Fréttablaðið - 18.10.2003, Side 28
■ Sagt og skrifað
28 18. október 2003 LAUGARDAGUR
BÓK VIKUNNAR
Dude, Where’s My Country?
eftir Michael Moore.
Michael Moore snýr aftur í kröf-
ugri bók þar sem hann segir
bandarísku þjóðinni sannleikann
um Íraksstríðið og hjólar í George
Bush af fullkomnu miskunnar-
leysi. Moore hvetur Opruh Win-
frey til að fara í forsetaframboð
og færir sannfærandi rök fyrir því
að hún yrði framúrskarandi for-
seti. Einn kafli bókarinnar er bréf
frá Guði til jarðarbúa en þar
þvær Guð hendur sínar af gjörð-
um Bush og margítrekar að Bush
tali ekki í sínu nafni. Stundum fer
Moore yfir strikið í bók sem verð-
ur vafalaust jafn umdeild og
Stupid White Men.
METSÖLU-
LISTI
EYMUNDS-
SONAR
Allar bækur
1. Supersex. Tracey Cox
2. Að láta lífið rætast. Hlín Agnarsdóttir
3. Mýrin. Arnaldur Indriðason
4. Stjórnun á tímum hraða og breyt-
inga. Þórður Víkingur Friðgeirsson
5. Að elska það sem er. Byron Katie
6. Frægð og firnindi - ævisaga Stefáns
V. Gísli Pálsson
7. Vín. Þorri Hringsson
8. Halló heimur, hér er ég. Inger Anna
Aikman og Margrét Blöndal
9. Burt með verkina. Chris McLaughlin
10. Almanak Háskóla Íslands. Háskóli
Íslands
Skáldverk
1. Mýrin. Arnaldur Indriðason
2. Röddin. Arnaldur Indriðason
3. Sagan af Pí. Yann Martel
4. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
5. Vansæmd. J.M. Coetzee
6. Fyrstur til að deyja. James Patterson
7. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason
8. Skuggaleikir. Jose Carloz Samoza
9. Engin spor. Viktor Arnar Ingólfsson
10. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA
EYMUNDSSONAR 8. - 14. OKTÓBER
METSÖLU-
LISTI
BÓKABÚÐA
MÁLS OG
MENNINGAR
Allar bækur
1. Burt með verkina. Chris McLaughlin
2. Að láta lífið rætast. Hlín Agnarsdóttir
3. Frægð og firnindi - ævisaga
Vilhjálms St. Gísli Pálsson
4. Samlokur - grípandi góðgæti. Heiða
B. Hilmisdóttir og Bryndís E. Birgisdóttir
5. Supersex. Tracy Cox
6. Auglýsingar og árangur. Friðrik Ey-
steinsson
7. Röddin. Arnaldur Indriðason
8. Sagan af Pí. Yann Martel
9. Leggðu rækt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir
10. Vín. Þorri Hringsson
Skáldverk
1. Röddin. Arnaldur Indriðason
2. Sagan af Pí. Yann Martel
3. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
4. Vansæmd. J.M. Coetzee
5. Mýrin. Arnaldur Indriðason
6. Skuggaleikir. Jose Carlos Samoza
7. Synir dufsins. Arnaldur Indriðason
8. Reisubók Guðríðar Símonardóttur.
Steinunn Jóhannesdóttir
9. Albúm. Guðrún Eva Mínervudóttir
10. Ævintýri góða dátans Svejks.
Jaroslav Hasek
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA
MÁLS OG MENNINGAR 8. - 14. OKTÓBER
■ Bækur
Vinsælasti höfundur þjóðarinn-ar nú um stundir, Arnaldur
Indriðason, sendir fyrir jólin frá
sér nýja glæpasögu, sem fyrir
fram er auðvelt að veðja á sem
metsölubók ársins. Bókin heitir
Bettý. Ungur lögmaður situr í
gæsluvarðhaldi og rifjar upp af-
drifarík kynni sín af Bettý, sem
birtist einn daginn í aðskornum
kjól með litla gullkeðju um
ökklann.
Á meðal annarra bóka sem
Vaka-Helgafell gefur út fyrir
þessi jól kennir margra grasa.
Andlit heitir bók eftir verðlauna-
höfundinn Bjarna Bjarnason.
Þetta er skálduð frásögn en þó
sönn saga hans. Hann segir frá lit-
ríkri æsku á áttunda áratugnum,
hvernig hann elur sig að mestu
upp sjálfur á skjön við skólakerf-
ið, þvælist milli staða innanlands
og utan og kynnist ótrúlegasta
fólki. Sagan er full af húmor,
trega og hlýju en umfram allt er
hér lýst einstöku lífshlaupi.
Ein ljóðabók kom út hjá Vöku-
Helgafelli á árinu. Út og heim
nefnist hún og er eftir Björn Sig-
urbjörnsson.
