samtölin
verða beittari en framvindan
ruglingslegri.“
Tarantino segist hæstánægður
og stoltur af árangrinum enda
haldinn fullkomnunaráráttu og
segist ekki skila neinu af sér
nema hann sé fullsáttur. Hann er
líka fyrst og fremst að gera
myndirnar fyrir sjálfan sig og lít-
ur á það sem bónus ef áhorfendur
heillast með. Fyrir honum er
þetta allt fyrst og fremst saklaus
skemmtun.
„Ofbeldismyndir breyta börn-
um ekki í ofbeldisseggi. Þær
gætu aftur á móti gert þau að of-
beldisfullum kvikmyndagerðar-
mönnum en það er allt önnur
saga.“
thorarinn@frettabladid.is
QUENTIN TARANTINO
Hefur látið blóðþyrsta aðdáendur sína
bíða í sex ár eftir nýrri bíómynd en
geysist nú fram á sjónarsviðið með
Kill Bill Vol. 1. Myndin átti að vera
fljótgerð og stutt en þegar upp var
staðið sat leikstjórinn uppi með þriggja
og hálfrar klukkustundar ofbeldisveislu
sem ákveðið var að skipta í tvennt.
LUCY LIU
Ling úr Ally McBeal-þáttunum er að verða
ein helsta hasargella kvikmyndanna. Hún
skiptir út þröngum latexgallanum sem hún
spókaði sig í í Charlie’s Angels fyrir jap-
anska múnderingu í Kill Bill. Þar leikur hún
hina skæðu O-Ren Ishii, sem er ofarlega á
dauðalista Brúðarinnar.
Huldar Breiðfjörð fylgdist með tökum á Kill Bill í Kína:
Rosknir karlar í karate
Þegar ég kom að Kínamúrnumog fór inn í Peking hringdi
Heba Þórisdóttir, frænka Þóris
Snæs hjá ZikZak, í mig og bauð
mér að koma og sjá settið en hún
sá um förðun í myndinni og hafði
nóg að gera við að maka öllu blóð-
inu á leikarana,“ segir Huldar
Breiðfjörð rithöfundur, sem var á
ferð um Kína á sama tíma og
Quentin Tarantino var þar í landi
við tökur á Kill Bill.
„Það var allt að gerast þegar ég
kom á staðinn en Tarantino var að
taka upp í ótrúlega flottu, sögulegu
kung fu-setti. Þetta er heilt þorp
inni í Peking þar sem mér skilst að
um helmingur kung fu-kvik-
myndasögunnar hafi verið tekinn
upp,“ segir Huldar og bætir við að
hann viti ekki betur en atriði í
Crouching Tiger, Hidden Dragon
hafi verið filmuð í þorpinu.
„Tarantino sjálfur var í bana-
stuði þegar ég kom og var að láta
svartan risa berjast við David
Carradine. Hann var þarna með
alla helstu kóreógrafera kung fu-
sögunnar í kringum sig, menn sem
útfærðu bardagana í Matrix-
myndunum, Crouching Tiger,
Hidden Dragon og fleirum. Tar-
antino var með dýnu við hliðina á
myndavélinni, sat og horfði á þá
slást og valdi svo einhver atriði. Ég
sat nú bara feiminn úti í horni og
horfði á en það var gaman að fylgj-
ast með honum. Hann var alveg
hyper eins og krakki í dótabúð með
alla þessa kung fu-töffara, sem
báru ótakmarkaða virðingu fyrir
honum, í kringum sig. Þarna voru
til dæmis sjötugir karlar sem
höfðu unnið með Bruce Lee. Mér
skilst að hann hafi viljað taka upp í
þessu setti til að ná í þessa stemn-
ingu og geta raðað þessum köllum
í kringum sig. Mér fannst flottast
að sjá Carradine, svona roskinn
mann í öllu þessu karate. Það var
svolítið sérstakt við þessa kappa
að þeir litu allir út eins og tennis-
leikarar; í hvítum fötum, með sól-
skyggni og gleraugu.“ ■
HULDAR BREIÐFJÖRÐ
Fékk tækifæri til þess að fylgjast með Tar-
antino að störfum í Peking og hafði gam-
an af, enda leikstjórinn í banastuði.