Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 46
Augun 46 18. október 2003 LAUGARDAGUR Mánudagurinn var yndisleg-ur,“ segir Elín Sveinsdóttir, útsendingarstjóri hjá Stöð 2, um vikuna sem var. „Ég byrjaði í lík- amsræktinni klukkan sjö um morguninn en hún gefur mér mik- ið. Heldur mér í því formi sem ég er og ungri. Svo fór ég í vinnuna og endaði vinnudaginn með því að renna mér létt í gegnum Ísland í dag og fréttirnar.“ Svo fór Elín heim, hjálpaði börnunum með heimalærdóminn og hitti eiginmann sinn í fyrsta sinn í marga daga en Elín er gift Sigmundi Erni, ljóðskáldi og sjón- varpsmanni: „Við fengum okkur eitt rauðvínsglas þegar allt var orðið hljótt og töluðum saman.“ Á þriðjudaginn fór hins vegar að halla verulega undan fæti hjá Elínu. Hún fór í flensusprautu í vinnunni sem endaði með því að hún lagðist fárveik í rúmið, gagn- stætt því sem til stóð: „Ég þurfti samt að rífa mig upp til að mæta á fund með Agli Helgasyni og hans liði en ég á að senda út þáttinn hans sem byrjar hér á Stöð 2 um mánaðamótin. Það hefur alltaf verið ágætur þáttur og verður það áfram hjá okkur.“ Elín var ekki fyrr staðin upp úr flensunni en hún brá sér í bæjar- ferð og keypti sér buxur hjá GK. Hún vill sem minnst um buxurnar tala því þær voru svo dýrar: „Þetta eru svartar buxur sem ég get notað bæði spari og hvers- dags,“ segir hún. Í gærkvöldi var Elín svo veislustjóri í fertugsafmæli Öddu Björnsdóttur, sem er eiginkona Þóris Guðmundssonar hjá Rauða krossinum, en þau Adda eru gam- alt vinafólk Elínar og Sigmundar: „Það var fjör í gærkvöldi. Ég hitti svo margt skemmtilegt fólk,“ seg- ir Elín nýkomin úr veislunni og vikan brátt á enda. ■ Vikan sem var ELÍN SVEINSDÓTTIR ■ þurfti bæði að þola súrt og sætt í vikunni sem nú er á enda. Hún náði því líka að kaupa sér nýjar buxur sem voru svo dýrar að hún vill helst ekki tala um það. Mildi, skilningur og manngæska skína úr þessum augum. Enda maðurinn þekktur af slíku þó oft hafi hann þurft að stíga ölduna í ólgusjó íslensks viðskiptalífs. En nú hefur hann tekið land á óvæntri en þó kunnuglegri strönd. Hver á augun? RAFLAGNA ÞJÓNUSTA RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Síðustu vikurnar hefur BjarniDaníelsson, framkvæmda- stjóri Íslensku Óperunnar, brugð- ið sér í hlutverk smiðsins um helgar. Hann hefur nýtt sér þann frítíma sem gefist hefur í það að gera endurbætur á veitingastað sínum í Stykkishólmi, Sjávar- pakkhúsinu við Hafnargötuna. „Hann er í gömlu húsi sem við höfum verið að endurbyggja,“ út- skýrir Bjarni en veitingastaður- inn er aðeins opinn á sumrin og eru haustin notuð til endurbóta. „Helgunum núna eyði ég í Stykk- ishólmi og er að smíða geymslu- hús við hliðina á húsinu. Það eru geysilega mörg handtök. Það er gaman að vera í Stykkishólmi og gaman að takast á við aðra hluti en maður er vanur að stússast í.“ Mikil þörf hefur verið á geymslurými við veitingastaðinn lengi, sem hefur sýnt sig best með því að Bjarni hefur þurft að hafa öl og mat í fóstri hjá nágrönnum staðarins á Stykkishólmi. Einnig hefur verið þörf á að smíða grind- verk, sólpall og stiga. Sem betur fer líkar honum smíðavinnan vel og segist vel geta hugsað sér að gera meira af henni. Ekki skemm- ir fyrir að honum virðist þykja mjög vænt um staðinn. „Ég þori að segja að staðsetn- ing hans sé ein sú fallegasta á landinu. Okkar aðalsmerki er geysilega fín sjávarréttasúpa. Hún er heil máltíð og við notum í hana allt það besta sem við fáum hvern daginn. Hún er svo góð að það fer orð af henni út um allan heim.