Fréttablaðið - 18.10.2003, Page 43
LAUGARDAGUR 18. október 2003 43
Stærsta flugsýning á Reykjavík-urflugvelli um árabil verður í
dag í tilefni þess að hundrað ár eru
liðin frá upphafi flugs í heiminum.
Dagskráin hefst klukkan tíu og
verður þá boðið upp á ýmsa leiki
fyrir yngstu kynslóðina. Flugskól-
arnir bjóða einnig upp á kynnis-
flug á kostnaðarverði.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
setur síðan formlega Flugdag
Flugmálafélagsins klukkan eitt og
ýmsir framámenn í flugmálum
flytja stutt ávarp í framhaldi af
því.
Hápunktur dagsins verður
milli klukkan 14 og 17 þegar flug-
sýningaratriðin standa yfir. Boðið
verður upp á þyrluflug, svifflug,
svifdrekaflug, fallhlífastökk,
módelflug og flugskemmtiatriði
af ýmsu tagi. Farþegaflugvélar
fljúga yfir svæðið og auk þess
verða sýningaratriði frá snjó-
ruðningsdeild og slökkviliði
Reykjavíkurflugvallar.
„Við bjóðum borgarbúum upp á
viðstöðulaust sýningarflug í þrjár
klukkustundir,“ segir Gunnar Þor-
steinsson hjá Flugmálafélaginu. ■
Listflug og leikir á
Reykjavíkurflugvelli
■ FLUGSÝNING
FALLHLÍFARSTÖKK
Stærsta flugsýning sem haldin hefur
verið á Íslandi í rúman áratug verður
á Reykjavíkurflugvelli í dag.
ANNA RÓSA
Leikkonan Anna Rósa Sigurðardóttir slasaðist í upphitun hálftíma fyrir sýningu á „Plómur í
New York“ í Gamla Bíó í fyrrakvöld og varð að fella niður sýningu og vísa gestum frá. Leik-
konan hafði tekið þátt í spurningaleik í Ísland í dag í beinni útsendingu stuttu áður, og var
því sein fyrir. Hún var köld er hún hóf upphitun fyrir sýninguna, sem er mjög líkamlega
krefjandi, og tognaði á baki. Sýningunni í kvöld verður einnig frestað.