Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 18. október 2003 27 Í Hafnarfirði hafa risið glæsilegar þjónustuíbúðir fyrir 60 ára og eldri. Um er að ræða tvö fjölbýlishús með 64 íbúðum sem eru sérhannaðar með þarfir eldri borgara í huga. Húsin standa við Hrafnistu og njóta íbúarnir öryggis frá heimilinu, auk þess sem hægt er að fá keypta þaðan ýmis konar þjónustu. Íbúðirnar eru leiguíbúðir með 30% afnotarétti og er það nýr valkostur í húsnæðismálum eldri borgara. Leigendur geta fengið húsaleigubætur samkvæmt gildandi reglum. Enn er nokkrum íbúðum óráðstafað. Hægt er að fá að skoða íbúðirnar og fá frekari upplýsingar með því að hafa samband við Sjómannadagsráð í síma 585-9301. Sjómannadagsráð Þjónustuíbúðir fyrir 60 ára og eldri glæsilegar leiguíbúðir Íbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri og íbúarnir njóta öryggis og þjónustu frá Hrafnistu í Hafnarfirði Átu trúboða – biðjast afsökunar Íbúar í þorpinu Suva á Fídjíeyjumátu trúboðann Thomas Baker upp til agna fyrir 136 árum en nú iðrast afkomendur þeirra verksins og hafa beðið afkomendur trúboðans afsökunar á athæfinu, þótt seint sé. Frá þessu er greint í blaðinu Pina News á Fídjíeyjum. Hinn hörmulegi atburður átti sér stað 21. júlí árið 1867. Thomas Baker, trúboði frá Englandi, var í trúboðsferð í þorpinu Suva. Þar varð honum á í messunni þegar hann teygði út höndina og fjarlægði kamb úr hári þorpshöfðingjans og undirritaði með snertingunni sinn eigin dauðadóm. Enginn hafði leyfi til að snerta höfuð þorpsleiðtogans, og þorpsbúar fullnægðu dauða- dóminum samstundis. Síðan suðu þeir trúboðann og settust að snæðingi. Sagt er að einn þeirra sem þátt tóku í borðhaldinu hafi sagt: „Við átum hann upp til agna. Það var ekkert eftir af honum nema skórnir.“ Enn þann dag í dag er hægt að sjá skó sem tilheyrði trúboðanum á forngripasafni Fídjíeyja. Ratu Filimoni Wawabalavu, þorpshöfðinginn sem nú er leiðtogi íbúa Suva, hefur boðið afkomendum trúboðans að koma í heimsókn. Hann vonast til þess að þeir láti örlög forföður síns ekki hræða sig frá því að þiggja heimboðið. Þorpsbúar hafa ákveðið að biðjast einlæglega afsökunar á yfirsjón forfeðra sinna, ekki síst vegna þess að margir trúa því að bölvun hvíli yfir þorpinu vegna hinnar skugga- legu máltíðar fyrir 136 árum. Mikill meirihluti íbúa Fídjíeyja er kristinnar trúar, þannig að þrátt fyrir að sumir trúboðar fengju óblíðar viðtökur hefur starf þeirra borið ávöxt. ■ Moskvubúi: Notaði bensín sem þvottaefni Maður nokkur í Moskvuborgsitur nú eftir buxnalaus og húsnæðislaus eftir að hafa gert kostnaðarsama tilraun til að þvo málningarblett úr buxunum sínum. Þegar það kom í ljós að blettur fór ekki úr buxunum við þvott sá maðurinn að nú væru góð ráð dýr og fór út á bensínstöð og náði sér í einn lítra af bensíni sem hann síðan hellti í þvottavélina og setti hana af stað. Bensínið hafði þau tilætluðu áhrif að bletturinn hvarf, en því miður hurfu buxurnar líka og einnig þvottavélin, sem sprakk í loft upp og mölvaði niður vegginn á þvottaherberginu. Maðurinn situr því eftir buxnalaus og húsnæðis- laus. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.