“ Þegar lífið kemst aftur í sinn vanagang mun Bjarni eyða laug- ardagskvöldum sínum í vinnu sína á Óperunni auk þess að reyna að fylgjast með því sem er að ger- ast í öðrum leikhúsum. „Þetta er náttúrlega þannig vinna að maður tekur þátt í mannlífinu um helgar en svo er einnig mjög góður fé- lagsskapur þarna fyrir vestan. Ég er þó orðinn svolítið linur við skemmtanalífið núorðið. Tek það að vakna hress á morgnana fram yfir barferðirnar,“ segir Bjarni að lokum og heldur af stað til Stykk- ishólms með hamar í hönd. ■ Lárétt: 1 persóna í þekktu lagi, 7 festir saman, 8 þefa af, 9 furðar, 11 óttast, 12 steinar, 15 ekki, 16 ármynni, 17 verkfæri. Lóðrétt: 1 í röð, 2 samtök, 3 miðar, 4 fréttamaður, 5 geimferðastofnun, 6 sögu- frægt fjall, 10 nægir, 13 algengt nafn, 14 reykja, 15 keyri. Lausn: EIVÖR PÁLSDÓTTIR Bræddi hjörtu áhorfenda er hún kom fram á Airwaves-tónlistarhátíðinni á NASA á fimmtudagskvöldið. Hún flutti frumsamin færeysk lög af geisladisknum Krákunni sem kemur út á næstu dögum en íslenska lagið Hjarta mitt fékk einnig að hljóma og þar segir Eivör: „En hefði ég ekki í nótt farið heim, þá ættirðu núna hjarta mitt“. Lárétt: 1ramóna,7saumar, 8nasa,9undr- ar, 11óa,12grjót, 15ei,16ós,17kranar. Lóðrétt: 1rstu,2aa,3mundar, 4ómar, 5 nasa,6ararat,10nógir, 13jón,14ósa,15 ek. 1 7 8 9 10 15 16 17 2 3 4 5 6 (Magnús Gunnarsson, nýr stjórnarfor- maður Eimskipafélagsins.) ELÍN SVEINSDÓTTIR Vikan byrjaði í líkamsrækt og endaði í fertugsafmæli. BJARNI DANÍELSSON Helgarnar í haust hafa farið í að smíða. Laugardagskvöld BJARNI DANÍELSSON ■ Óperustjórinn verður staddur á Stykk- ishólmi í kvöld og ætlar ekki úr smíða- gallanum fyrr en á morgun. Veik af flensusprautu Viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Á þessu námskeiði verður farið í endurbætur og viðgerðir utanhúss. Bóklegt og verklegt nám. Áhersla verður lögð á viðgerðir og smíði glug- ga og hurða samkvæmt gömlu handverki. Einnig verður leiðbeint um mat á skemmdum og val á efni til endurbóta. Námskeiðið hefst föstu- daginn 31. október og lýkur laugardaginn 15. nóvember. Námskeiðið verður haldið í Miðbæjarskóla og á verkstæði á Grettisgötu 46. Námskeiðsgjald er kr. 16.900.- Leiðbeinandi: Þórhallur Hólmgeirsson. Húsgagnaviðgerðir Kennd eru undirstöðuatriði í fínsmíði og hvernig á að gera upp húsgögn og antíkmuni. Nemendur mæta með eigin húsgögn til lagfæringar. Námskeiðið stendur í 7 vikur og hefst fimmtudaginn 30. október. Námskeiðsgjald er kr. 16.000.- Leiðbeinandi: Þórhallur Hólmgeirsson. Listasaga - síðdegisnámskeið Veitt er innsýn í heim listaverka með tónlistarívafi. Fjallað verður um hel- stu tímabil listasögunnar frá upphafi myndgerðar fram á okkar daga. Safnaheimsóknir. Námskeiðið stendur í 7 vikur og hefst þriðjudaginn 28. október. Námskeiðsgjald er kr. 10.500.- Leiðbeinandi: Þorsteinn Eggertsson Myndlist Teikning - kennd eru undirstöðuatriði í teikningu og leiðbeint um notkun ýmissa teikniáhalda Vatnslitamálun - kennd er blöndun lita og mismunandi aðferðir í vatns- litamálun. Námskeiðin standa í 7 vikur hvort og hefjast laugardaginn 1. nóvember. Námskeiðsgjald er kr. 13.900.- Leiðbeinandi: Þorsteinn Eggertsson Innritun stendur yfir í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. sími 551 2992 Netfang: nfr@namsflokkar.is http://www.namsflokkar.is Smiður um helgar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.