Endurminningar Elínar
Pálmadóttur
Eins og ég man það eru endur-
minningar Elínar Pálmadóttur
blaðamanns. Elín hóf ung störf
hjá Sameinuðu þjóðunum í New
York í árdaga samtakanna í lok
fimmta áratugarins og kynntist
listamönnum í París á sjötta ára-
tugnum, ekki síst Gerði Helga-
dóttur myndhöggvara, en þekkt-
ust er hún fyrir ár sín í blaða-
mennsku þar sem hún opnaði
meðal annars hálendið fyrir les-
endum Morgunblaðsins. Frá
þessu og fleiru segir Elín í fróð-
legri bók.
Brennd lifandi er sönn frásögn
ungrar arabískrar konu, bók sem
fer sigurför um heiminn um þess-
ar mundir. Souad, sem elst upp í
litlu þorpi á vesturbakka Jórdan-
ar, gerist sek um þann glæp að
verða skotin í strák. Fyrir það
refsar fjölskyldan henni grimmi-
lega. Og þegar hún sleppur lifandi
frá þeirri atlögu gengur móðir
hennar enn lengra og reynir að
koma dóttur sinni fyrir kattarnef.
Árni Snævarr þýðir og ritar eftir-
mála.
Ný og rækilega endurskoðuð
útgáfa af Samtíðarmönnum kem-
ur út í ritstjórn Péturs Ástvalds-
sonar. Þar er greint frá ævi og
störfum 1.700 núlifandi Íslend-
inga á ýmsum aldri sem áberandi
hafa verið í samfélaginu undan-
farin ár. Bókin er í tveimur bind-
um og í veglegri öskju.
Bók um spádóma og ein-
stök frumraun
Af fræðibókum og bókum al-
menns efnis hjá Vöku-Helgafelli
má nefna Spádómabókina eftir
Símon Jón Jóhannsson. Þetta er
uppflettibók um það hvernig hægt
er að sjá inn í framtíðina með
hjálp margvíslegra spádómsað-
ferða frá ýmsum heimshornum.
Sjónvarpskokkurinn Nigella
Lawson nýtur mikilla vinsælda
hér á landi. Fjölbreytni og frum-
leiki eru aðalsmerki hennar, rétt-
irnir eru léttir, einfaldir og ljúf-
fengir og tær matarást gerir út-
slagið við eldamennskuna. Ný bók
hennar heitir Létt og freistandi.
Í upphafi árs kom út bók Ás-
mundar Stefánssonar og Guð-
mundar Björnssonar læknis sem
nefnist Þú getur grennst og breytt
um lífsstíl og vakti hún mikla at-
hygli.
Hinn vinsæli höfundur Mari-
anne Fredriksson blæs nýju lífi í
söguna um Maríu Magdalenu í
samnefndri skáldsögu um líf,
dauða og upprisu Jesú og konuna
sem elskaði hann mest allra.
Píanóstillirinn er skáldsaga eft-
ir Daniel Mason. Ungur píanóstill-
ingamaður fær það óvenjulega
verkefni að ferðast inn í frum-
skóga Búrma við lok 19. aldar til að
stilla flygil í eigu sérviturs læknis
sem ílenst hefur í þessu framandi
landi. Píanóstillirinn heldur upp í
ferðina, sem á eftir að reynast í
senn heillandi og háskaleg og um-
bylta sálarlífi hans. Þessi skáld-
saga hefur hlotið mikið lof austan
hafs og vestan, sem einstök frum-
raun ungs höfundar.
Íslenskir og erlendir verð-
launahöfundar
Vaka-Helgafell gefur út nokkr-
ar íslenskar barna- og unglinga-
bækur. Yrsa Sigurðardóttir hlaut
Íslensku barnabókaverðlaunin
2003 fyrir bók sína Biobörn en þar
segir frá því þegar fyrirtækið
Biobörn stofnar frumkvöðlasetur
fyrir afburðabörn. Fjölmörgum
gáfnaljósum er boðið á námskeið-
ið en fyrir mistök er trössunum
Önnu Lísu og Ragga boðið líka og
þá fer ýmislegt að gerast.
Valkyrjan heitir bók eftir Elías
Snæland Jónsson sem hlotið hefur
Íslensku barnabókaverðlaunin.
Hildur er tólf ára stelpa sem læt-
ur engan vaða yfir sig. Dag
nokkurn verður hún fyrir óvæntri
árás og allt breytist. Þegar hún
veit næst af sér er hún stödd í
goðheimum þar sem þrjár val-
kyrjur taka hana að sér.
Hrói bjargar jólunum er eftir
írska rithöfundinn Roddy Doyle
sem hlaut á sínum tíma hin virtu
Booker-verðlaun fyrir skáldsög-
una Paddy Clarke, ha, ha, ha!.
Rúdolf, forystuhreindýr jóla-
sveinsins, er kominn með flensu
og Sveinki er með allt á hælunum.
Hvað er til ráða? Doyle segir hér
sprenghlægilega og æsispennandi
sögu þar sem allt getur gerst.
