Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 40
40 18. október 2003 LAUGARDAGUR hvað?hvar?hvenær? 25 26 27 18 19 20 21 OKTÓBER Laugardagur Ef þú átt góða vini þá skiptir hléðá milli funda engu máli. Það er alltaf tekinn upp þráðurinn áreynslulaust síðan síðast,“ segir tónlistarmaðurinn Valgeir Guð- jónsson um vináttu sína við söng- konuna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur en þau rifja upp gömul kynni á útgáfu- tónleikum í Salnum í kvöld: „Við Diddú flugum saman á plötunni, Fugl dagsins, fyrir átján árum en platan sem nú lítur dagsins ljós kallast Fuglar tímans og á það sam- merkt með fyrri plötunni að inni- halda lög við kvæði Jóhannesar úr Kötlum.“ Flest lögin urðu til á þeim tíma þegar Spilverkið lagðist niður og Diddú og Valgeir fóru utan til náms: „Ég lærði í Noregi og þar sat ég löngum vetrarkvöldum með ljóðabækur Jóhannesar og setti lög við þau ljóð sem komu til mín. Ljóð- in fjalla öll um fólk sem bjó við ólíkar aðstæður en fólk nú til dags en var samt í rauninni alveg ná- kvæmlega eins og við. Fólk breyt- ist ekkert því við höfum öll sömu grunnkenndir, langanir og þrár.“ En hafa Diddú og Valgeir þá ekkert breyst: „Diddú hefur afrek- að svo margt á tónlistarsviðinu síð- an við störfuðum saman að stóru verkefni. Það er gaman að fá hlut- deild í því að vinna með svona þroskuðum listamanni. Hún nálg- ast lögin hvert með sínum andblæ og spannar alveg gríðarlega breytt svið. Á þessari plötu dregur hún fram röddina sem hún notaði áður en hún lagði stund á óperusöng.“ Á tónleikunum í Salnum kvöld verður ýmislegt á boðstólnum: „Spilverkið gaf út sex plötur saman og ætli það detti ekki inn nokkur spilverkslög og fleira smálegt á tónleikunum í bland við lög af nýju plötunni,“ segir Valgeir sem er ánægður með útkomu plötunnar. „Þetta er búið að vera dásamlegur tími. Ég er búinn að ganga með þessa plötu í maganum lengi og hlakka til að spila á tónleikunum í kvöld.“ ■ ■ TÓNLEIKAR Valgeir og Diddú í Salnum í kvöld Verðlaunamyndin NÓI ALBINÓI Sýnd í Háskólabíói kl. 4, 6 og 8. ■ ■ SÝNINGAR  13.30 Kynning verður á glerlista- verkum Benedikts S. Lafleur í Lista- kaffi í Listhúsinu í Laugardal. Kynningin stendur til klukkan hálf sex.  Yfir bjartsýnisbrúna - Samsýning alþýðulistar og samtímalistar nefnist sýning sem Listasafn Reykjavíkur hefur unnið í samstarfi við Safnasafnið á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Hér leiða saman hesta sína tuttugu og fimm listamenn sem ýmist kenna sig við alþýðulist eða samtímalist. Sýning- in verður í Hafnarhúsinu til 2. nóvem- ber.  Úr Byggingarlistarsafni, sýning á húsateikningum og líkönum íslenskra arkitekta stendur yfir í Hafnarhúsinu í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá stofnun byggingarlistardeildar við Listasafn Reykjavíkur. Í safni deildarinnar eru varð- veitt söfn teikninga eftir ýmsa af merk- ustu frumherjum íslenskrar byggingar- listar á 20. öld. Sýningin stendur til 2. nóvember.  Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á 6. hæð í Grófarhúsinu stendur yfir yfirlits- sýning á verkum Magnúsar Ólafsson- ar (1862-1937), eins helsta frumherja í íslenskri ljósmyndun. Verk Magnúsar, sem eru kjölfestan í safneign Ljós- myndasafns Reykjavíkur, varpa ljósi á tímabilið frá aldamótum 1900 fram undir miðbik 20. aldar. Safnið er opið 12-19 virka daga, 13-17 um helgar. Sýningin stendur til 1. desember. Að- gangur er ókeypis.  