Að auki gefur Vaka-Helgafell
út ýmsar erlendar barnabækur
sem meðal annars tengjast vin-
sælum teiknimyndum frá Disn-
ey-fyrirtækinu. Þá komu fjöl-
margar bækur út í kilju, auk end-
urútgáfna á eldri bókum, meðal
annars ýmissa verka Halldórs
Laxness.
kolla@frettabladid.is
GERÐUR KRISTNÝ
FRESTAR ÚTGÁFU
Þær fréttir berast að rithöfund-
urinn Gerður Kristný hafi ákveð-
ið að fresta útkomu nýrrar skáld-
sögu sinnar en tilkynnt hafði ver-
ið að hún kæmi út fyrir þessi jól
hjá Máli og menningu. Gerður
Kristný er í annasömu starfi sem
ritstjóri hins vinsæla tímarits
Mannlífs og telur sig ekki hafa
tíma til að ljúka við bókina á full-
nægjandi hátt. Bók hennar nefn-
ist Heima hjá Guði og er að sögn
þeirra sem lesið hafa spennandi
og skemmileg fjölskyldusaga þar
sem blaðakona er í aðalhlutverki.
Aðdáendur Gerðar Kristnýjar
verða því að bíða bókarinnar í ár.
Áður hafa Bragi Ólafsson og
Ólafur Jóhann Ólafsson frestað
útkomu skáldsagna sinna.
Breska dagblaðið The Obser-ver hefur birt lista yfir
hundrað bestu skáldsögur allra
tíma að mati starfsmanna blaðs-
ins. Listinn var gerður í tilefni
þess að BBC býr sig undir að
kynna hvaða bækur Bretar hafa
mest dálæti á. Don Kíkóti eftir
Cervantes var kosinn besta
skáldsaga allra tíma en þess má
geta að í fyrra valdi hópur rit-
höfunda víða að úr heiminum
Don Kíkóta sem bók allra tíma.
Tíu bestu skáldsögur allra tíma eru
þessar að mati The Observer:
1. Don Kíkóti eftir Cervantes
2. Ferðir Pílagrímsins eftir John Bunyan
3. Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe
4. Ferðir Gúllivers eftir Jonathan Swift
5. Tom Jones eftir Henry Fielding
6. Clarissa eftir Samuel Richardson
7. Tristram Shandy eftir Laurence Ster-
ne
8. Les Liaisons Dangereuses eftir Pierre
Choderlos De Laclos
9. Emma eftir Jane Austen
10. Frankenstein eftir Mary Shelley
Enskar bækur eru yfirgnæf-
andi á listanum, enda er hann
saminn af Englendingum. Greif-
inn af Monte Christo eftir Alex-
andre Dumas lenti þó í 14. sæti
og Madame Bovary eftir
Flaubert í því 22., Anna Karen-
ina eftir Tolstoj í 27. sæti, Kara-
mazov-bræðurnir eftir Dostó-
jevskí í 29. sæti, Réttarhöldin
eftir Kafka í 49. sæti, Plágan
eftir Camus í 58. sæti, Lolita eft-
ir Nabokov í 69. sæti, Hundrað
ára einsemd í 76. sæti og nýi
Nóbelsverðlaunahafinn Coetzee
er með skáldsögu sína Waiting
for the Barbarians í 84. sæti.
Klassíkerar eins og Fýkur
yfir hæðir, Jane Eyre, David
Copperfield, Vanity Fair, Lísa í
Undralandi, Móbý Dick, Myndin
af Dorian Gray, Jekyll læknir og
hr. Hyde, Stikilsberja-Finnur,
Ulysses, Gatsby hinn mikli,
Veröld ný og góð, Bjarg-
vætturinn í grasinu, 1984,
Hringadróttins saga, To Kill a
Mockingbird og Catch-22 eru
vitanlega á listanum. Sömuleiðis
Svefninn langi eftir Raymond
Chandler, barnabókin Vefurinn
hennar Karlottu eftir E.B.White,
New York-trílógía Paul Austers,
Money eftir Martin Amis, Gyllti
áttavitinn eftir Philip Pullman
og American Pastoral eftir Phil-
ip Roth.
Með listanum í The Observer
fylgir grein sem er full af afsök-
unum um þær bækur og höf-
unda sem ekki komust á lista.
Það verður hins vegar ekki séð
að starfsmenn The Observer
þurfi að skammast sín fyrir bók-
menntasmekk sinn. ■
GERÐUR KRISTNÝ
Hefur ákveðið að fresta útgáfu
bókar sinnar.
CERVANTES
Skáldsaga hans Don Kíkóti er besta
skáldsaga allra tíma að mati The Observ-
er. Seinna bindi bókarinnar kemur út hjá
JPV fyrir jólin.
The Observer velur 100 bestu skáldsögur sögunnar:
Don Kíkóti bestur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
YRSA SIGURÐARDÓTTIR
Fékk Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir
Biobörn.
Fyrstu jólabækurnar eru komnar á markað. Í útgáfu Vöku-Helgafells kennir ýmissa grasa:
Ný bók eftir Arnald
ARNALDUR INDRIÐASON
Ný bók hans heitir Bettý og fjallar um ungan lögmann sem situr í gæsluvarðhaldi.
BJARNI BJARNASON
Segir frá litríkri æsku í skáldævisögu.