Sýning á verkum Péturs Halldórs- sonar stendur yfir í Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Í Sverrissal og apóteki Hafnarborgar stendur einnig yfir sýning á leirlist Sig- ríðar Erlu Guðmundsdóttur.  Í Gerðarsafni í Kópavogi standa yfir þrjár sýningar. Á neðri hæð er sýning Huldu Stefánsdóttur, Leiftur, þar sem hún teflir saman óræðum ljósmyndum og eintóna málverkum. Í vestursal eru Þræðir Guðrúnar Gunnarsdóttur þar sem hún sýnir þrívíddarteikningar á vegg. Í austursal eru valin málverk úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem hefur að geyma margar af perlum frum- herja íslenskrar málaralistar.  Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýn- ing á málverkum eftir Kristin Breiðfjörð og Guðrúnu Þorbjörgu Guðmundsdóttur og leirmunum eftir Helgu Jóhannsdótt- ur, Helgu Pálínu Sigurðardóttur, Ingþór Sigurð Ísleifsson og Snorra Ásgeirsson. Þetta er önnur sýningin í röð myndlistar- sýninga listahátíðarinnar List án lan- damæra í norðursal Kjarvalsstaða, nýj- um sal Listasafns Reykjavíkur. Sýning- unni lýkur 26. október  Á Kjarvalsstöðum er til sýnis brot af verkum Jóhannesar S. Kjarvals.  Sýningin „Áfram stelpur!“ er í Grófar- húsi, Tryggvagötu 15. Sýnd eru skjöl og munir tengdum kvennahreyfingum á borð við Úurnar, Rauðsokkur, Kvennaframboðið, Kvennalistann, Bríeturnar og Feministafélag Íslands. Sýningin er opin mánudaga til fimmtudaga 10-20, föstudaga 11-19 og um helgar 13-17. Hún stendur til 2. nóv- ember og er aðgangur ókeypis.  Ljósmyndasýning Öldu Sverrisdóttur í húsakynnum ReykjavíkurAkademí- unnar við Hringbraut 121, 4. hæð ,ber titilinn Landslag. Sýningin stendur til 6. nóvember og er opin alla daga nema sunnudaga frá 13 - 17.  Níræður listamaður, Jóhannes Ara- son, er með sýningu sem ber yfirskrift- ina „Þetta þarf skýringar við“ í Listasafni Borgarness. Á sýningunni eru útskornar klukkur, leirmunir og málverk ásamt völdum ljósmyndum af grjóthleðslum Jóhannesar og endurbyggingum á gömlum torfhúsum.  Sýning Þorsteins Helgasonar stend- ur yfir Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akra- nesi. Þar sýnir hann 48 olíumálverk. Sýningin stendur til 26. október. Lista- setrið er opið alla daga nema mánu- daga frá kl. 15-18.  Ásgeir Lárusson hefur opnaðÝ sýn- ingu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Að þessu sinni sýnir Ásgeir 24 olíu- myndir, allar af stærðinni 18x24. Sýning- in er opin virka daga frá 10-18 og laug- ardaga 11-16. Henni lýkur 30. október.  Þórdís Þórðardóttir, listakona á Eyr- arbakka, sýnir vatnslita-, pastel og tepokamyndir í Rauða húsinu, Eyrar- bakka. Sýningin stendur til 19. nóvem- ber.  Á bókasafni Háskólans á Akureyri stendur yfir sýning Stefáns Jónssonar myndlistarmanns. Sýningin, sem Stefán nefnir „Listaverkahrúga“, stendur fram í miðjan nóvember.  Sigurður Þórir sýnir nýleg málverk í Vélasalnum í Vestmannaeyjum. VALGEIR GUÐJÓNSSON Heldur tónleika í kvöld með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í Salnum þar sem þau taka gömul Spilverkslög í bland við lög af nýútkomnum geisladiski ✓ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.